FÍB segir að það kosti helmingi minna að reka bíl Ásmundar en hann fékk endurgreitt

Það kostar um tvær millj­ónir króna á ári að reka Kia Sportage bif­reið líkt og Ásmundur Frið­riks­son á. Ásmundur fékk 4,6 millj­ónir króna end­ur­greiddar frá Alþingi í fyrra vegna akst­urs.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Birgir Þór

Samkvæmt útreikn­ingum Félags íslenskra bif­reið­ar­eig­enda (FÍB) kostar um tvær millj­ónir króna að reka Kia Sportage-jeppa á ári. Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, á slíkan bíl og fékk 4,6 millj­ónir króna end­ur­greiddar frá Alþingi í fyrra vegna keyrslu hans.

Útreik­ingar FÍB voru gerðir fyrir Morg­un­út­varp Rásar 2. Í útreikn­ing­unum er gert ráð fyrir verð­rýrnun á bif­reið­inni milli ára vegna mik­ils akst­urs (Ásmundur keyrði tæp­lega 48 þús­und kíló­metra í fyrra og verð­rýrn­unin er reiknuð 18 pró­sent, eða 139 þús­und krónur), eyðslu sem sam­svarar sjö lít­rúm af dísilolíu á hverja 100 kíló­metra (kostn­aður upp á 654 þús­und krónur), 270 þús­und króna við­halds­kostn­aði og 90 þús­und krónum í hjól­barða. Þá er reiknað með að trygg­ingar kosti 160 þús­und krónur og að skattar og skoðun kosti 26 þús­und krónur. Alls er bætt við 49 þús­und krónum í kostnað vegna bíla­stæða, þrifa og fleiri þátta. Sam­an­lagt gera þetta um tvær millj­ónir króna, eða um 2,6 millj­ónum krónum lægri upp­hæð en Ásmundur fékk greidda frá Alþingi.

Fékk 33 prósent meira en næsti maður

Ásmundur sá þing­maður sem fékk flestar krónur end­ur­greiddar vegna akst­­ur­s­­kostn­aðar í fyrra. Upphæðin sem hann fékk þýðir að hann fékk um 385 þús­und krónur á mán­uði í end­­ur­greiðslu úr rík­­is­­sjóði vegna keyrslu sinn­­ar. Alls keyrði Ásmundur 47.644 kíló­metra í fyrra, og fékk end­ur­greitt frá rík­inu vegna kostn­aðar fyrir þann akst­ur.

Til sam­an­­burðar má nefna að Hring­­veg­­ur­inn, Þjóð­­vegur 1, er 1.322 kíló­­metr­­ar. Ásmundur keyrði því tæp­­lega 36 sinnum hring­inn í kringum landið á síð­­asta ári.

Ásmundur hefur sagt að hann fari eitt hund­rað pró­sent eftir öllum reglum og að hann hafi aldrei fengið athuga­semd frá þing­inu. Hann haldi nákvæma dag­bók þar sem finna megi yfir­lit yfir það sem hann hefur gert í hverri ferð fyrir sig og hvern hann hafi hitt. Tíðar kosn­ingar á und­an­förnum árum hafi auk þess kallað á aukin ferða­lög. „Regl­urnar eru bara þannig að þau erindi sem ég á við kjós­endur sem þing­maður það er greitt.“

Sá þing­­maður sem keyrði næst mest keyrði 35.065 kíló­­metra og fékk tæp­­lega 3,5 millj­­ónir króna í end­­ur­greiðslur frá rík­­inu vegna þess. Keyrsla þing­­manns­ins í öðru sæti var 33 pró­­sent minni en keyrsla Ásmund­ar. Alls fengu þeir þing­­menn sem kröfð­ust hæstu end­­ur­greiðsl­unnar vegna akst­­urs 29,2 millj­­ónir króna í end­­ur­greiðslur í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár