Elstu og tekjuhæstu Íslendingarnir telja sig heilbrigðasta

Samkvæmt nýrri heil­brigðiskönnun Gallup telja elstu og tekju­hæstu Íslend­ing­arnir sig vera heil­brigð­asta. Tekju­lágir og lág­mennt­aðir telja sig stunda mesta erf­ið­is­vinnu. Þá virð­ist fólk óham­ingju­sam­ast á Vest­fjörðum og Aust­ur­landi, en sviðs­stjóri hjá Gallup segir þó þörf á að gera nán­ari rann­sóknir á hverjum lands­hluta fyrir sig til þess að unnt sé að full­yrða nánar um það.

Elstu og tekjuhæstu Íslendingarnir telja sig heilbrigðasta

Lands­menn  á aldr­inum 35–44 ára telja sig minnst heil­brigða og fólk á aldr­inum 65 ára og eldri telur sig mest heil­brigt. Þegar lands­menn bera heilsu sína saman við fólk á sínum eigin aldri telur fólk á aldr­inum 25–34 ára og 35–44 ára sig minnst sam­an­burð­ar­hæft, en fólk á aldr­inum 65 ára og eldri mest sam­an­burð­ar­hæft.

Íslend­ingar með grunn­skóla­próf telja sig minnst heil­brigða og fólk með háskóla­próf telur sig mest heil­brigt. Þegar lands­menn bera heilsu sína saman við fólk á sínum eigin aldri fæst sama nið­ur­staða.

Tekjulágir lifa við minnst heilbrigði

Fólk í lægsta tekju­þrep­inu, með 400 þús­und króna fjöl­skyldu­tekjur eða minna, telur sig minnst heil­brigt og fólk í hæsta tekju­þrep­inu, með fjöl­skyldu­tekjur upp á 1.250.000 krónur eða hærri á mán­uði, telur sig mest heil­brigt. Þegar fólk ber heilsu sína saman við fólk á sínum eigin aldri er það sama uppi á ten­ingnum.

Elstu og tekju­hæstu Íslend­ing­arnir skora því hæst hvað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár