Arion banki hefur kært fyrrverandi forstjóra United Silicon

Málið er nú komið inn á borð hér­aðs­sak­sókn­ara.

Arion banki hefur kært Magnús Garð­ars­son, fyrr­ver­andi for­stjóra og stofn­anda United Silicon, til Hér­aðs­sak­sókn­ara. Kæran var send sak­sókn­ara á mið­viku­dag, að því er segir í Frétta­blað­inu í dag, en ekki er upp­lýst um hverjar eru hintar meintu sakir.

Bankinn á millj­arða undir vegna United Silicon verk­efn­is­ins, ásamt líf­eyr­is­sjóðum, en lán til verk­efn­is­ins námu um átta millj­örðum. Bankinn hefur þegar fært þau niður, en bank­inn og líf­eyr­is­sjóðir hafa tekið yfir 98 pró­sent eign­ar­halds.

Eins og fram hefur komið í fréttum, meðal ann­ars á vef Kjarnans, hefur Hér­aðs­sak­sókn­ari þegar til með­ferðar kæru á hendur Magnúsi, og er honum meðal ann­ars gefið að sök að hafa staðið fyrir skjala­falsi og auðg­un­ar­brotum, og dregið sér allt að hálfan millj­arð króna.

Starf­semi United Silicon var stöðvuð í ágúst með ákvörðun Umhverf­is­stofn­unar, og hefur ekki enn farið í gang.

Sjálfur hefur Magnús alfarið hafnað þessu og sagt að hann hafi ekki brotið gegn lögum, og málið snú­ist nú um bar­áttu um eign­ar­hald og stjórn verk­efn­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár