Þórdís Lóa leiðir lista Viðreisnar í Reykjavík

Formaður Við­reisnar kynnti lista flokks­ins fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í Reykja­vík í dag.

Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir rekstr­ar­hag­fræð­ingur leiðir lista Við­reisnar í Reykja­vík í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í lok maí. Pawel Bartoszek stærð­fræð­ingur er í öðru sæti og Diljá Ámunda­dóttir, almanna­teng­ill og vara­borg­ar­full­trúi, er í þriðja sæt­inu.

Í til­kynn­ingu er haft eftir Þórdísi Lóu að Reykja­vík sé frá­bær borg þar sem mæt­ast borg­ar­mann­líf og nálægð við nátt­úru. „Okkur í Viðreisn er sér­stak­lega umhugað um að setja fók­us­inn á þarfir borg­ar­búa í dag­legu lífi í borg­inni. Leið­ar­ljósið okkar er að tryggja borg­ar­búum góða þjón­ustu, fram­úr­skar­andi menntun, heild­stætt skipu­lag og góðar sam­göngur. Þannig viljum við stuðla að því að Reykja­vík verði besta borg í Evrópu sem við teljum raun­hæft ef vel er haldið á spöð­unum.”

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, kynnti list­ann á fimmta tím­anum í dag. 

Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar, er í heið­ur­sæti list­ans, eða 46. sæti hans.

Fram­boðs­lista Við­reisnar í Reykja­vík skipa eft­ir­taldir aðilar:

  1. Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, rekstr­ar­hag­fræð­ingur
  2. Pawel Bartoszek, stærð­fræð­ingur
  3. Diljá Ámunda­dóttir, almanna­teng­ill og vara­borg­ar­full­trúi
  4. Gunn­laugur Bragi Björns­son, við­skipta­fræð­ingur
  5. Vilborg Guðrún Sig­urð­ar­dóttir, grunn­skóla­kenn­ari
  6. Geir Finnsson, for­maður Upp­reisnar í Reykja­vík
  7. Arna Garð­ars­dóttir, mannauðs­stjóri Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands
  8. Ingólfur Hjör­leifs­son, aðjúnkt við verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­svið HÍ
  9. Helga Lind Mar, laga­nemi, frí­stunda­leið­bein­andi og aktí­visti
  10. Hörður Ágústs­son, fram­kvæmda­stjóri
  11. Sara Sig­urð­ar­dóttir, sér­fræð­ingur í mark­aðs­málum
  12. Árni Grétar Jóhanns­son, leik­stjóri og leið­sögu­maður
  13. Katrín Sigríður Júlíu Stein­gríms­dóttir, nemi
  14. Freyr Gúst­avs­son, tekju­stjóri
  15. Þórunn Hilda Jón­as­dóttir, verk­efna­stjóri við­burða
  16. Arnar Kjart­ans­son, nemi
  17. Jenný Guðrún Jóns­dóttir, rekst­ar­stjóri
  18. Sverrir Kaaber, skrif­stofu­stjóri
  19. Kristín Ágústs­dóttir, sér­fræð­ingur
  20. Oddur Mar Árnason, þjónn
  21. María Rut Krist­ins­dóttir, aðstoð­ar­maður for­manns Við­reisnar
  22. Einar Thorlacius, lög­fræð­ingur
  23. Þorbjörg Inga Þor­steins­dóttir, lög­fræð­ingur
  24. Aron Eydal Sig­urð­ar­son, þjón­ustu­full­trúi
  25. Aðal­björg Guð­munds­dóttir, náms og starfs­ráð­gjafi
  26. Gylfi Ólafsson, dokt­or­snemi
  27. Dóra Tynes, lög­maður
  28. Lárus Elíasson, verk­fræð­ingur
  29. Sóley Ragn­ars­dóttir, lög­fræð­ingur
  30. Starri Reyn­is­son, stjórn­mála­fræði­nemi
  31. Sandra Hlín Guð­munds­dóttir, nám- og starfs­ráð­gjafi
  32. Einar Karl Frið­riks­son, efna­fræð­ingur
  33. Sigrún Helga Lund, dós­ent í líf­töl­fræði
  34. Jón Bjarni Steins­son, fram­kvæmda­stjóri
  35. Jóhanna Dýrunn Jóns­dóttir, mark­aðs­stjóri
  36. Gunnar Björns­son, for­seti Skák­sam­bands Íslands
  37. Ásdís Rafnar, lög­fræð­ingur
  38. Lúðvíg Lárusson, sál­fræð­ingur
  39. Stefanía Sig­urð­ar­dóttir, við­burða­stjóri
  40. Samúel Torfi Pét­urs­son, skipu­lags­verk­fræð­ingur
  41. Jóhanna E. Sveins­dóttir, við­skipta­fræð­ingur
  42. Jón Júlíus Karlsson, fram­kvæmda­stjóri
  43. Tanja Kristín Leifs­dóttir, grunn­skóla­kenn­ari
  44. Andri Guð­munds­son, deild­ar­stjóri
  45. Jóhanna Fjóla Ólafs­dóttir, fyrr­ver­andi lektor
  46. Benedikt Jóhann­es­son, stærð­fræð­ingur
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár