Ríkissjóður greiddi 50 milljarða inn á skuldabréf - Skuldir lækkuðu um tíu prósent 2015

Rík­is­sjóður hefur greitt 49,9 millj­arða króna inn á skulda­bréf sem gefið var út eftir hrunið til að styrkja eig­in­fjár­stöðu Seðla­banka Íslands. Greiðslan var innt af hendi undir lok síð­asta árs og er um að ræða eina stærstu ein­stöku afborgun af skuldum rík­is­sjóðs til þessa. Afborg­unin fór þannig fram að sjóðs­staða rík­is­sjóðs hjá Seðla­bank­anum var lækkuð.

Í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu vegna þessa segir að skulda­bréfið hafi upp­haf­lega verið gefið út í jan­úar 2009 til að styrkja eig­in­fjár­stöðu Seðla­bank­ans. Árleg afborgun af því átti að vera fimm millj­arðar króna. „Á árinu 2015 greiddi rík­is­sjóður um 47 ma.kr. til við­bótar árlegri afborgun af bréf­inu og nema eft­ir­stöðvar þess í árs­lok um 90 ma.kr. Áætlað er að greiða bréfið upp að fullu á yfir­stand­andi ári. Að teknu til­liti til greiðslu á skulda­bréfi Seðla­bank­ans nam sjóðs­staða rík­is­sjóðs í Seðla­banka Íslands um 88,5 ma.kr. í árs­lok 2015.

Rík­is­sjóður for­greiddi einnig stóran hluta af útistand­andi erlendum lánum á síð­asta ári eða um 103 ma.kr. Á fyrri hluta árs­ins keypti rík­is­sjóður tæp­lega helm­ing af útistand­andi skulda­bréfa­út­gáfu í Banda­ríkja­dölum frá árinu 2011 eða sem sam­svarar um 67 ma.kr. Í maí for­greiddi rík­is­sjóður lán frá Póllandi sem veitt var í tengslum við efna­hags­á­ætlun stjórn­valda og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og námu þær um 7,5 ma.kr. Þá fyr­ir­fram­greiddi rík­is­sjóður svo­kallað Avens-skulda­bréf í júlí að fjár­hæð 28,3 ma.kr.

Á síð­ast­liðnu ári fyr­ir­fram­greiddi rík­is­sjóður því um 150 ma.kr. af inn­lendum og erlendum skuldum. Umræddar fyr­ir­fram­greiðslur hafa að öðru óbreyttu um 7 ma.kr. áhrif til lækk­unar vaxta­gjalda á ári hverju. Heild­ar­skuldir rík­is­sjóðs í árs­lok 2015 eru áætl­aðar um 1.349 ma.kr. til sam­an­burðar við 1.492 ma.kr. í árs­lok 2014. Sam­svarar það um 10% lækkun skulda á milli ára. Á árinu 2016 er áætlað að skuldir rík­is­sjóðs lækki enn frekar og nemi 1.171 ma.kr. í lok árs­ins."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár