Kári Stefánsson segir ekkert að marka ríkisstjórnina

Það er ekk­ert að marka það sem núver­andi rík­is­stjórn segir um að hlúa að heil­brigð­is­kerf­inu og það sama má segja um margar þeirra sem á undan henni hafa setið. Rík­is­stjórnin segir einn dag­inn að ekki sé til fé til að setja 2,5 millj­arða króna í heil­brigð­is­kerfið en til­kynnir nokkrum dögum seinna að afgangur af rík­is­rekstri verði 300 millj­arðar króna. Þetta segir Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, í

aðsendri grein í Morg­un­blað­inu

í morgun.

Kári hrinti fyrir nokkru af stað und­ir­skrifta­söfnun þar sem hann hvetur Íslend­inga til þess að styðja kröfu sína um að ell­efu pró­sentum af lands­fram­leiðslu verði árlega varið til heil­brigð­is­kerf­is­ins. Á meðal þeirra sem hafa tekið þátt í bar­áttu Kára með því að koma skila­boð­unum áleiðis í gegnum mynd­bönd sem birt eru á vefnum end­ur­reisn.is eru Styrmir Gunn­ars­son, fyrrum rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, Magnús Karl Magn­ús­son, pró­fessor og for­seti lækna­deildar Háskóla Íslands, og Tómas Guð­bjarts­son, pró­fessor og skurð­læknir. Alls hafa rúm­lega 55 þús­und manns skrifað undir áskorun Kára.

Segir stefnu ríkisstjórnarinnar samhljóða sinni

Kári segir í grein sinni í dag að þegar hann hafi hafið und­ir­skrifta­söfn­un­ina þá taldi hann sig frum­legan. „Það var svo fyrir nokkrum dögum að mér var bent á að krafan sem ég er að biðja lands­menn að skrifa undir er næstum sam­hljóða yfir­lýstri stefnu rík­is­stjórn­ar­innar. Sú stefna var sett saman sem hluti af samn­ingi rík­is­ins við lækna og var und­ir­rituð í des­em­ber 2014. Ég verð því að við­ur­kenna að ég var ein­fald­lega að apa eftir rík­is­stjórn­inni nema ég fylgi for­dæmi Newtons og haldi því fram að ég hafi verið fyrri til þótt ég hafi verið seinni til sem yrði að byggj­ast á því að tím­inn sé ekki línu­legur heldur hring­laga.

Nú gladdi það mig samt að kom­ast að því að rík­is­stjórnin hefði komið end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins á stefnu­skrá sína þótt það þýddi að ég hefði ekki verið eins frum­legur og ég hélt ég væri. Það gladdi mig hins vegar tölu­vert minna að kom­ast að raun um að það er ekki hægt að merkja það á gerðum rík­is­stjórn­ar­innar að hún meini nokkurn skap­aðan hlut með þessu."

Ekkert að marka ríkisstjórnina

Kári nefnir dæmi um mun­inn á því sem rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar segir og gerir í heil­brigð­is­málum sé hægt að sækja í gerð fjár­laga fyrir árið 2016. „Undir lokin var tek­ist á um það hvort það ætti að veita því fé til Land­spít­al­ans að það væri hægt að reka hann á svip­aðan máta og 2015, ekki bæta hann heldur halda í horf­inu. Það var tek­ist á um það hvort það ætti að reka hann í þeim lama­sessi sem hann var búinn að vera í um hríð eða láta honum hnigna enn meira. Það var mat þeirra sem stjórna sjúkra­hús­inu að það þyrfti 2,5 millj­arða króna í við­bót til þess að ná því mark­miði. Þegar málið kom á borð fjár­mála­ráð­herra féllst hann ekki á að bæta við meira en helm­ingi af upp­hæð­inni. Því var auð­vitað haldið fram að það væru ekki til pen­ingur fyrir meiru.

Nokkrum dögum eftir að fjár­lög voru sam­þykkt lét fjár­mála­ráð­herra hafa það eftir sér að það yrði 300 millj­arða króna afgangur af rík­is­fjár­málum fyrir árið 2016?

Það er sem sagt ekk­ert að marka það sem núver­andi rík­is­stjórn segir um vilja sinn til þess að hlúa að heil­brigð­is­kerf­inu og því miður hefði mátt segja hið sama um margar af þeim rík­is­stjórnum sem á undan henni þjón­uðu þessu landi."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár