Reiknistofa bankanna semur við félag sem var í slitameðferð

Danskt félag sem Reikni­stofa bank­anna hóf sam­starf við fyrir helgi var skráð í slita­með­ferð í fyrra. Til stóð að þjón­ustan yrði sett í gang í haust.

Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Reiknistofu bankanna
Friðrik Þór Snorra­son, for­stjóri Reikni­stofu bank­anna Mynd: Reiknistofa bankanna

Danska fyr­ir­tækið Swipp, sem Reikni­stofa bank­anna hóf sam­starf við fyrir helgi, var tekið í slita­með­ferð í fyrra. Til stendur að þjón­ustan yrði sett í gang í haust.

[links]Vísir greindi frá sam­starfi við Swipp síð­asta fimmtu­dag, en mark­mið þess var að inn­leiða nýja lausn fyrir far­síma­greiðslur hér á landi. Í frétt­inni segir að með lausn­inni sé við­skipta­vinum gert kleift að greiða í versl­unum, milli­færa og inn­heimta greiðslur með notkun sím­ans. Haft var eftir Friðriki Þór Snorra­syni, for­stjóra RB, þar sem hann sagði sam­starfið við Swipp hafa gengið „vonum framar“. Einnig var tekið við­tal við Martin Andersen, for­stjóra Swipp, þar sem hann sagði tækn­ina eiga fullt erindi inn á aðra mark­aði.

[adspot]Ekki virð­ist allt hafa gengið vel hjá fyr­ir­tæk­inu, en það var tekið til slita­með­ferðar í Danmörku í fyrra. Einnig, ef farið er inn á heima­síðu Swipp kemur fram að fyr­ir­tækið hafi hætt starf­semi sinni í febr­úar og allir við­skipta­vinir þess hafi færst yfir í annað fyr­ir­tæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár