Andri Snær hefur hugsað alvarlega um forsetaframboð

Andri Snær Magnason og Björk á blaðamannafundi sem þau héldu á meðan að Iceland Airwaves stóð yfir í nóvember. Myndband af fundinum er hægt að sjá neðar í fréttinni.
Andri Snær Magnason og Björk á blaða­manna­fundi sem þau héldu á meðan að Iceland Airwaves stóð yfir í nóv­em­ber. Myndband af fund­inum er hægt að sjá neðar í frétt­inni. Mynd: RÚV/Skjáskot.

Andri Snær Magnason rit­höf­undur hefur forð­ast spurn­ing­una um hvort hann hafi hugsað að bjóða sig fram til for­seta Íslands eins og heitan eld­inn en hefur hugsað alvar­lega um það. Eina ástæðan fyrir því að hann hefur ekki neitað spurn­ing­unni er hversu áhuga­verðir tímar eru núna. „Ég held að flestir vilji aukin völd og ný stjórn­ar­skrá færir örygg­is­ventil­inn frá for­seta til þjóð­ar­innar. Þarna er kafli um hvernig ákveð­inn hluti lands­manna getur skotið málum til þjóð­ar­at­kvæðis.“ Þetta kemur fram í við­tali við Andra Snæ í Frétta­blað­inu í dag. Ólafur Ragnar Grímsson til­kynnti í gær að hann muni ekki bjóða sig aftur fram til for­seta og því verður nýr kosin í júní 2016.

Andri Snær nefnir Icesave-málið sem gott dæmi um mál þar sem gras­rót­ar­hreyf­ing, InDefence-hóp­ur­inn, hafi aflað sér meiri þekk­inar og víð­ara tengsla­nets en sjálf rík­is­stjórnin. „Píanó­kenn­ari úti í bæ gat náð sér í sér­þekk­ingu sem jafn­að­ist á við upp­lýs­ingar þing­heims og emb­ætt­is­manna. Mér finnst þetta spenn­andi til­hugsun sem styrkir til­trú mína á aukið lýð­ræði. Með auknu lýð­ræði og þátt­töku almenn­ings í að taka ákvarð­anir. Lýðræði er lif­andi ferli og aukið aðgengi að upp­lýs­ingum hlýtur að kalla á þróun og það gerð­ist með stjórn­ar­skránni.“

Hann svarar því hins vegar hvorki afdrátt­ar­laust ját­andi né neit­andi þegar hann er spurður um hvort að hann hugsi um að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Íslands.

Andri Snær til­tekur þó að honum finn­ist að þjóðin standi á ögur­stundu hvað varðar hálendi Íslands og segir að sér finn­ist nátt­úra lands­ins ekki eiga sér málsvara hjá íslenskum stjórn­völdum. „Svo er heim­ur­inn allur að breyt­ast og ég hef sett mig vel inn í þau mál. Ég er reyndar í miðju verk­efni hvað varðar bráðnun jökla og hnatt­rænar breyt­ingar og hef rætt við marga helstu sér­fræð­inga heims á því sviði. Þar naut ég góðs af fólki sem Ólafur Ragnar bauð til lands­ins[...] Mér finnst að for­set­inn þurfi að vera mjög jákvæður gagn­vart Evrópu. Ekki endi­lega hvað varðar að ganga í Evr­ópu­sam­bandið. Það eru leið­ind­araddir komnar upp í allri Evrópu sem minna of mikið á það fólk sem kveikti í álf­unni tvisvar á tutt­ug­ustu öld. Við getum ekki flúið þennan veru­leika sem flótta­manna­straum­ur­inn er en það er hægt að leysa hann. Hvenær hefur Evrópa verið betri en hún er núna? Ekki 1940. Ekki 1980. Hún hefur aldrei verið betri,“ segir hann og leiðir hug­ann að stríðs­ár­unum, krepp­unni og þegar aust­ur­blokkin var í járnum. „Það er ekki sjálf­sagt að það sé ekki stríð í Evrópu og Ísland á að styðja álf­una og tala hana upp, en ekki niður.“

Höfum of veika framtíðarsýn

Í við­tal­inu seg­ist Andri Snær vilja aðra fram­tíð­ar­sýn. „Menn geta spurt af hverju menn eru ekki bara kátir? Er ekki excelskjalið að lag­ast? Er ekki allt komið í fullan gang? En ég held að ósam­staðan liggi í stórum málum þar sem mark­miðið virð­ist vera að sigra en ekki að ná sáttum eða sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu. Þetta virð­ist vera ósiður inni á þingi en síðan er þessu varpað út í sam­fé­lagið – þar sem frjáls félaga­sam­tök og gras­rót­ar­hópar eru með­höndl­aðir eins og hver önnur stjórn­ar­and­staða sem ber að sigr­ast á. Auðvitað er nið­ur­staðan nei­kvæð fyrir sam­fé­lagið. Þegar alræði meiri­hlut­ans kemur saman við flokks­ræði – þá er nið­ur­staðan hreint ein­ræði. Almenn­ingur býr í fjöl­breyttu sam­fé­lagi og á vini, ætt­ingja og vinnu­fé­laga með marg­vís­legar skoð­anir, en þegar menn setja hlemm­inn á hálft sam­fé­lagið þá hlýtur að sjóða upp úr. Dæmin eru ótal mörg þar sem umdeildum málum er með­vitað haldið utan kosn­inga­bar­átt­unnar en fylgi keypt með rán­dýrum lof­orðum.

Við höfum allt of veika fram­tíð­ar­sýn, það er ein­hver til­finn­ing fyrir því að við séum að bít­ast um sömu bit­ana, að sam­fé­lagið sé á ystu nöf.“

Gus Gus semur ekki Rick Ashley lag

Andri Snær tjáir sig einnig um ósk Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra um að byggja nýja bygg­ingu fyrir Alþingi í gömlum stíl Guðjóns Sam­ú­els­sonar. Hann seg­ist sam­mála Sigmundi Davíð um að húsið sé fal­legt en að vinnu­brögðin sem hann beiti, að það komi skipun að ofan að ríkið eða þjóðin eigi að byggja hús eftir hans eigin höfði eins og um sé að ræða hans per­sónu­lega mál, gangi ekki upp. „Skipu­lags­mál eru víða í ólestri og mis­tök blasa alls staðar við. En ríkið hefur byggt glæsi­leg­ustu hús lands­ins og sum þeirra eru á við­kvæmum stöðum eins og nýi Hæsti­réttur og við­bygg­ing Alþingis sem Batt­er­íið hann­aði. Ef við viljum eign­ast Guðjón Sam­ú­els­son í sam­tím­anum verðum við að trúa á fólk og gefa því tæki­færi. Við getum ekki snið­gengið heila fag­stétt. Hæfir arki­tektar hafa hrökkl­ast úr landi vegna verk­efna­skorts. Ef maður þekkir arki­tektúr almennt eða sögu Guðjóns Sam­ú­els­sonar frá svona dönskum skóla­verk­efnum til Hall­gríms­kirkju og Þjóð­leik­húss þá byggjum við ekki Disney-hús þótt það líti vel út á jóla­kort­inu. Þú málar ekki eitt­hvað sem á að líkj­ast Kjarval eða biður Gus Gus að semja lag í anda Rick Ashley til að fram­kalla vellíð­un­ar­til­finn­ingu.“

Andri Snær segir að í ósk for­sæt­is­ráð­herra krist­all­ist þau skil sem hafi orðið milli skap­andi stétta á Íslandi og þeirra sem virð­ast ráða. „Menn hafa verið að keyra upp þennan klofn­ing þar sem 101 Reykja­vík og lands­byggðin eru settar upp sem and­stæður. Hin firrta elíta gegn salti jarðar. Í raun­inni eru þetta tveir við­kvæmir hópar sem þurfa á hinum að halda enda verða allar fram­farir við blöndun og skörun hug­mynda. Frábært dæmi er verk­efni Lista­há­skól­ans, stefnu­mót hönn­uða og bænda. Úthverfa­krakkar sem vissu ekk­ert um búskap unnu með völdum bæjum og útkoman var mjög spenn­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár