Fjárfestingar í United Silicon innan heimilda

2,2 millj­arða fjár­fest­ingar þriggja líf­eyr­is­sjóða í kís­il­verk­smiðj­una United Silicon voru innan fjár­fest­inga­heim­ilda, að sögn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins

Kísilverksmiðjan United Silicon
Kís­il­verk­smiðjan United Silicon Mynd: United Silicon

Eign­ar­hlutur þriggja íslenskra líf­eyr­is­sjóða í United Silicon er innan fjár­fest­ing­ar­heim­ilda þeirra, sam­kvæmt svari frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu.

[links]Kjarninn lagði fram fyr­ir­spurn til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um hvort fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóð­anna Festu, Frjálsa og EFÍA, fyrir 2.166 millj­ónir króna í United Silicon, hafi sam­rýmst fjár­fest­ing­ar­reglum þeirra, þar sem fyr­ir­tækið er óskráð.

Áður hefur verið greint frá þessum fjár­fest­ingum, en Frjálsi fjár­festi fyrir 1.178 millj­ónir króna í fyr­ir­tæk­inu. United Silicon er nú komið í greiðslu­stöðvun og vinnur að gerð nauða­samn­inga við kröfu­hafa sína.

[adspot]

Í svari Fjár­mála­eft­ir­lits­ins kom fram að líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi heim­ild til að binda allt að 10% heild­ar­eigna sinna í hluta­bréfum sama útgef­anda. Heim­ildin er óháð því hvort um skráð eða óskráð fyr­ir­tæki sé að ræða, en líf­eyr­is­sjóði er heim­ilt að eiga allt að 25% af eignum sínum í óskráðum fjár­mála­gern­ingum. Samkvæmt sam­an­tekt úr árs­reikn­ingum líf­eyr­is­sjóð­anna var hlut­fall eigna þeirra í óskráðum fyr­ir­tækjum 3,9% hjá Frjálsa, 4,3% hjá EFÍA og 5,3% hjá Festu.

Ekki er ljóst hvernig eign­ar­haldi United Silicon er háttað, en Krist­leifur Andr­és­son, tals­maður fyr­ir­tæk­is­ins, vildi ekki gefa upp neinar upp­lýs­ingar um eig­endur þegar Kjarninn bað um þær á mið­viku­dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár