Ætla að nota peninga úr bönkum til að byggja upp vegakerfið

Sigurður Ingi Jóhanns­son segir að ráð­ist verði í stór­sókn á brýnum inn­viða­fram­kvæmdum á þessu ári sem ekki sé gert ráð fyrir í áætlum árs­ins 2018. Hann segir að þjóðin hafi viljað fá Fram­sókn­ar­flokk­inn til að stýra land­inu.

Rík­is­stjórnin ætlar að nota fjár­magn frá bönkum sem íslenska ríkið á í til að byggja upp vega­kerfið. Þetta sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, í ræðu sinni á flokks­þingi flokks­ins í dag. 

Sigurður Ingi sagði að fyrir kosn­ingar hafi verið lögð áhersla á að nota fjár­muni úr fjár­mála­fyr­ir­tækj­unum til inn­viða­upp­bygg­ingar, það hafi verið skrifað í stjórn­ar­sátt­mál­ann og við það lof­orð verði staðið. Strax á þessu ári verði fjár­magn­aðar nýfram­kvæmdir í sam­göngum og ráð­ist í stór­sókn á brýnum fram­kvæmdum sem ekki hafði verið gert ráð fyrir í áætlun fyrir árið 2018.

Vill sameina Fjármálaeftirlit og Seðlabanka

Sigurður Ingi sagði að á annað hund­rað verk­efni hefðu verið talin upp í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar, sem Framsókn á aðild að. Að hans sögn er vinna við tæp­lega 90 pró­sent aðgerð­anna í und­ir­bún­ingi, hafin, komin langt á veg eða lokið.

Sigurður Ingi eyddi hluta ræðu sinnar í að tala um fjár­mála­kerfið og sagði að Hvít­bók­ar­vinnan sem standi yfir muni svara þeim spurn­ingum sem spurðar hafa verið um fram­tíð þess, t.d. um aðskilnað fjár­fest­inga og við­skipta, eign­ar­hald og stærð banka­kerf­is­ins. „Brýnt er að gera sér grein fyrir hvernig við viljum sjá þessa þætti fyrir okkur – við höfum löngum haft þá stefnu að fjár­mála­fyr­ir­tækin eigi að vera þjón­andi fyrir heim­ilin og fyr­ir­tækin í land­inu með traustum, trú­verð­ugum og ódýrum hætti.“

Hann sagði enn fremur að við end­ur­skoðun fjár­mála­kerf­is­ins sé það mat Fram­sókn­ar­manna að skyn­sam­legt sé að efla eft­ir­lit með kerf­inu, m.a. með sam­ein­ingu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og Seðla­bank­ans. Banka­kerfið sé of stórt á Íslandi fyrir hag­kerfi að þess­ari stærð og eigið fé bank­anna sé of hátt.

„Við erum komin aftur“

Sigurður Ingi fjall­aði einnig um rík­is­stjórn­ar­sam­starfið í ræðu sinni. Hann sagði að skoð­ana­kann­anir í nóv­em­ber 2017 hefðu sýnt að 73 pró­sent þjóð­ar­innar hafi viljað Framsókn í rík­is­stjórn, þangað sem flokk­ur­inn fór ásamt Vinstri grænum og Sjálf­stæð­is­flokki. Sigurður Ingi sagði þetta sýna að lands­menn hefðu helst viljað fá Fram­sókn­ar­flokk­inn til að stýra land­inu og að það sé „ heil­brigð­is­vott­orð um heið­ar­legan flokk, skyn­sama stefnu og öfl­ugt fólk.“ Það þyrfti þó að muna að traust væri ekki gefið. „Það skiptir öllu hvernig við umgöng­umst valdið, hvernig við vinnum saman og leiðum málin til lykta. Þetta kunnum við Fram­sókn­ar­menn, þarna liggja rætur okkar, við erum komin aftur.“

Sigurður Ingi sagði að það væri honum stór­lega til efs að hinn almenni kjós­andi væri að biðja um upp­þot á Alþingi. Kjós­endur hefðu beðið um póli­tískan stöð­ug­leika í síð­ustu kosn­ingum og frið til að byggja upp sam­fé­lagið. Að því vinni meiri­hlut­inn. „Það er lítil eft­ir­spurn eftir popúliskum til­burðum að fyr­ir­mynd Trumpara austan eða vestan Atl­antsála. Og engin eft­ir­spurn eftir illindum vinstri stjórn­ar­innar frá 2009-2013.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár