Már: Vaxandi áhyggjur af stöðu mála á fasteignamarkaði

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri fór ítar­lega yfir sviðið og stöðu mála í efna­hags­málum á aðal­fundi Seðla­banka Íslands.

Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son, Seðla­banka­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Már Guð­munds­son sagði í ítar­legri ræðu sinni á 56. árs­fundi Seðla­banka Íslands í dag, að svo kynni að fara að „til­tæk þjóð­hags­var­úð­ar­tæki yrðu virkjuð“ til að draga úr áhættu sem væri farin að mynd­ast á fast­eigna­mark­aði.

Verðið rýkur upp

Fast­eigna­verð hefur rokið upp að und­an­förnu en á síð­ustu tólf mán­uðu hefur það hækkað um 18,6 pró­sent. Ein meg­in­á­stæðan er sú að mikil vöntun er á íbúðum inn á markað, en Þjóðskrá hefur nefnt að um átta þús­und íbúðir vanti, eða sem nemur um fjór­faldri árlegri þörf í venju­legu árferði, sé horft til fólks­fjölg­unar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Samhliða mik­illi kaup­mátt­ar­aukn­ingu almenn­ings, meðal ann­ars vegna launa­hækk­ana á tíma lágrar verð­bólgu, hefur fast­eigna­verðið hækkað hratt og eft­ir­spurn auk­ist jafnt og þétt á síð­ustu mán­uðum. Þá hefur mik­ill vöxtur í ferða­þjón­ustu einnig aukið eft­ir­spurn eftir íbúðum, en eins og áður segir, þá eru nú uppi aðstæður þar sem er sár vöntun eftir eignum á markað.

Mikil upp­bygg­ing er nú að eiga sér stað og hafa sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sagt, að jafn­vægi ætti að nást á mark­aðnum á næstu þremur til fjórum árum, ef öll áform ganga eftir. „Því er ekki að leyna að vax­andi áhyggjur eru af aðstæðum á fast­eigna­mark­aði og til þess kann að koma á næst­unni að til­tæk þjóð­hags­var­úð­ar­tæki verði virkjuð til að draga úr áhættu sem teng­ist þeim,“ sagði Már meðal ann­ars í ræðu sinni. Ekki var þó nánar útli­stað í ræð­unni, hvaða var­úð­ar­tæki það væru sem hægt væri að grípa til, en vitnað til þess að í útgáfu Fjár­mála­stöð­ug­leika, rits Seðla­bank­ans, yrði fjallað ítar­lega um áhættu í fjár­mála­kerf­inu. Ritið kemur næst út í næstu viku.

Grípa tækifærin

Hann sagði stöðu efna­hags­mála hafa gjör­breyst á und­an­förnu ári til hins betra. Þrátt fyrir mik­inn hag­vöxt í fyrra, sem var 7,2 pró­sent, hafi tek­ist að halda verð­bólgu í skefjum og mikil spennan væri í hag­kerf­inu. Innviðir væru hins vegar mun sterk­ari en þeir voru áður en hremm­ing­arnar gengu yfir í kringum hrun fjár­mála­kerf­is­ins. Þau skref sem hefðu verið stigin í átt að losun fjár­magns­hafta hefðu gengið vel, og nú var íslenskt hag­kerfi um margt á tíma­mótum.

„Uppgjöri vegna fjár­málakrepp­unnar er að lang­mestu leyti lokið. Við göngum nú á vit nýrra tíma óheftra fjár­magns­hreyf­inga. Í því fel­ast bæði tæki­færi og áhætta. Við þurfum að grípa tæki­færin, greina áhætt­una og grípa til við­eig­andi ráð­staf­ana. Seðla­bank­inn mun eftir bestu getu stuðla að því að svo verði þar sem hann á hlut að máli,“ sagði Már.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár