Kári: Völd gera flokkana alla eins

Kári Stef­áns­son segir ein­ungis mun á stjórn­mála­flokkum þegar þeir eru í stjórn­ar­and­stöðu. Hann segir Pírata ekki hafa neina póli­tíska hug­mynda­fræði. Fjár­mála­ráð­herra eigi að leggja fram fjár­auka­laga­frum­varp til að bjarga heil­brigð­is­kerf­inu í ágúst.

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, vill að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra leggi fram frum­varp til fjár­auka­laga í ágúst til að losa sjúk­linga undar greiðslu­þátt­töku, efl Land­spít­al­ann og end­ur­reisa heilsu­gæsl­una. Allir þing­menn ættu að greiða frum­varp­inu atkvæði og sýna þannig að þeir þjóni þjóð­inni sem vill að þetta ger­ist.

Segir ríkisstjórn Jóhönnu hafa holað kerfið

Kári segir mun á stjórn­mála­flokkum virð­ast ein­ungis vera til staðar þegar þeir eru í stjórn­ar­and­stöðu. „Þegar þeir eru komnir í stjórn eru þeir allir eins án til­lits til hægri eða vinstri, upp eða niður, himna­ríkis eða hel­vítis,“ segir Kári Stef­áns­son í stöðu­færslu sinni á Facebook í morgun.

„En það er bara þannig með þessar póli­tísku hug­mynda­fræðir að þær virð­ast vera vita­gagns­laust drasl þeim sem eru komnir á valda­stóla og veitir okkur kjós­endum litla inn­sýn í það sem þeir kynnu að gera sem við viljum koma þangað,“ skrifar hann og bætir við að rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna, end­an­lega hafa losað hann við þá tál­sýn að póli­tísk hug­mynda­fræði hafi for­spár­gildi um það hvernig stjórn­mála­menn hagi sér á valda­stólum.

„Þegar í harð­bakk­ann sló hol­aði hún vel­ferð­ar­kerfið að innan, lét utan­rík­is­þjón­ust­una í friði, reisti Hörpu (að vísu vildi Katrín Jak­obs­dóttir láta mála vinstri hlið­ina á henni græna en það gleymd­ist) og byrj­aði að bora gat í gegnum Vaðla­heið­ina. Þetta var fyrsta hrein­rækt­aða félags­hyggju­rík­is­stjórnin í sögu lýð­veld­is­ins?“

Hann gerir grín að stjórn­mála­mönnum sem eru að und­ir­búa kosn­inga­bar­áttu og segir flesta flokk­ana nú virð­ast vera að stað­setja sig vinstra megin við þann stað sem þeir voru á fyrir síð­ustu kosn­ingar. Hann nefnir þar sér­stak­lega Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og orð hans í við­tali við Morg­un­blaðið á dög­unum þegar hann sagði að tími væri kom­inn til að efla frekar inn­viði sam­fé­lags­ins og vel­ferð­ar­kerfið. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi aldrei lofað neinu, en nú sé hann komin í slíka aðstöðu með orðum Bjarna, en sé jafn­framt í aðstöðu til að svíkja eins og síð­asta rík­is­stjórn.

Píratar hafa enga pólitíska hugmyndafræði að hunsa

Kári hvetur fólk til þess að ganga til kosn­inga með svolitla gleði í hjarta og greiða atkvæði með þeim flokki sem það hefur minnsta fyr­ir­litn­ingu á.

„Ef þetta ger­ist ekki er hætta á því að við kjósum öll Píratana vegna þess að þeir hafa í raun réttri enga póli­tíska hug­mynda­fræði að hunsa, hafa ekki haft tæki­færi til þess að svíkja lof­orð og þótt þeir séu harla lítið sem ekki neitt eru þeir býsna hip og kúl. Það er nefni­lega þannig að óplægður akur í hraun­grýti getur verið svo miklu meira aðlað­andi en ill­gresið í garð­inum heima.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár