Ríkið eignist allt hlutafé Íslandsbanka

Hópur kröfu­hafa Glitnis hf. hefur lagt til breyt­ingar á fyrri til­lögu sinni, sem sett var fram með bréfi 8. júní sl., um stöð­ug­leika­fram­lag Glitnis til rík­is­ins í tengslum við heild­stæða áætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta sem kynnt var sama dag. Í bréfi sem barst fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í dag leggja þessir sömu kröfu­hafar Glitnis til að öllum eign­ar­hlut Glitnis í Íslands­banka verði afsalað til rík­is­ins, sem muni þá eign­ast bank­ann að fullu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Íslenska ríkið á í dag 5 pró­sent hlut í Íslands­banka, 98 pró­sent hlut í Lands­bank­anum og 13 pró­sent hlut í Arion banka. Eigið fé Íslands­banka nam um mitt þetta ár 185 millj­örðum króna.

Hinn 8. júní 2015 birti fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið til­lögur hóps kröfu­hafa Glitnis og ráð­gjafa hans um aðgerðir til að greiða fyrir lokum slita­með­ferðar Glitnis. Þessar aðgerðir mið­uðu að því að hlut­leysa þá áhættu sem steðj­aði að greiðslu­jöfn­uði vegna upp­gjörs inn­lendra eigna slita­bús­ins. Til­lög­urnar voru settar fram eftir upp­lýs­inga­fundi kröfu­haf­anna og fram­kvæmda­hóps um losun fjár­magns­hafta. Síðan þær komu fram hefur slita­stjórn Glitnis úfært til­lög­urnar frekar með stuðn­ingi kröfu­hafa. Stjórn­völd hafa frá því í sumar haft upp­haf­legar til­lögur til skoð­unar, í þeim til­gangi að meta hvort þær upp­fylltu stöð­ug­leika­skil­yrði stjórn­valda sem kynnt hafa verið.

[caption id="attachment_30962" align="alignnone" width="1024"] Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra.[/caption]

Ráð­gjafar kröfu­hafa Glitnis og fram­kvæmda­hópur um losun fjár­magns­hafta áttu fundi 25. sept­em­ber til 13. októ­ber sl. vegna til­lagn­anna frá 8. júní. Í fram­haldi af þeim fundum hafa sömu kröfu­hafar Glitnis kynnt fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem for­manni stýrinefndar um losun fjár­magns­hafta, end­ur­skoð­aðar til­lögur. Þær breyt­ingar sem í þeim fel­ast eru helstar eft­ir­far­andi:


  • Sem hluti af stöð­ug­leika­fram­lagi mun Glitnir afsala öllu hlutafé ISB Holding ehf., sem er eig­andi 95% hluta­fjár Íslands­banka hf., til stjórn­valda. Eigið fé Íslands­banka nam um 185 ma.kr. í lok júní 2015. Vegna þess­arar breyt­ingar falla eft­ir­far­andi þættir í fyrri til­lögum kröfu­hafa Glitnis niður

  • Afkomu­skipta­samn­ingur um arð­semi hluta­fjár Íslands­banka;

  • Skilyrt skulda­bréf að fjár­hæð 119 ma.kr.;

  • Arð­greiðsla Íslands­banka í erlendum gjald­eyri að fjár­hæð 16 ma.kr. til Glitnis og aðrar fyr­ir­hug­aðar arð­greiðslur.

  • Framsal lausa­fjár­eigna, reiðu­fjár og ígildi reiðu­fjár, mun sam­kvæmt fram­an­greindri til­lögu lækka um 16 ma.kr. vegna fyr­ir­hug­aðrar arð­greiðslu í erlendum gjald­eyri til Glitnis, sem ekki verður af, og 36 ma.kr. vegna ann­arra breyt­inga sem fel­ast í end­ur­skoð­uðum til­lögum kröfu­hafa Glitnis. Umbreyt­ing inn­lána Glitnis í erlendum gjald­eyri í Íslands­banka í staðl­aða skulda­bréfa­út­gáfu mun taka mið af sér­stöku sam­komu­lagi Glitnis og Íslands­banka. Glitnir mun greiða fyrir og eign­ast fyr­ir­greiðslu rík­is­sjóðs við Íslands­banka sem veitt var í formi víkj­andi skulda­bréfs í erlendri mynt á nafn­virði auk greiðslu áfall­inna vaxta.


Fram­kvæmda­hópur um losun fjár­magns­hafta telur að þær aðgerðir sem um ræðir í fram­an­greindu bréfi falli að stöð­ug­leika­skil­yrð­unum sem mótuð voru og að því gefnu að umræddar aðgerðir verði fram­kvæmdar er það mat fram­kvæmda­hóps­ins að for­sendur fyrir und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höftum séu fyrir hendi, segir í til­kynn­ing­unni.

Fram­an­greindar aðgerðir eru háðar sömu for­sendum og komu fram í til­lögum aðila 8. júní 2015, meðal ann­ars um und­an­þágu frá lögum nr. 87/1992, um gjald­eyr­is­mál, sem heim­ila Glitni að ljúka slita­með­ferð þannig að ekki komi til greiðslu stöð­ug­leika­skatts.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár