Gífurleg aukning í fjölda nýskráðra rafbíla

Fjöldi nýskráðra raf­bíla eftir mán­uðum hefur auk­ist um nær 200% á einu ári. Útlit er fyrir frek­ari fjölgun með­fram upp­bygg­ingu fleiri hleðslu­stöðva, en hægt verður að keyra hring­inn á þeim fyrir árs­lok, gangi spár eftir.

Fjöldi hraðhleðslustöðva um landið hefur aukist töluvert á síðustu árum.
Fjöldi hrað­hleðslu­stöðva um landið hefur auk­ist tölu­vert á síð­ustu árum.

Vin­sældir raf­bíla hafa vaxið hratt á Íslandi, en mán­að­ar­legar nýskrán­ingar slíkra bíla hafa nær þre­fald­ast á einu ári. Samhliða mik­illi aukn­ingu mun hrað­hleðslu­stöðvum fjölga um allt land, en útlit er fyrir því að hægt verði að keyra hring­veg­inn á raf­bíl fyrir ára­mót. Búist er við því að hlut­deild raf-og tvinn­bíla í bíla­flot­anum muni aukast enn frekar í fram­tíð­inni þar sem hag­kvæmni þeirra á eftir að aukast.

Í lok júní voru hreinir raf­bílar orðnir rúm­lega 1400 á meðan fjöldi tengil-tvinn­bíla er 1700. Þannig eru bílar sem nota hleðslu­stöðvar á Íslandi (hér nefndir tengi­bílar) sam­tals orðnir fleiri en þrjú þús­und, sem er um það bil 1,5% af virkum bíla­flota Íslend­inga. Mikil aukn­ing hefur átt sér stað í nýskrán­ingum slíkra bíla, en að sögn Sigurðar Inga Frið­leifs­sonar, fram­kvæmda­stjóra Orku­set­urs, má vænta enn frek­ari aukn­ingar á næstu mán­uðum með komu fjölda nýrra raf­bíla­teg­unda, þar á meðal nýjar gerðir af E-Golf og Nissan Leaf. Einnig er beðið eftir raf­bílnum Tesla 3 með mik­illli eft­ir­vænt­ingu, en Kjarninn greindi frá því fyrir stuttu.

[adspot]

Vaxandi hlutdeild

Alls voru 252 tengi­bílar nýskráðir í júní, en það er 186% aukn­ing milli júní­mán­aða 2016 og 2017. Mynd hér að neðan sýnir hvernig þróun nýskráðra tengi­bíla hefur verið frá því árið 2012, en heild­ar­fjöldi á því ári var 17. Til sam­an­burðar voru yfir þús­und tengi­bílar nýskráðir á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2017.

Einnig kom fram í síð­ustu árbók bíl­greina­sam­bands­ins að fleiri öku­menn hyggj­ast kaupa næst raf­magns­bíl en bens­ín­bíl, sam­kvæmt nýrri könnun Gallup. Því má vænta að nýskráðum raf­bílum muni halda áfram að fjölga hratt í fram­tíð­inni.

Rétt er að minn­ast á að heild­ar­fjöldi nýskráðra bíla á Íslandi hafi stór­auk­ist frá árinu 2012 og er það að miklu leyti vegna batn­andi efna­hags­á­stands og upp­gangs bíla­leigu­fyr­ir­tækja fyrir ferða­menn. Hins vegar hefur hlut­deild tengi­bíla í nýskrán­ingum öku­tækja einnig auk­ist jafn og þétt sam­hliða fjölgun bíla í umferð. Það sem af er árs 2017 eru tæp 10% nýskráðra öku­tækja annað hvort raf­magns- eða tvinn­bílar.

Ísland virð­ist standa sig vel í alþjóð­legum sam­an­burði, en sam­kvæmt evr­ópsku sam­tök­unum EAFO er mark­aðs­hlut­deild nýskráðra tengi­bíla á Íslandi næst­stærst í Evrópu. Þó er hlut­deildin meira en fjórum sinnum hærri í Noregi, eða 33% miðað við 8% hér á landi.

Hægt að keyra hringinn fyrir árslok

16 hrað­hleðslu­stöðvar hafa verið reistar af Orku Nátt­úr­unnar (ON), dótt­ur­fé­lag Orku­veitu Reykja­víkur, á síð­ustu árum. Af þessum 16 hafa þrjár þeirra verið reistar það sem af er ári, en til stendur að reisa enn fleiri í við­bót víðs vegar um landið á næstu miss­erum.

Bjarni Már Júl­í­us­son, fram­kvæmda­stjóri ON, segir í sam­tali við Kjarnann að stefnt sé að því að opna hring­veg­inn fyrir raf­bíla fyrir árs­lok. Verk­efnið sé hins vegar ekki ein­ungis í höndum ON, en Orku­sjóður hefur veitt ýmsum fyr­ir­tækjum styrk fyrir upp­bygg­ingu stöðva sem reisa á á 80-100 kíló­metra milli­bili hring­inn í kringum landið.

Uppsettar hleðslustöðvar ON

Á mynd hér að ofan má sjá upp­settar hleðslu­stöðvar ON víðs vegar um landið. Fjöldi nýrra stöðva er vænt­an­legur á þessu ári, meðal ann­ars mun ein rísa á Hvols­velli.

Stöðv­arnar sem ON hyggst reisa um landið eru kall­aðar hlöður, en þær munu inni­halda eina hrað­teng­ingu og eina venju­lega teng­ingu fyrir bíl­ana. Bjarni Már segir kostnað við upp­setn­ingu hverrar stöðvar fara eftir atvikum, en hún sé allt að tíu millj­ónum. Núver­andi verk­efni muni þannig kosta á annan hund­rað millj­óna, en allt að helm­ingur þeirrar upp­hæðar verður greiddur í opin­berum styrkjum frá Orku­sjóði. Sjóð­ur­inn hefur skuld­bundið sig til þess að veita styrk að upp­hæð 67 millj­óna, árlega í þrjú ár, til upp­bygg­ingar á innviðum fyrir raf­bíla.

Að sögn Bjarna Más er upp­setn­ing hlað­ana úti á landi ekki enn orðin arð­bær fjár­fest­ing þar sem notkun þeirra sé lítil. Hins vegar gætu þær hrint af stað jákvæðri hringrás þar sem fleiri muni kaupa raf­bíla vegna auk­ins úrvals hleðslu­stöðva.

Hagkvæmnin eykst

Samkvæmt þings­á­lyktun rík­is­stjórn­ar­innar sem sam­þykkt var fyrir rúmum mán­uði síðan er stefnt að því að hlut­deild end­ur­nýj­an­legrar orku í sam­göngum á Íslandi verði 40% eftir 13 ár, en hlut­deildin er 6% núna. Ef það á að ger­ast þyrfti hag­kvæmni raf­bíla að aukast þannig að fólk sjái sér hag í að kaupa þá.

Ýmsir fjár­hags­legir hvatar eru nú þegar til staðar fyrir neyt­endur til raf­bíla­kaupa. Til dæmis þarf ekki að greiða vöru­gjöld af þeim auk þess sem þeir eru und­an­þegnir virð­is­auka­skatti að hámarki 1,4 millj­ónir króna. Einnig fylgja fríð­indi frá trygg­inga­fé­lög­unum, en eig­endur tengi­bíla greiða jafnan lægri iðgjöld. 

[links]Þrátt fyrir umrædda hvata virð­ast enn vera ljón í veg­inum. Til að mynda hefur verið bent á hversu erfitt það er að koma upp hleðslu­stöð fyrir íbúa í fjöl­býli þar sem innstungur er gjarnan ekki að finna nálægt bíla­stæðum íbú­anna. Hins vegar gæti það breyst á næstu miss­erum, en umhverf­is­ráðu­neytið vinnur nú að því að setja bind­andi ákvæði um tengi­búnað fyrir raf­bíla í bygg­ing­ar­reglu­gerð.

Að lokum er elds­neyt­is­verð bens­ín­bíla ráð­andi þáttur í hvort hag­kvæmt sé að eign­ast bíl sem knú­inn er á annarri orku. Olíuverð á heims­mark­aði hefur verið lágt und­an­farin miss­eri, en lang­tíma­spár benda til þess að raun­virði hennar muni hækka um tæp 60% á næstu þremur árum. Samhliða hækkun olíu­verðs verður hag­kvæmara að kaupa raf­bíl ef raf­magns­verð mun ekki hækka jafn­mikið á sama tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rafbílar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár