Útlán lífeyrissjóðanna til heimila margfaldast

Líf­eyr­is­sjóð­irnir lán­uðu íslenskum heim­ilum tæp­lega fjöru­tíu millj­arða á fyrri helm­ingi árs­ins. Á sama tíma í fyrra námu lánin tæpum fimm millj­örðum. Langstærsti hlut­inn eru verð­tryggð lán.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir lán­uðu rúm­lega 38 millj­arða króna til íslenskra heim­ila á fyrri helm­ingi árs­ins, sam­kvæmt nýjum tölum frá Seðla­banka Íslands. Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa aukið hlut­deild sína á íbúða­lána­mark­aði veru­lega und­an­farin miss­eri, eftir að nokkrir stórir líf­eyr­is­sjóðir hófu að bjóða allt að 75% íbúða­lán og óverð­tryggð lán. 

Til sam­an­burðar námu lán líf­eyr­is­sjóð­anna til heim­ila rétt tæp­lega fimm millj­örðum króna á sama tíma­bili í fyrra, áður en líf­eyr­is­sjóð­irnir hófu í raun þessa inn­reið sína á íbúða­lána­mark­að­inn. Á seinni helm­ingi árs­ins 2015 voru veitt lán fyrir 16,7 millj­arða króna, og útlánin hafa hækkað jafnt og þétt. Hér að neðan má sjá þróun útlána líf­eyr­is­sjóð­anna frá upp­hafi árs 2014.

Samkvæmt nýj­ustu töl­unum um útlán líf­eyr­is­sjóð­anna til heim­ila, sem eru bráða­birgða­tölur fyrir júní-mánuð, lán­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir heim­ilum 7,4 millj­arða króna í júní. Svipuð upp­hæð var lánuð til heim­ila í maí, en það sem af er árinu var mest lánað í apríl, átta millj­arðar króna.

Fjöldi nýrra útlána hjá líf­eyr­is­sjóð­unum nálg­ast 2500 á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Með­al­tals­upp­hæð lána er því um 15,6 millj­ónir króna.

Hlut­deild verð­tryggðra lána er mun meiri en óverð­tryggðra. Verð­tryggð lán á fyrri helm­ingi árs­ins námu ríf­lega 28 millj­örðum króna en óverð­tryggð rúm­lega 10 millj­örðum. 1817 ný verð­tryggð lán voru veitt heim­ilum á fyrri hluta árs­ins en 648 óverð­tryggð, sam­tals 2465 ný lán.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár