Bjarni: Ekkert sem kemur í veg fyrir kosningar í október

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins seg­ist ekki sjá neitt sem ætti að koma í veg fyrir að kosið verði seint í októ­ber. Þetta kom fram í við­tali RÚV við Bjarna, þegar hann var á leið á rík­is­ráðs­fund á Bessa­stöðum.

„Þegar við end­ur­nýj­uðum sam­starf flokk­anna urðu breyt­ingar í rík­is­stjórn­inni og við boð­uðum á sama tíma að við ætl­uðum að ljúka ákveðnum verk­efnum og ganga svo til kosn­inga. Ég sé ekki neitt hafa breyst í þeim efnum og sé í sjálfu sér ekk­ert sem ætti að koma í veg fyrir að við kjósum seint í októ­ber, sem er dag­setn­ing sem nefnd hefur verið oft í þessu sam­bandi,“ sagði Bjarni. Hann segir að það sé mik­il­vægt að ekki sé mik­ill hringl­anda­háttur með kosn­ingar, og ákveða verði kjör­dag sem fyrst.

Þegar hann var spurður hvort það væri eng­inn efi í hans huga um að kosið verði í haust sagði Bjarni: „Ég veit ekki hversu oft ég á að svara þess­ari spurn­ingu þannig að menn heyri það sem ég er að segja. Þetta er bara svona: Þetta stjórn­ar­sam­starf var end­ur­nýjað á þessum for­sendum og það hafa engar for­sendur breyst.“

Þetta gengur þvert á það sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur sagt um kosn­ing­arnar. Hann hefur sagt ótíma­bært að ákveða kjör­dag og vill að ekki sé kosið fyrr en í vor.

Bjarni segir þetta sjón­ar­mið Sig­mundar Davíðs ekk­ert nýtt. „Það má alveg segja að það séu gild rök fyrir því að rík­is­stjórnin eigi að starfa út kjör­tíma­bilið. En það komu upp aðstæður og við brugð­umst við þeim með þessum hætti. Það hefur ekk­ert breyst í neinum for­sendum hvað það snertir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár