Lyf og heilsa færð til sonar Karls Wernerssonar

Lyfja­fyr­ir­tækið Lyf og heilsa var í eigu Karls Wernerssonar, en dag­inn eftir að hann var dæmdur í Hæsta­rétti var nýjum árs­reikn­ingi skilað og rúm­lega tví­tugur sonur hans orð­inn eig­andi.

Karl Wernerson
Karl Wernerson Mynd: Tryggvi Aðalbjörnsson

Lyfja­fyr­ir­tækið Lyf og heilsa er ekki lengur í eigu Karls Wernerssonar, heldur hefur rúm­lega tví­tugur sonur hans eign­ast fyr­ir­tækið og aðrar eignir í móð­ur­fé­lagi þess. Þetta gerð­ist dag­inn eftir að Karl var dæmdur í fang­elsi í Hæsta­rétti. RÚV greinir frá þessu.

Karl var einn umsvifa­mesti fjár­festir lands­ins fyrir hrun í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Milestone, sem hann átti með systk­inum sínum. Milestone átti Lyf og heilsu auk stórra hluta í Sjóvá og Glitni, en félagið varð gjald­þrota 2009. Nokkrum mán­uðum fyrir hrun var Lyf og heilsa selt úr sam­steyp­unni. Enn er í gangi dóms­mál vegna þess, en lög­maður þrota­bús Milestone segir að til­gang­ur­inn með söl­unni hafi verið að koma fyr­ir­tæk­inu undan gjald­þrot­inu.

Þegar fyr­ir­tækið var selt út úr Milestone varð Karl eini eig­and­inn og fram­kvæmda­stjóri. Í fyrra dæmdi Hæsti­réttur hann í þriggja og hálfs árs fang­elsi fyrir efna­hags­brot og hann varð að hætta sem fram­kvæmda­stjóri.

Daginn eftir dóm­inn var nýjum og leið­réttum árs­reikn­ingi fyrir móð­ur­fé­lag Lyfja og heilsu skilað til árs­reikn­inga­skrár. Félagið heitir Faxar ehf., en það er í eigu ann­ars félag sem heitir Faxi ehf. Faxi ehf. er svo í eigu félags­ins Toska ehf.

Karl hafði verið skráður eig­andi þegar árs­reikn­ingi fyrir árið 2014 var skilað inn í nóv­em­ber 2015. Í apríl 2016 var leið­réttum árs­reikn­ingi skilað inn, og þar kom fram að í árs­lok 2014 hefði sonur Karls, Jón Hilmar, verið 100% eig­andi.

Inni í félag­inu eru yfir þrjá­tíu fast­eignir, þar á meðal heim­ili Karls, og bílar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár