Mikill launamunur kynja í stjórnunarstöðum

Karlar eru bæði miklu fleiri í stjórn­un­ar­stöðum og hafa mun hærri tekjur en konur, sam­kvæmt úttekt Frjálsrar versl­unar, sem gaf í morgun út sitt árlega tekju­blað.

Veru­legur munur er á launum karla og kvenna meðal for­stjóra, milli­stjórn­enda og starfs­manna í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Þetta stafar meðal ann­ars af því að miklu færri konur eru í stöðum æðstu stjórn­enda í stór­fyr­ir­tækjum.

Í úttekt Frjálsrar versl­unar, sem tekið skal fram að er ekki tæm­andi, kemur fram að laun 450 for­stjóra hafi verið skoðuð. Þar af voru 376 karlar og 74 konur. Konurnar höfðu að með­al­tali 1.423 þús­und krónur í laun á meðan karlar höfðu að með­al­tali 2.238 þús­und krónur á mán­uði. Það þýðir að kon­urnar höfðu að með­al­tali tæp­lega 64 pró­sent af með­al­launum karl­anna.

Hjá milli­stjórn­endum voru 600 í úrtak­inu, 417 karlar og 183 konur. Konurnar höfðu að með­al­tali 1.320 þús­und krónur á mán­uði en karl­arnir 1.670 þús­und krónur. Það sam­svarar því að kon­urnar séu að með­al­tali með 79 pró­sent launa karl­anna.

Í flokki starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja voru 340 í úrtak­inu, 85 konur og 255 karlar. Konurnar eru að með­al­tali með tæp­lega 72% af launum karl­anna, eða að með­al­tali 1.523 þús­und krónur í mán­að­ar­laun á meðan karl­arnir eru að með­al­tali með 2.116 þús­und krónur í laun.

Ein kona fyrir hverja níu karla

Kjarninn hefur und­an­farin þrjú ár tekið saman upp­lýs­ingar um karla og konur í stjórn­un­ar­stöðum í efstu lögum íslenska fjár­mála­geirans. Á þessu ári er staðan þannig að fyrir hverja níu karla sem stýra pen­ingum á Íslandi er aðeins ein kona. Kjarninn skoð­aði stöðun hjá æðstu stjórn­endum við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, félaga á leið á markað, óskráðra trygg­inga­fé­laga, lána­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja og -miðl­ana, fram­taks­sjóða, orku­fyr­ir­tækja, greiðslu­stofn­anna, Kaup­hallar og íbúða­lána­sjóða.

Störfin sem um ræðir eru 92 tals­ins. Í þeim sitja 85 karlar en sjö konur. Því eru um 92 pró­sent allra þeirra sem stýra pen­ing­unum í íslensku sam­fé­lagi karlar. Og það hlut­fall hefur nán­ast ekk­ert breyst á und­an­förnum þremur árum.

Ein kona stýrir banka á Íslandi og ein spari­­­sjóði. Ein kona stýr­ir lána­­fyr­ir­tæki, tvær líf­eyr­is­­sjóð­um, ein Fram­taks­­sjóð­i Ís­lands, og einu skráðu félagi á mark­aði er stýrt af kon­u. Þetta þýðir meðal ann­­ars að engu verð­bréfa­­fyr­ir­tæki er stýrt af konu og engu orku­­fyr­ir­tæki eða óskráðu trygg­inga­­fé­lagi. Sex ­konur eru stjórn­­­ar­­for­­menn í skráðum fyr­ir­tækjum og tíu karl­­ar. Svo er for­­stjóri Kaup­hall­­ar­innar karl, það eru líka seðla­­banka­­stjóri, að­­stoð­­ar­­seðla­­banka­­stjóri og aðal­­hag­fræð­ingur Seðla­­bank­ans.

Þrátt fyrir að lög séu í gildi um að hlut­­föll hvors kyns í stjórnum fyr­ir­tækja með fleiri en 50 starfs­­menn væri að minnsta kosti 40 pró­­sent er það langt frá því að vera til­­­fellið. Í annarri sam­an­­tekt Kjarn­ans kom fram að af 982 stjórn­­­ar­­mönnum í 270 stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins væru 665 karlar og 317 kon­­ur. Það þýðir 32% konur og 68% karl­­ar. Dæmi­­gerður stjórn­­­ar­­maður í íslensku atvinn­u­­lífi er karl­­maður á sex­tugs­aldri. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár