InDefence: Kröfuhafar eru að fá ódýra leið út úr höftum sem skerðir lífskjör almennings

InDefence-hóp­ur­inn segir að tals­verð hætta sé að svig­rúm til að aflétta höftum á almenn­ing verði lítið næstu árin, að stöð­ug­leika­skil­yrðin séu ódýr leið fyrir kröfu­hafa slita­búa föllnu bank­anna úr gjald­eyr­is­höftum og að greiðsla stöð­ug­leika­skil­yrða muni skerða lífs­kjör almenn­ings. Þetta er meðal þess sem fram kemur í bréfi hóps­ins sem sent var til efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis í gær og Kjarninn hefur undir höndum.

InDefence, sem vakti fyrst athygli fyrir bar­áttu sína í Icesave-mál­inu, hefur látið sig mál sem tengj­ast losun fjár­magns­hafta varða und­an­farin miss­eri. Hópurinn hefur gagn­rýnt það sam­komu­lag sem stjórn­völd gerðu við kröfu­hafa Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans um greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags og sagt það gefa þeim gríð­ar­háan afslátt af stöð­ug­leika­skatti, sem ann­ars myndi falla á slitabú föllnu bank­anna.

Segja greiðslu stöðugleikaskilyrða skerða lífskjör á Íslandi


Í bréfi InDefence segir að til­lögur um stöð­ug­leika­fram­lag geri ráð fyrir að slita­búin greiði 334 millj­arða króna, sem svari til 15 pró­sent skatts á eignir slita­bú­anna. Það sé tals­vert undir þeim 39 pró­sentum sem stöð­ug­leika­skatt­ur­inn mydni skila. „Það stefnir því í að kröfu­höfum slita­bú­anna verði tryggð útganga úr gjald­eyr­is­höft­unum með mjög lágum til­kostn­aði.“

InDefence segir að ólikt því sem myndi ger­ast við álagn­ingu stöð­ug­leika­skatts muni erlendir kröfu­hafar fá að taka yfir 500 millj­arða króna út úr íslensku hag­kerfi á næstu árum. „Þar sem lífs­kjör almenn­ings eru bein­tengd gjald­eyr­is­öflun þjóð­ar­innar er ljóst stöð­ug­leika­skil­yrðin munu skerða lífs­kjör hér­lendis. Hér er um veru­legar upp­hæðir að ræða, sem svara til nán­ast alls vöru­út­flutn­ings frá Íslandi árið 2014, nálægt tvö­földu virði Lands­virkj­unar skv. mati fjár­mála­ráð­herra í árs­byrjun 2013 og 50 sinnum hærri upp­hæðar en líf­eyr­is­sjóð­unum var leyft að fara með úr landi á þessu ári. Það er því rangt að full­yrða að stöð­ug­leika­skatt­ur­inn og stöð­ug­leika­fram­lagið séu jafn­gildar leiðir út frá hags­munum heim­ila lands­ins.“

Hópurinn telur að hags­munir almenn­ings séu ekki settir í for­gang í þeirri lausn sem nú er unnið að varð­andi losun hafta. Hún feli í sér að erlendum kröfu­höfum verði hleypt úr höftum án þess að búið sé að tryggja með nokkrum hætti aflétt­ingu hafta á almenn­ing. „InDefence-hóp­ur­inn ótt­ast að tals­verð hætta sé á því að svig­rúm til að aflétta höftum á almenn­ing verði lítið næstu árum, bæði vegna auk­innar neyslu en einnig vegna mik­illar fjár­fest­ing­ar­þörf líf­eyr­is­sjóða erlendis.

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn var­aði við þess­ari hættu í síð­ustu stöðu­skýrslu sjóðs­ins um Ísland en þar er bent á að það séu komnar miklar vænt­ingar um hratt afnám gjald­eyr­is­hafta á almenn­ing. Á sama tíma sýni greiðslu­jafn­að­ar­grein­ing sjóðs­ins að svig­rúmið til aflétt­ingar sé tak­markað m.a. vegna mik­illa launa­hækk­ana á vinnu­mark­aði. Það liggur því fyrir við­vörun frá IMF um greiðslu­jöfnuð þjóð­ar­innar og eykur það enn á mik­il­vægi þess að Seðla­bank­inn skoði þennan þátt af fullri alvöru sam­hliða mati á stöð­ug­leika­fram­lög­unum.“

Funduðu með Má Guðmundssyni


Í lok síð­asta mán­aðar sendi InDefence Seðla­banka Íslands bréf og krafð­ist þess að bank­inn birti sam­stundis stöð­ug­leika­skil­yrðin sem slita­búin ættu að mæta. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri svar­aði bréfi hóps­ins skömmu síðar og sagði að skil­yrðin hefðu þegar verið birt og að nauða­samn­ings­drög sem slita­búin hefðu lagt fram upp­fylltu þau í stórum dráttum. Í kjöl­far svar­bréfs­ins fund­aði Már með full­trúum hóps­ins. Sá fundur fór fram síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Í bréfi InDefence til efna­hags- og við­skipta­nefndar segir að á þeim fundi hafi verið rætt „almennt um birt­ingu upp­lýs­inga og m.a. beðið um að greiðslu­jafn­að­ar­grein­ingin, sem notuð verður við stöð­ug­leika­mat Seðla­bank­ans, verði birt. Á fund­inum kom hins vegar fram að slík grein­ing lægi ekki fyrir.“

Í kjöl­farið hafi InDefence beðið Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn um að fram­kvæma slíka grein­ingu og að hann búist við því að slík grein­ing verði upp­færð á næstu vikum. Hópurinn mun einnig ítreka beiðni sína til Seðla­bank­ans og biðja þar að auki um að gerð verði lang­tíma greiðslu­jafn­að­ar­grein­ing.

Í bréf­inu stendur: að InDefence hóp­ur­inn lýsi yfir miklum von­brigðum með vinnu­brögð Seðla­banka Íslands í mál­inu. „Ekki hefur verið staðið við lof­orð um opið og gagn­sætt ferli og er það mat hóps­ins að ekki megi ganga frá stöð­ug­leikamati fyrr en greiðslu­jafn­að­ar­grein­ing liggur fyrir. Án slíkrar grein­ingar verður ekki séð að staðið sé við lof­orð stjórn­valda um að heim­ilin verði sett í for­gang. Við hvetjum Efnahags- og við­skipta­nefnd Alþingis ein­dregið til að biðja Seðla­banka Íslands um slíka grein­ingu, svo að þing­menn geti betur metið afleið­ingar þeirra aðgerða sem fel­ast í stöð­ug­leika­fram­lögum og stöð­ug­leika­skatti.“

Seðla­banki Íslands ætl­aði að opin­bera mat á til­lögum um aðgerðir og greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags sem upp­fylla ætti stt stöð­ug­leika­skil­yrði stjórn­valda á kynn­ing­ar­fundi í dag. Fundinum var hins vegar frestað á síð­ustu stundu. Í til­kynn­ingu frá Seðla­bank­anum sagði að tíma­setn­ingin hefði reynst „óheppi­leg í ljósi þess að ekki hefur tek­ist að ljúka því sam­ráðs- og kynn­ing­ar­ferli sem reiknað var með að yrði lokið áður en ritið yrði birt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár