Ísland vann Króatíu með marki á lokamínútunni

Ísland vann loks­ins Króatíu með marki á lokamín­útu venju­legs leik­tíma fyrir framan troð­fullan Laug­ar­dals­völl.

Hörður Björgvin Magnússon skoraði mark Íslands.
Hörður Björgvin Magn­ús­son skor­aði mark Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ísland vann Króatíu á Laug­ar­dals­velli í kvöld 1-0 með marki Harðar Björg­vins Magn­ús­sonar á síð­ustu mín­útu leiks­ins. Um var að ræða sjötta leik beggja liða í und­ankeppni fyrir heims­meist­ar­mótið í knatt­spyrnu sem fer fram í Rúss­landi á næsta ári. Eftir leik­inn eru Króatar í efsta sæti rið­ils­ins með 13 stig en Ísland er í öðru sæt­inu með jafn mörg stig en lak­ari marka­tölu. Næsti leikur Íslands er gegn Finnum úti 2. sept­em­ber.

Veðrið gott og Laug­ar­dals­völlur auð­vitað troð­fullur. Þótt mælir­inn sýndi 16 gráður var hins vegar að venju skít­kalt í stærri stúkunni, enda skuggi yfir henni. En kaffið í blaða­manna­stúkunni var enn jafn dásam­lega vont og veit­ing­arnar að mestu búnar þegar leið að leik, þannig að það var óhjá­kvæmi­legt að spara sér þau maga­vand­ræði.

Það er auð­vitað hell­ings­saga milli þjóð­anna tveggja á und­an­förnum árum. Króatar unnu Ísland í umspili um sæti á síð­ustu heims­meist­ara­keppni með því að sigra heima­leik sinn 2-0, eftir marka­laust jafn­tefli á Laug­ar­dals­velli. Um miðjan nóv­em­ber 2016 mætt­ust liðin svo í fyrri leik sínum í yfir­stand­andi und­ankeppni. Króatía vann þann leik 2-0. Ísland lék án nokk­urra reglu­legra byrj­un­ar­liðs­manna í þeim leik. Fram­herj­arnir Kol­beinn Sig­þórs­son og Alfreð Finn­boga­son voru ekki með vegna meiðsla, eins og miðju­mað­ur­inn Emil Hall­freðs­son. Ari Freyr Skúla­son, vinstri bak­vörð­ur, spil­aði heldur ekki en hann glímdi við sýk­ingu í fæti.

Liðið nú var heil­legra, þótt Kolbeinn sé enn frá vegna meiðsla. Alfreð var með og bæði Birkir Bjarna­son og Jóhann Berg Guð­munds­son, sem glímt hafa við meiðsli eftir ára­mót, voru á sínum stað í byrj­un­ar­lið­inu. Það vakti hins vegar athygli að Ari Freyr byrj­aði ekki leik­inn, þrátt fyrir að vera leik­fær. Í hans stað byrj­aði Hörður Björgvin Magn­ús­son í vinstri bak­verð­inum. Þá spil­aði Gylfi Sig­urðs­son í fremstu víg­línu en ekki á miðj­unni líkt og hann er vanur. Þess í stað lék Emil Hall­freðs­son, sem hefur leikið mjög vel fyrir Udinese í efstu deild á Ítalíu, á mið­svæð­inu ásamt Aroni Einari Gunn­ars­syni. Vörnin var að öðru leyti hefð­bundin, þ.e. fyrir utan fjar­veru Ara Freys.

Fyrir leik­inn voru liðin tvö í efstu sætum I-rið­ils. Króatía á toppnum með 13 stig en Íslands í öðru sæti með 10 stig. Úkraína kom sér reyndar einu stigi fyrir ofan Ísland með 1-2 úti­sigri á Finnum fyrr í dag, en þá aug­ljós­lega með einum leik meira leiknum.

Pressað, hægt á og loksins skorað

Ísland byrj­aði með látum og press­aði Króata fram­ar­lega á vell­inum. Emil Hall­freðs­son fór mik­inn og náði að hleypa lífi í stúk­una með hálf­færi og svo kröft­ugu hlaupi upp kant­inn. Hvorugt skil­aði þó neinu.

Fátt annað mark­vert gerð­ist framan af fyrri hálf­leik. Íslend­ingar voru betri og héldu bolta vel. Liðið press­aði annað veifið og gerði það með miklum sóma. Þess á milli hægði liðið á leiknum þegar hent­aði. Báðar þessar áherslur virt­ust henta Króötum illa.

Gylfi átti tvær hættu­legar auka­spyrnur þegar leið á hálf­leik­inn. Hann skaut úr annarri og bolt­inn fór rétt fram hjá. Hin flaut glæsi­lega inn á svæðið milli mark­varðar og varnar en ein­hvern veg­inn náði eng­inn íslensku leik­mann­anna sem voru í hlaupum að tengja.

Seinni hálf­leikur hófst í takt við þann fyrri, Ísland með frum­kvæðið en lítil mark­verð hætta sem skap­að­ist við hvor­ugt markið. Það breytt­ist á 55 mín­útu þegar Perisic áttu hættu­lega fyr­ir­gjöf sem mætt var á mark­teig af Kalinic en bolt­inn fór rétt fram hjá. Íslend­ingar brun­uðu upp völl­inn og Birkir Bjarna­son átti lík­lega hættu­leg­asta skot liðs­ins fram til þessa, en það fór líka rétt fram hjá.

Leik­ur­inn breytti aðeins um takt þegar líða tók á síð­ari hálf­leik og Króatar fóru að taka meira og meira yfir sam­hliða því að íslenska liðið varð þreytt­ara. Á 66 mín­útu áttu þeir hættu­legt lang­skot sem Hannes Þór Hall­dórs­son þurfti að hafa sig allan við til að verja.

Við tók hræði­legur, eða dásam­legur, kafli þar sem ekk­ert gekk á báða bóga. Mikið af háum og löngum boltum, mis­heppn­uðum send­ingum og tæpum tæk­lingum. Ísland átti svo góða skynd­i­sókn á 79 mín­útu en Gylfi skaut yfir úr þröngu færi eftir að hafa verið tíaður upp af Jóhann Berg Guð­munds­syni. Gylfi átti annað ágæt­is­færi undir lok leiks en inn vildi bolt­inn ekki. Jóhann Berg fékk dauða­færi undir lok leiks sem mark­vörður Króata varði í horn. Úr horn­inu skor­aði svo Hörður Björgvin Magn­ús­son, af öllum mönnum, sig­ur­markið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár