Bjarni Ben vill að ríkið verði áfram aðaleigandi Landsbankans „um langa framtíð“

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sér fyrir sér að ríkið verði áfram aðal­eig­andi í Lands­bank­anum um langa fram­tíð. Þetta kom fram í svari hans við fyr­ir­spurn Helga Hjörvars, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, á Alþingi í dag.

Helgi spurði Bjarna um áform um að selja hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum, en heim­ildir til sölu á hluta af hlut rík­is­ins hafa verið inni í fjár­lögum und­an­far­innar ár. Helgi spurði meðal ann­ars hvort Bjarna væri alvara með því að rétt sé að hefja einka­væð­ingu Lands­bank­ans á ný, og hvort Íslend­ingar hefðu ekki grætt meira á því und­an­farin ár að eiga bank­ann í stað þess að selja hann. Hann spurði einnig hvort ekki hefðu verið gerðar allt of litlar breyt­ingar á fjár­mála­kerf­inu frá hruni og hvort fjár­málaum­hverfið hér á landi væri ekki of óeðli­legt, meðal ann­ars vegna fjár­magns­hafta, að ráð­ast í sölu á Lands­bank­anum.

Bjarni sagði að hann hefði aldrei lagt það til að ríkið drægi sig alveg út sem eig­anda í Lands­bank­anum. Hann sæi fyrir sér að ríkið yrði áfram aðal­eig­andi í Lands­bank­anum um langa fram­tíð, en að allt að 30 pró­sent mætti selja, líkt og heim­ild hefði verið til lengi. Hann teldi það geta verið Íslend­ingum til hags­bóta að draga úr hlut rík­is­ins í bank­anum og hægt væri að nýta sölu­and­virðið til að borga niður skuldir og létta á vaxta­kostn­aði rík­is­ins. „Það var enda alltaf hug­myndin frá því að end­ur­reisn Lands­bank­ans stóð fyrir dyrum að ríkið myndi draga úr eigna­hlut sínum.“ Þannig væri hægt að bæði borða kök­una og eiga hana. „Við verðum áfram ber­andi, ráð­andi hlut­hafi.“

Hann sagði jafn­framt að gríð­ar­legar breyt­ingar í reglu­verki fjár­mála­fyr­ir­tækja og til dæmis væri Lands­bank­inn lík­lega best fjár­magn­aði bank­inn í Evrópu með yfir 20 pró­sent eigið fé.

Helgi sagði þetta gríð­ar­stóra ákvörðun að taka og það væri ótíma­bært að hefja slíkar aðgerðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár