Ásmundur ætlar að fá sér bílaleigubíl

Ásmundur Frið­riks­son ætlar að hætta að nota einka­bíl sinn í starfi og krefj­ast end­ur­greiðslu fyrir keyrslu hans. Þess í stað mun hann not­ast við bíla­leigu­bíl líkt og Alþingi hefur mælst til um að hann geri.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, ætlar að hætta að nota einka­bíl sinn til akst­urs vegna starfa sinna og nýta sér bíla­leigu­bíl þess í stað. Hann greinir frá þessu í sam­tali við Vísi.

Þar segir Ásmundur að þetta hafi staðið til lengi eftir að nýjar reglur hafi verið settar af for­sætis­nefnd um akst­urs­mál þing­manna fyrir síð­ustu kosn­ingar. Ásmundur segir við Vísi að ekk­ert „sam­ráð var haft við okkur sem erum í þessu heima­keyrslu­verk­efni“ þegar þær reglur hafi verið settar. Ásmundur segir enn fremur að hann hafi boðið þing­inu að leigja af sér bif­reið sína á sömu kjörum og bíla­leigur bjóða þing­inu. Það hafi ekki verið þegið.

Ásmundur sá þing­­maður sem fékk flestar krónur end­­ur­greiddar vegna akst­­­ur­s­­­kostn­aðar í fyrra, alls 4,6 millj­ónir króna. Upp­hæðin sem hann fékk þýðir að hann fékk um 385 þús­und krónur á mán­uði í end­­­ur­greiðslu úr rík­­­is­­­sjóði vegna keyrslu sinn­­­ar. Alls keyrði Ásmundur 47.644 kíló­­metra í fyrra, og fékk end­­ur­greitt frá rík­­inu vegna kostn­aðar fyrir þann akst­­ur.

Í morgun var greint frá því í Morg­un­út­varpi Rásar 2 að sam­kvæmt útreikn­ingum Félags íslenskra bif­reið­ar­eig­enda (FÍB) kostar um tvær millj­ónir króna að reka Kia Sporta­ge-jeppa á ári. Ásmundur á slíkar bíl.

Í útreikn­ing­unum er gert ráð fyrir verð­rýrnun á bif­reið­inni milli ára vegna mik­ils akst­urs (Ás­mundur keyrði tæp­lega 48 þús­und kíló­metra í fyrra og verð­rýrn­unin er reiknuð 18 pró­sent, eða 139 þús­und krón­ur), eyðslu sem sam­svarar sjö lítrum af dísilolíu á hverja 100 kíló­metra (kostn­aður upp á 654 þús­und krón­ur), 270 þús­und króna við­halds­kostn­aði og 90 þús­und krónum í hjól­barða. Þá er reiknað með að trygg­ingar kosti 160 þús­und krónur og að skattar og skoðun kosti 26 þús­und krón­ur. Alls er bætt við 49 þús­und krónum í kostnað vegna bíla­stæða, þrifa og fleiri þátta. Sam­an­lagt gera þetta um tvær millj­ónir króna, eða um 2,6 millj­ónum krónum lægri upp­hæð en Ásmundur fékk greidda frá Alþingi.

End­ur­greiðslur til þing­manna vegna akst­urs hafa dreg­ist mikið saman und­an­farin ár eftir að þeim til­mælum var beint til lands­byggð­ar­þing­manna að nota frekar bíla­leigu­bíla og flug­leiðir til að kom­ast á milli staða. Skrif­­stofa Alþingis hefur gert samn­inga við bíla­­leig­u­­fyr­ir­tæki sem eru að finna í ramma­­samn­ingi Rík­­is­­kaupa, um afslætti af gjald­­skrá bíla­­leig­u­bíla til að ná niður þessum kostn­aði enn frek­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár