Gísli Freyr: Vinir og flokksfélagar nýta sér tækifæri til að veita Hönnu Birnu náðarhögg

Gísli Freyr Val­dórs­son, fyrrum aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, segir það vera sárt að vinir og flokks­fé­lagar Hönnu Birnu séu að not­færa sér leka­málið, sem hann beri ábyrgð á, til að veita henni náð­ar­högg. Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir hann það vera óbæri­legt að upp­lifa að Hanna Birna skuli "enn og aftur þurfa að líða og hörfa vegna þeirra mis­taka sem ég gerði sem hennar aðstoð­ar­maður".

Hanna Birna til­kynnti í gær að hún myndi ekki bjóða sig fram til vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins á kom­andi lands­fundi, en hún gegnir því emb­ætti í dag. Þar sagð­ist hún að það blasi við eina ferð­ina enn að stilla eigi ákvörð­unum sem varði hana " upp sem ein­hverju upp­gjöri við hið svo­kall­aða leka­mál þá finn ég sterkt að ég hvorki get né vil leggja enn einn slag­inn um það mál á flokk­inn, mig eða mína.“

Gísli Freyr ját­aði að hafa lekið minn­is­blaði um hæl­is­leit­anda um ári eftir að lek­inn átti sér stað. Hann hlaut átta mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm fyrir vikið.

Gísli Freyr skrifar langa færslu á Facebook í dag þar sem hann fer yfir fréttir þess efnis að Hanna Birna hafi ákveðið að bjóða sig ekki fram til for­ystu­starfa fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Þar segir hann:

"Síðustu dagar hafa reynst mér þyngri en ég hefði ímyndað mér. Enn og aftur virð­ist sama mál skjóta upp koll­inum og stundum er eins og þetta mál ætli engan endi að taka.

Það að sjá og upp­lifa að Hanna Birna Krist­jáns­dóttir skuli enn og aftur þurfa að líða og hörfa vegna þeirra mis­taka sem ég gerði sem hennar aðstoð­ar­maður er óbæri­legt. Samhliða því sem ég opin­ber­aði og við­ur­kenndi mín mis­tök þá greindi ég frá því að Hanna Birna hefði aldrei haft vit­neskju um það sem nú þekk­ist sem leka­málið.

Eftir náið og gott sam­starf valdi hún að treysta mér og trúa þegar ég leyndi hana upp­lýs­ingum. Það voru, því miður, lík­lega hennar stærstu mis­tök í mál­inu. Satt best að segja þá líður ekki sá dagur að ég hugsi ekki um og harmi þessa atburð­ar­rás, sem að lokum leiddi til þess að ég hef nú tekið út minn dóm (þó sumum finn­ist það ekki nóg). Það hefur verið sárt og erfitt, bæði fyrir mig og mína nán­ustu.

Það sem er þó ekki síður sár­ara er að sjá og upp­lifa að nú ætli vinir og sumir flokks­fé­lagar Hönnu Birnu að nýta sér tæki­færið og veita henni náð­ar­ög­gið. Til þess rífa þessi ein­stak­lingar upp gömul sár, jafn­vel þó þeir viti að Hanna Birna hafði enga vit­neskju um lek­ann eða hvaðan hann kom.
Það er í sjálfu sér ekk­ert rangt við það að það fari fram lýð­ræð­is­leg kosn­ing um for­ystu stjórn­mála­flokka á lands­fundum þeirra. Það er bara eðli­legur gangur stjórn­mála – og all­flestir hafa þann póli­tíska þroska sem til þarf til að ganga sam­hentir út af slíkum fundum hver sem nið­ur­staðan er. Það má jafn­vel vel vera að Ólöf Nordal hefði sigrað Hönnu Birnu í slíkum kosn­ingum síðar í þessum mán­uði – en báðar eru þær full­færar til þess að sinna því emb­ætti. Báðar hafa þær líka þann þroska sem til þarf til að taka nið­ur­stöðu heið­ar­legra kosn­inga með reisn.

Bjarni Bene­dikts­son hefur, ekki einu sinni heldur þrisvar, sigrað for­manns­kjör í Sjálf­stæð­is­flokknum eftir að mót­fram­boð og alltaf hefur hann nálg­ast þá sem studdu hinn aðil­ann af mik­illi virð­ingu og vin­semd - vit­andi að flokk­ur­inn, hug­sjón­irnar og starfið væri öfl­ugra þegar menn standa sáttir og sam­ein­aðir. Það er merki um mik­inn póli­tískan þroska.

Það vita allir að á lands­fundum er tek­ist á um bæði menn og mál­efni, stundum mjög harka­lega (þetta á við um alla flokka). Fyrir okkur frjáls­hyggju­menn reyn­ast álykt­anir lands­fundar Sjálf­stæð­is­flokk­inn oft reyn­ast aft­ur­halds­samar og for­ræð­is­hyggnar – og því er eins farið með íhalds­sam­ari ein­stak­linga sem vilja halda í ein­hver ímynduð gildi og telja lands­menn hafi bara gott af svo og svo miklu frelsi í einu. Oftast hafa menn þó gengið sáttir við náung­ann út af lands­fundi þó mál­efna­leg umræða um hug­sjónir haldi áfram á öðrum vett­vangi.

Þessu er eins farið með kjör á for­ystu flokka (og þetta á líka við um alla flokka, fyrr og nú). Menn styðja Pétur en ekki Pál og öfugt, en flestir hafa þroska til að sætta sig við nið­ur­stöð­una og sam­ein­ast um mark­miðið sem fyrir liggja – í til­viki Sjálf­stæð­is­flokks­ins að auka frelsi, lækka skatta, minnka rík­is­af­skipti o.s.frv.
Nú ber hins vegar svo við að litlir hópar innan flokks­ins sjá sér leik á borði og upp­hefja sjálfa sig með því að sparka í sitj­andi vara­for­mann. Sem fyrr segir kjósa þeir að rífa upp vopn sem hingað til hafa ekki verið notuð innan flokks­ins.

Stundum læð­ist að manni sá grunur að innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins sé ein­ungis rými fyrir eina sterka konu í einu. Ef þessir sömu ein­stak­lingar hefðu eitt­hvað nef fyrir póli­tík hefðu þeir áttað sig á því að það er rúm fyrir ekki bara eina, ekki bara tvær – heldur margar konur innan flokks­ins. Sem fyrr segir er Ólöf ekki síður hæf til að gegna emb­ætti vara­for­manns flokks­ins og hún hefði ekki þurft upp­hafn­ingu athygl­is­sjúkra ein­stak­linga til þess að láta að sér kveða. Þvert á móti.

Ég vann það náið og lengi með Hönnu Birnu og ég veit og þekki, líkt og annað sjálf­stæð­is­fólk, af eigin raun hve heið­ar­legur og góður stjórn­mála­maður hún er. Miss­ir­inn af henni úr for­ystu flokks­ins er mik­ill. Það versta er að hún hverfur frá vegna mála sem ég ber ábyrgð á. Sökin er mín – ekki hennar.

Á hverjum degi hugsa ég um það hvað ég hefði getað gert öðru­vísi og betur. Ég vildi óska þess að maður hefði í fyrsta lagi ekki sent ákveðið skjal í fljót­færni og ég vildi óska þess að maður hefði í það minnsta getað við­ur­kennt það strax – þannig að ekki hafði orðið sú atburð­ar­rás sem síðar var. Með því þarf ég að lifa, bera skömm­ina og fjár­hags­lega bagg­ann sem því fylgir.

En ég vildi líka óska þess að sjálfsæð­is­menn leyfðu mér að bera þá byrgði einn og héldu henni utan við ímynd­aða valda­bar­áttu innan flokks­ins. Menn geta kosið sér leið­toga á mál­efna­legum for­sendum þannig að allir haldi reisn sinni."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár