Leikfélag sem upphefur fjölmenninguna stígur á svið

Skömmu eftir heim­komu úr námi erlendis sá Pálína Jóns­dóttir að stór hópur hæfi­leik­a­ríkra sviðs­lista­manna var útskúf­aður úr íslensku leik­list­ar­lífi. Hún stofn­aði með þeim Reykja­vík Ensemble, nýjan alþjóð­legan lista­hóp, sem stefnir að því að hefja sýn­ingar á kom­andi ári.

Pálína Jóns­dóttir, einnig þekkt sem Pálína frá Grund, á að baki langan feril sem leik­ari og leik­stjóri. Hún hefur meðal ann­ars komið fram í Djöfla­eyj­unni og leik­stýrt fjölda verka, meðal ann­ars Völva sem vann Grímuna 2010 fyrir hljóð­mynd árs­ins, og Ég heiti Guðrún sem var sýnt í Þjóð­leik­hús­inu í fyrra. Þegar hún sneri aftur heim til Íslands árið 2018 – eftir margra ára dvöl í Nýju Jórvík og að loknu leik­stjórn­ar­námi úr hinum virta Columbia-háskóla – seg­ist henni hafa liðið eins og utan­að­kom­andi aðila í leik­list­ar­sen­unni, en hún sá að hún var ekki ein.

„Ég átt­aði mig á því að Ísland hefur breyst mjög mikið á þessum tíma sem ég var erlendis,“ segir hún í sam­tali við Stundina. „Það er allt í einu orðið mjög áþreif­an­lega fjöl­þjóð­legt sam­fé­lag, en ég fór að velta því fyrir mér af hverju ég sæi ekki fleira fólk af erlendu bergi brotið í leik­list­ar­sen­unni.“

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár