Konur í lögmennsku mótmæla afstöðu Lögmannafélags - eru útilokaðar frá áhrifum

Félag kvenna í lög­mennsku er ósátt við Lög­manna­fé­lag Íslands og segir túlkun félags­ins um að dóm­stóla­lög gangi framar jafn­rétt­islögum sé „ótæk og til þess fallin að draga úr áhrifum jafn­rétt­islaga á vinnu­mark­aði sem og ann­ars staðar í sam­fé­lag­inu.“

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá félag­inu í til­efni frétta um skipun dóm­nefndar til að fjalla um hæfi umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti. Fimm karlar skipa þá nefnd, og karl­arnir fimm völdu Karl Axelsson hæf­astan þriggja umsækj­enda um emb­ætti hæsta­rétt­ar­dóm­ara á dög­unum.

Lög­manna­fé­lagið, Hæsti­réttur og dóm­stóla­ráð telja að þau séu ekki bundin af jafn­rétt­islögum þegar kemur að því að skipa sína full­trúa í dóm­nefnd­ina. Þau telja að ákvæði um nefnd­ina í lögum um dóm­stóla gangi framar jafn­rétt­islög­unum, og eftir bréfa­skriftir við dóms­mála­ráðu­neytið ákvað ráðu­neytið að láta undan og skipa ein­göngu karla í nefnd­ina.

„Stjórn FKL tekur undir með Guðrúnu Erlends­dóttur, fyrrum hæsta­rétt­ar­dóm­ara og heið­urs­fé­laga FKL, um að skipun fimm karl­manna í nefnd­ina sé hreint og klárt brot á jafn­rétt­islögum. Að mati FKL er brotið sér­lega alvar­legt í ljósi þess að í dag er ein­göngu ein kona skipuð dóm­ari við Hæsta­rétt og því einkar mik­il­vægt að jafna kynja­hlut­föll á vett­vangi þessa æðsta dóm­stóls lands­ins.“

Þá segir í yfir­lýs­ing­unni að fram­kvæmdin sem hefur verið við­höfð við skipun í nefnd­ina stríði gegn mark­miði lag­anna, sem sé að vinna að jöfnum áhrifum karla og kvenna í sam­fé­lag­inu. Þar með sé úti­lokað að konur geti haft áhrif á það hver verði skip­aður dóm­ari við Hæsta­rétt Íslands.



Félag kvenna í lög­mennsku sendir frá sér eft­ir­far­andi yfir­lýs­ingu vegna umfjöll­unar síð­ustu daga um skipun í nefnd er...

Posted by Félag kvenna í lög­mennsku on Friday, Sept­em­ber 25, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár