70% á móti áfengisfrumvarpinu

Meiri­hluti lands­manna er á móti frum­varpi sem heim­ilar áfengi í búðir. Meiri and­staða meðal kvenna en karla, og hún eykst eftir aldri. Fólk á aldr­inum 18 til 29 er að meiri­hluta til fylgj­andi frum­varp­inu.

Tæplega sjö af hverjum tíu Íslend­ingum eru mót­fallnir frum­varpi um sölu á áfengi í versl­unum, sam­kvæmt nýrri könnun sem gerð var af Rúnari Vil­hjálms­syni pró­fessor við HÍ með Félags­vís­inda­stofnun HÍ. BSRB styrkti rann­sókn­ina og greinir frá þessu.

69,2 pró­sent aðspurðra voru á móti því að frum­varpið, sem nú er til með­ferðar á Alþingi, verði að lögum. 30,8 pró­sent aðspurðra voru því fylgj­andi. Mest er and­staðan við frum­varpið meðal stuðn­ings­fólks Vinstri grænna, 88,8 pró­sent. 82,6 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar eru á móti frum­varp­inu og 77,8 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Meiri­hluti stuðn­ings­manna allra flokka eru á móti frum­varp­inu. And­staðan er 54,4% hjá kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks, 54,8% hjá kjós­endum Við­reisnar og 56,8% hjá kjós­endum Bjartrar fram­tíðar. Þá eru 58,4% kjós­enda Pírata and­vígir því að frum­varpið nái fram að ganga.

Meiri and­staða er við frum­varpið meðal kvenna en karla. Næstum því fjórar af hverjum fimm konum, eða 77,8 pró­sent, eru á móti frum­varp­inu, en um þrír af hverjum fimm körlum, eða 60,6%.

And­staðan við frum­varpið eykst með hækk­andi aldri, en í einum ald­urs­hópi er meiri­hluti fylgj­andi því að frum­varpið nái fram að ganga. Það er meðal fólks á aldr­inum 18 til 29 ára, þar sem 53,7 pró­sent svar­enda eru fylgj­andi frum­varp­inu.

Meiri and­staða er á lands­byggð­inni en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 74% miðað við 66,5% á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar segir að mik­ill meiri­hluti lands­manna sé and­vígur frum­varp­inu, og nið­ur­stöð­urnar séu svip­aðar fyrri könn­unum um sama efni. Þá megi geta þess að allir helstu fag­að­ilar og stofn­anir á þessu sviði hafi lagst gegn frum­varp­inu. „Það vekur því nokkra furðu að tíma Alþingis sé varið í umfjöllun um mál af þessu tagi þing eftir þing. Vandséð er að flutn­ings­menn gangi erinda almenn­ings eða sam­fé­lags í mála­rekstri sínum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár