Húsasmiðjan lækkar verð á byggingavörum um 20 prósent

Húsa­smiðjan hefur ákveðið að lækka lista­verð á bygg­inga­vörum eins og timbri, plötum, ein­angrun, steypu­stáli, skrúfum og fest­ingum um 20 pró­sent. Í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu segir að lækk­un­inni sé meðal ann­ars náð með því að ein­falda afslátt­ar­kerfi Húsa­smiðj­unnar. Áfram verði veittir afslættir til magn­kaupa en dregið verði úr öllum öðrum afsláttum. Því sé verð­listi fyr­ir­tæk­is­ins orðin gegn­særri sem sé í takt við að sem yngri kyn­slóðir neyt­enda vilja. Þ.e. að verðið sem gefið sé upp sé raun­verðið. Samhliða hefur Húsa­smiðjan tekið upp nýtt slag­orð, „Byggjum á betra verði“.

Í til­kynn­ingu Húsa­smiðj­unnar segir að með lækk­un­inni sé fyr­ir­tækið að taka á sig nokkuð mikið tekju­tap. Stjórn­endur hennar telji hins vegar að gegn­særra verð muni auka við­skipti við almenn­ing og sam­hliða muni þessi lækkun stuðla að lækkun bygg­inga­kostn­aðar. Fyr­ir­tækið telur sig einnig vera að leggja lóð á voga­skálar bar­áttu gegn verð­bólgu og óæski­legum þenslu­á­hrifum.

Árni Stef­áns­son, for­stjóri Húsa­smiðj­unnar, segir breyt­ing­una vera mikil tíð­indi á bygg­inga­mark­aði. „Þessi breyt­ing mun kosta okkur tölu­verðar fjár­hæðir en með gegn­sæjum verð­lista og lægra almennu verði erum við bjart­sýn á að við fáum það til baka í formi auk­inna við­skipta. Breyt­ingin er komin til vegna þrýst­ings frá neyt­endum en afgreiðslu­fólkið í versl­unum okkar hefur greint okkur frá breyttu við­horfi við­skipta­vina til afslátta. Fólk leitar síður til­boða. Það vill geta treyst því að verðið á hill­unni og á net­inu sé lægsta mögu­lega verð. Kaupirðu mikið af okkur, eins og margir fag­menn og ein­stak­lingar í stærri fram­kvæmdum, þá er eðli­legt að fá ein­hvern afslátt en að öðru leyti munu við­skipta­vinir nú sitja við sama borð. Það hjálpar okkur að taka þessa ákvörðun að geng­is­þróun hefur verið hag­stæð und­an­farið en á móti kemur þó að nýir kjara­samn­ingar eru fyr­ir­tæk­inu dýrir. Við treystum því að þessi jákvæða aðgerð hvetji fólk til fram­kvæmda og auð­veldi neyt­endum að byggja á betra verði um allt land.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár