Jafn mörg íslensk heimili eru áskrifendur að Netflix og Morgunblaðinu

Alls eru 18,4 pró­sent íslenskra heim­ila áskrif­endur að streymi­þjón­ust­unni Netflix þrátt fyrir að hún sé ekki form­lega í boði á Íslandi. Það er sama hlut­fall heim­ila og er með áskrift að Morg­un­blað­inu, stærsta áskrift­ar­blaði lands­ins. Þetta kemur fram í könnun MMR sem gerð var í mars 2015 og sagt er frá í skýrslu nefndar sem greindi þróun á starf­semi RÚV ohf. frá stofnun, þann 1. apríl 2007, og fram til dags­ins í dag.

Í skýrsl­unni kemur einnig fram að 29,1 pró­sent heim­ila sé með áskrift að Stöð 2. Heimili lands­manna eru um 125 þús­und tals­ins. Það þýðir að áskriftir að Stöð 2 séu rúm­lega 36 þús­und. SkjárEinn, sem opn­aði línu­lega dag­skrá sína 1. októ­ber síð­ast­lið­inn, er ekki langt undan. Samkvæmt könn­un­inni voru 22,8 pró­sent heim­ila með áskrift að stöð­inni í mars síð­ast­liðnum. Það þýðir að um 28.500 heim­ili lands­ins greiddu fyrir SkjáEinn.

Áskrift að íþrótta­stöðvum Stöðvar 2 er einnig til­greind í skýrsl­unni. Alls voru 10,9 pró­sent heim­ila með áskrift að Stöð 2 Sport og 10,8 pró­sent með áskrift að Stöð 2 Sport 2, sem sýnir m.a. enska bolt­ann. Vert er að taka fram að 365 miðlar, sem á og rekur Stöð 2, selur áskriftir að stöðv­unum í vafn­ingum með áskrift að Stöð 2. Því er tölu­verður hluti áskrif­enda að íþrótta­stöðv­unum einnig taldir með áskrif­endum Stöðvar 2.

Athygli vekur að 3,9 pró­sent heim­ila í land­inu er með áskrift að sjón­varps­stöðvum Sky. Það þýðir að tæp­lega fimm þús­und íslensk heim­ili greiða fyrir áskrift að Sky.

Netflix er streymi­þjón­usta þar sem hægt er að nálg­ast mikið magn kvik­mynda, sjón­varps­þátta, barna­efnis, heim­ild­ar­mynda og ann­ars áhorf­an­legs efnis. Þjón­ustan hefur þann aug­ljósa kost fram yfir línu­lega sjón­varps­dag­skrá að not­endur geta horft á það efni sem þeir vilja þegar þeir vilja í nán­ast hvaða tæki sem þeir vilja. Áskrift að Netflix er auk þess mun ódýr­ari en áskrift að þeim sjón­varps­stöðum sem hægt er að ger­ast áskrif­andi að á Íslandi.

Gjörbreytt neyslumynstur

Í skýrslu nefnd­ar­innar er farið ítar­lega yfir þær breyt­ingar sem orðið hafa í neyslu­mynstri fjöl­miðla á und­an­förnum árum, með til­komu inter­nets­ins og tækni­bylt­inga á borð við snjall­síma. Þar segir að fram­boð og dreif­ing fjöl­miðla­efnis hafi sam­hliða auk­ist gríð­ar­lega á síð­ast­liðnum ára­tug.

Ísland er ekki und­an­þegið þess­ari breyt­ingu. Þannig hefur heild­ar­á­horf fólks á aldr­inum 18 til 49 ára á sjón­varp dreg­ist saman um tæp 36 pró­sent frá árinu 2009. Ef ein­ungis er horft á línu­lega dag­skrá hefur það tæp­lega helm­ing­ast. Hraði þess­ara breyt­inga er að aukast. Í Banda­ríkj­unum var til að mynda mesti mæl­an­legi sam­dráttur í sjón­varps­á­horfi ungs fólks á síð­asta ári.

Þegar ald­urs­hóp­ur­inn 12 til 80 ára er skoð­aður kemur í ljós að sjón­varps­á­horf á Íslandi hefur minnkað um 28 pró­sent frá árinu 2009. Áhorf á fréttir hefur dreg­ist saman um tæp 17 pró­sent, lang­mest hjá fólki undir fimm­tugu þar sem sam­drátt­ur­inn er 32 pró­sent.

Hlustun á útvarp hefur hins vegar hald­ist nokkuð stöðug und­an­farin ár. Heild­ar­hlustun hefur ein­ungis dreg­ist saman um sex pró­sent frá árinu 2009.

Allir prentmiðlar í frjálsu falli

Það eru ekki ein­ungis sjón­varps­stöðvar sem eiga undir högg að sækja vegna breyt­inga á neyslu­mynstri. Lestur prent­miðla hefur einnig hríð­fallið, sér­stak­lega hjá ungu fólki.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um stöðu prent­miðla í sögu­legu sam­hengi í frétta­skýr­ingu í sept­em­ber. Þar kom fram að lestur þeirra hefur minnkað hratt á und­an­förnum árum. Þannig hefur heild­ar­lestur Morg­un­blaðs­ins dreg­ist saman um 35 pró­sent á sex árum, les­endum Frétta­blaðs­ins hefur fækkað um 22 pró­sent frá 2010 og lestur Frétta­tím­ans hefur aldrei verið lægri en hann er um þessar mundir. Þá hefur lestur á DV aldrei verið lægri en hann mæld­ist í ágúst 2015 í 40 ára sögu blaðs­ins.

Staða prent­miðla á Íslandi er samt sem áður afar sterk í alþjóð­legu sam­hengi og þeir taka enn til sín stóran hluta af aug­lýs­inga­birt­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár