Hanna Birna hættir sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ætlar ekki að bjóða sig fram aftur til vara­for­manns flokks­ins. Hún til­kynnti þetta með bréfi til sjálf­stæð­is­manna nú í kvöld, og birti það svo á Facebook-síðu sinni.

Hanna Birna seg­ist þakk­lát fyrir hvatn­ingu sem hún hafi fengið frá mörgum um að sækj­ast eftir end­ur­kjöri. „Ég hefði með stolti og ánægju verið reiðu­búin að gegna áfram emb­ætti vara­for­manns. Ég hefði líka með stolti og ánægju tekið þátt í mál­efna­legri kosn­ingu og tekið hverri þeirri nið­ur­stöðu sem á lands­fundi hefði orðið. En þegar nú blasir við að eina ferð­ina enn á að stilla ákvörð­unum er mig varða upp sem ein­hverju upp­gjöri við hið svo­kall­aða leka­mál þá finn ég sterkt að ég hvorki get né vil leggja enn einn slag­inn um það mál á flokk­inn, mig eða mína.“

Hér að neðan má lesa bréfið sem hún birti í heild sinni.

„Kæru vinir.

Með bréfi þessu vil ég deila með ykkur hvers vegna ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér sem vara­for­maður á kom­andi lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Fyrst vil ég nefna hve þakk­lát ég er og hversu vænt mér þykir um þá hvatn­ingu sem ég hef fengið frá mörgum ykkar um að sækj­ast eftir end­ur­kjöri. Ég hef hlustað á rökin um að ég standi enn fyrir sömu hug­sjónir og þær sem hafa veitt mér öfl­ugan stuðn­ing ykkar; um að hug­myndir mínar um betri stjórn­mál eigi síst minna erindi nú; um að ákveðin breidd í for­ystu flokks­ins sé mik­il­væg og að konur megi ekki enn og aftur hörfa þegar á móti blæs. Þar sem ég er sam­mála mörgu af þessu og vegna þess hve mikla ástríðu ég hef fyrir þeim verk­efnum sem bíða, hef ég hingað til haldið öllu opnu og sagt að ég muni - að öllu óbreyttu - vera í kjöri til vara­for­manns á kom­andi lands­fundi.

En ég hef líka sagt við mörg ykkar að eftir það sem á undan er gengið, sæki ég ekki sjálf­viljug í hörð póli­tísk átök í bráð. Ég hefði með stolti og ánægju verið reiðu­búin að gegna áfram emb­ætti vara­for­manns. Ég hefði líka með stolti og ánægju tekið þátt í mál­efna­legri kosn­ingu og tekið hverri þeirri nið­ur­stöðu sem á lands­fundi hefði orðið. En þegar nú blasir við að eina ferð­ina enn á að stilla ákvörð­unum er mig varða upp sem ein­hverju upp­gjöri við hið svo­kall­aða leka­mál þá finn ég sterkt að ég hvorki get né vil leggja enn einn slag­inn um það mál á flokk­inn, mig eða mína. Ég ítreka hversu miður mér þykir að það tveggja ára gamla mál skyldi fara eins og það fór, vildi óska að ég hefði vitað þá það sem ég veit nú - en end­ur­tek að ég reyndi í öllu því ferli að gera það sem ég á hverjum tíma taldi rétt og satt. Ég hef viljað trúa því að flokk­ur­inn og fólkið sem ég hef starfað með og fyrir í um 20 ár myndi meta mig á fleiri mæli­kvörðum en þeim mis­tökum sem eðli­lega verða í svo erf­iðu máli, en upp­lifi sterkt að það verður ekki gert á þessum lands­fundi sem ég tel að verði að snú­ast um stærri fram­tíð­ar­mál. Ég hef alltaf talað fyrir því að flokks­menn eigi að geta valið sér fólk til for­ystu þegar og eins og þeir vilja. Ég vil ekki að mín per­sóna hafi nokkur áhrif á þann vilja lands­fund­ar­full­trúa að ganga til slíkra kosn­inga nú, en mun hins vegar standa utan við það kjör að þessu sinni.

Ég ítreka þakkir mínar fyrir sam­starf, stuðn­ing og skemmti­legar stundir. Það hafa verið algjör for­rétt­indi að vera vara­for­maður ykkar og um leið og ég mun sakna þess hlut­verks, held ég áfram að nota starfs­krafta mína í þágu stefnu okkar og hug­sjóna. Ég er því, kæru félagar og vinir, hvergi nærri hætt að leggja mig fram í bar­áttu fyrir enn betra Íslandi og hlakka til fram­halds­ins!

Með bestu kveðjum,

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir,
vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár