Karl Garðarsson segir Framsóknarflokkinn vera „óvin nr.1“ hjá RÚV

Karl Garð­ars­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi frétta­stjóri á Stöð 2, segir að Rík­is­út­varpið standi fyrir her­ferð gegn for­sæt­is­ráð­herra. „Rík­is­út­varpið hefur loks­ins fellt grímuna. Hún er ófögur ásjónan sem við blasir. Óvinur nr. 1 er fund­inn í Fram­sókn­ar­flokknum.“

Karl fjallar um fréttaum­fjöllun RÚV um mál­efni Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur konu hans, en í ljós hefur komið að Anna Sig­ur­laug á aflands­fé­lag á Tortóla sem heldur utan um eignir hennar. Félagið átti kröfur í þrotabú allra föllnu bank­anna upp á hálfan millj­arð króna. Sig­mundur Davíð var með­eig­andi í félag­inu um tíma, að sögn Önnu Sig­ur­laugar var það gert fyrir mis­tök bank­ans.

Karl segir í grein sinni á Eyjunni að öll lög­mál um hlut­lægni hafi látið undan í umfjöllun RÚV. „Í Kast­ljósi lék lausum hala Jón Ólafsson, sem stjórn­aði innra umbóta­starfi Sam­fylk­ing­ar­innar eftir hrun og hefur verið óspar á nei­kvæðu lýs­ing­ar­orðin um Sigmund Davíð síðan sá síð­ar­nefndi tók af honum for­mennsku í siða­nefnd stjórn­ar­ráðs­ins, bit­lingnum sem hann fékk í tíð fyrri rík­is­stjórnar.“ Þá hafi verið kall­aðir til Jóhann Hauksson, fyrrum upp­lýs­inga­full­trúi Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, og Jóhann Páll Jóhanns­son, blaða­maður á Stund­inni, „sem hefur skrifað ótal greinar um Sigmund og Framsókn, þar sem hatri og fyr­ir­litn­ingu á flokknum hefur verið sáð.“

Hann tekur fleiri dæmi um við­mæl­endur RÚV sem hann telur ljóst að hati ýmist Sigmund Davíð eða Fram­sókn­ar­flokk­inn.

„Allt er þetta bull­andi hlut­dræga fólk er bara kynnt sem hlut­lausir álits­gjafar í frétta­flutn­ingi Rík­is­út­varps­ins, í spjalli um fréttir vik­unnar og vanga­veltum í morg­un­út­varpi.“

Karl segir einnig að Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, gangi „nær af göfl­unum í því heilaga stríði gegn Sigmundi, leið­rétt­ing­unni og Fram­sókn­ar­flokknum, sem hann hefur háð frá því hann skrif­aði um Óvin númer 1 fyrir kosn­ingar 2013.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár