103 íslensk fyrirtæki skuldbinda sig til að draga úr losun

Yfirlýsingin var undirrituð í Höfða
Yfir­lýs­ingin var und­ir­rituð í Höfða Mynd: Reykjavik.is

Rúmlega hund­rað íslensk fyr­ir­tæki und­ir­rit­uðu yfir­lýs­ingu um sam­fé­lags­lega ábyrgð og gagn­vart umhverf­inu í Höfða í dag. Yfir­lýs­ingin og und­ir­skrift­irnar 103 verða afhentar á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna í París í byrjun des­em­ber. Íslensk stjórn­völd hafa skilað mark­miðum sínum til Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Meðal þeirra fyr­ir­tækja sem und­ir­rit­uðu yfir­lýs­ing­una eru nokkur af stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins sem reka fjöl­menna vinnu­staði. Þarna má finna við­skipta­bank­ana þrjá, Alcoa Fjarðaál, stærstu skipa- og útgerð­ar­fyr­ir­tæki, rík­is­stofn­anir og háskólar. Lista yfir öll fyr­ir­tækin má finna hér.

Á vef Reykja­vík­ur­borgar segir um verk­efnið að það sé hvatn­ing til rekst­ar­að­ila um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á eigin for­sendum „og sýna þannig frum­kvæði og ábyrgð gagn­vart umhverf­inu og sam­fé­lag­inu“. Reykja­vík­ur­borg og Festa eiga frum­kvæði að verk­efn­inu sem kynnt var í októ­ber. Reykja­vík­ur­borg ætlar að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í rekstri sínum um 35 pró­sent til árs­ins 2020 og unnið er að stefnu­mótun innan borg­ar­innar í þessum mála­flokki.

Í sam­tali í Þukli í Hlað­varpi Kjarnans í síð­ustu viku segir Svavar Svav­ars­son, deild­ar­stjóri við­skipta­þró­unar HB Granda, að fyr­ir­tækið sé þegar farið að bregð­ast við þróun mála. „Það má eig­in­lega segja það að með­vitað og ómeð­vitað þá höfum við verið að bregð­ast við súrnun sjávar,“ segir Svavar og vísar þar til þess vanda sem tal­inn er helst steðja að sjáv­ar­út­vegi á Íslandi. HB Grandi er eitt þeirra fyr­ir­tækja sem und­ir­rit­aði yfir­lýs­ing­una í dag. Hlusta má á sam­talið við Svavar í heild sinni í spil­ar­anum hér að neðan.

„Ég er ekki nokkrum vafa um vilja íslenskra stjórn­valda til þess að sjáv­ar­út­veg­ur­inn mengi minna,“ segir Svavar spurður út í það hvort ríkið hafi sett upp ein­hverja hvata fyrir fyr­ir­tæki eins og HB Granda til þess að menga minna. „Það er alveg án til­lits til póli­tískra flokka eða því líkt. Hins vegar teljum við að stjórn­völd mættu gera af því meira að ganga fram­fyrir skjöldu og hvetja sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki til þess að draga úr mengun hjá sér; til dæmis með breyttri lög­gjöf.“

Í tengslum við sjáv­ar­út­veg­inn þá telur Svavar stjórn­völd og sjáv­ar­út­veg verða að gera með sér heild­stætt sam­komu­lag um umhverf­is­mál. „Hvernig ætlum við að reka sjáv­ar­út­veg í fram­tíð­inni? Ætlum við að keyra hann á hreinni orku eða ætlum við halda áfram að brenna olíu?“ spyr Svavar.

Með yfir­lýs­ing­unni sem fyr­ir­tækin skrif­uðu undir skuld­binda fyr­ir­tækin sig til að upp­fylla þrjú atriði. Þau eru að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, minnka myndun úrgangs og að mæla árang­ur­inn af þessum aðgerðum og til­kynna reglu­lega um stöðu mála.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að „borgir og bæir ásamt fyr­ir­tækjum af öllum stærðum, verða sífellt mik­il­væg­ari þegar kemur að því að draga úr útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og stand­ast þau mark­mið sem sett hafa verið um losun þeirra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár