Félag Ólafs gæti innleyst 800 milljóna hagnað

Frétta­blaðið og Vísir hafa birt ítar­legar upp­lýs­ingar um þá sem nýttu sér fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans.

„Félag í eigu Ólafs Ólafs­sonar, aðal­eig­anda Samskipa, og Hjör­leifs Jak­obs­sonar fjár­festis kom með tæp­lega tvo millj­arða króna til lands­ins í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands í des­em­ber 2012. Miðað við núver­andi gengi gæti félagið inn­leyst um 809 millj­ónir í geng­is­hagnað, sam­kvæmt útreikn­ingum Mark­að­ar­ins, en fjár­mun­irnir verða lausir til ráð­stöf­unar í lok árs­ins. Árleg ávöxtun yrði þá 13,7 pró­sent. Við bæt­ist síðan ávöxt­unin af sjálfri fjár­fest­ing­unni.“

Þetta kemur fram í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um við­skipti, í dag. Upp­lýs­ingar um hverjir það voru sem nýttu sér fjá­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands eru til umfjöll­unar í blað­inu í dag.

Umrætt félag, Arius ehf., tók þátt í útboði fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar í lok árs 2012 og fékk þannig ríf­lega tutt­ugu pró­senta afslátt af krón­unum. „Voru fjár­mun­irnir einkum nýttir til fjár­fest­inga í Sam­skipum og fast­eigna­fé­lag­inu Festingu, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem feng­ust frá Ólafi,“ segir í frétt Mark­að­ar­ins.

Ólafur hlaut fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm fyrir sinn þátt í Al-Thani mál­inu svo­kall­aða.

[adspot]

Arius er dótt­ur­fé­lag hol­lenska félags­ins SMT Partners B.V. sem er í átta­tíu pró­senta eigu Ólafs og tutt­ugu pró­senta eigu Hjör­leifs.

„Fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans gekk út á að fjár­festar komu með gjald­eyri til lands­ins og skiptu honum fyrir krónur og fjár­festu hér til lengri tíma. Gulrótin var að þeir fengu um tutt­ugu pró­senta afslátt af krón­unum. Þeir fjár­festar sem komu með evrur í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina á fyrri helm­ingi 2012 geta nú inn­leyst sam­an­lagt rúma tutt­ugu millj­arða í geng­is­hagnað, sam­kvæmt útreikn­ingum Mark­að­ar­ins. Ávöxt­unin nemur fjórtán pró­sentum á árs­grund­velli. Til við­bótar við geng­is­hagn­að­inn bæt­ist síðan ávöxtun af fjár­fest­ing­unni sjálfri, en hún hefur verið afar ríku­leg á und­an­förnum árum. Þannig gæti fjár­festir sem kom með evrur til lands­ins í fyrsta útboði fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar, í febr­úar 2012, og keypti sér fimm­tíu millj­óna króna fast­eign í miðbæ Reykja­víkur nú inn­leyst tæp­lega 58 millj­óna hagnað. Árleg ávöxtun nemur í því til­viki 38,9 pró­sentum,“ segir í frétt Mark­að­ar­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár