Kári biður Sigmund Davíð afsökunar á því að hafa kallað hann tveggja ára offitusjúkling

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, hefur beðið Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra afsök­unar á því að hafa kallað hann lít­inn tveggja ára offitu­sjúk­ling. Það gerði Kári í við­tali við blaðið Reykja­vík Grapevine sem kom út í gær. Þetta kom fram í við­tali við Kára í Viku­lok­unum á Rás 1. „Þessi skítur á minni ábyrgð. Þessa lotu vann for­sæt­is­ráð­herra 10-0."

Kári sagð­ist svo sann­ar­lega skulda Sigmundi Davíð afsök­un­ar­beiðni vegna ummæl­ana, sem hefðu ekki komið út í við­tal­inu eins og hann ætl­aði. Hann hafi verið að segja frá því að einn kollega hans hjá Íslenskri erfða­grein­ingu hefði sagt við sig að hann og Sig­mundur Davíð væru eins og tveir litlir strákar að ríf­ast um leik­fang í þeirri umræðu sem átt hefur sér stað þeirra á milli að und­an­förnu. Það ætti ekki að draga það mik­il­væga mál­efni sem umræða um aukin fram­lög til heil­brigð­is­mála eru niður á það stig að gagn­rýna lík­am­legt atgervi manna. Kári sagði að sér fynd­ist Sig­mundur Davíð skemmti­legur, skýr, dýnamískur og glæsi­legur maður.

Kári og Sig­mundur Davíð hafa tek­ist nokkuð harka­lega á opin­ber­lega und­an­farnar vikur vegna fram­laga til heil­brigð­is­kerf­is­ins. Kári setti í gang und­ir­skrifta­söfnun í jan­úar þar sem farið var fram á að stjórn­völd myndu leggja ell­efu pró­sent af lands­fram­leiðslu í heil­brigð­is­mál. Alls hafa 57 þús­und manns skrifað undir áskor­un­ina.

Kári er þeirrar skoð­unar að þetta sé ekki nægj­an­legur hópur til að hafa áhrif á ákvörð­un­ar­töku Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sig­mundar Davíðs um fram­lag til heil­brigð­is­mála. Hann segir stjórn­völd hafa sent und­ir­skrifta­söfn­un­inni fing­ur­inn og það hefði því miður þurft meira til að hreyfa við þeim. Und­ir­skrifta­söfn­unin verður opin út næstu viku en verður síðan hætt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár