Fjárhagsstaða sveitarfélaga fer versnandi - Launakostnaður þungur í skauti

Afkoma stærstu sveit­ar­fé­laga lands­ins virð­ist nú fara versn­andi. Uppgjör síð­asta árs og nýlegar tölur um afkomu þriggja stærstu sveit­ar­fé­laga lands­ins, Reykja­vík­ur­borgar, Kópavogs og Hafn­ar­fjarðar, ber þess glöggt vitni. Þetta kemur fram í umfjöllun grein­ing­ar­deildar Arion banka um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga.

Kostn­aður sveit­ar­fé­laga hafa hækkað hratt að und­an­förnu, ekki síst vegna hækk­unar á launa­kostn­aði umfram það sem áætl­anir gerðu ráð fyrir. „Í til­viki Kópa­vogs­bæjar jókst launa­kostn­aður t.a.m. um rúm 14 pró­sent á fyrri hluta árs­ins sam­an­borið við sama tíma­bil 2014 á meðan tekjur sveit­ar­fé­lags­ins juk­ust um fimm pró­sent. En laun og launa­tengd gjöld eru um helm­ingur af heild­ar­rekstr­ar­kostn­aði sveit­ar­fé­laga á Íslandi. Versn­andi afkoma kemur alls ekki á óvart og er í raun fram­hald af þróun síð­ast­lið­ins árs þar sem veru­leg sveifla var til hins verra í afkomu íslenskra sveit­ar­fé­laga eftir mik­inn rekstr­ar­bata árin þar á undan,“ segir í umfjöllun grein­ing­ar­deildar Arion banka.

[caption id="attachment_38488" align="alignnone" width="660"] Eins og sést á þess­ari mynd, þá hefur þró­unin verið nei­kvæð í fjár­málum stærstu sveit­ara­fé­laga lands­ins að und­an­förnu. Mynd: Arion banki.[/caption]

Laun og launa­tengd gjöld eru um helm­ingur af heild­ar­rekstr­ar­kostn­aði sveit­ar­fé­laga á Íslandi, og því eru miklar áskor­anir framundan í rekstri sveit­ar­fé­laga þar sem launa­hækk­anir sem samið hefur verið um, munu hafa mikil áhrif á grunn­rekst­ur­inn.

[caption id="attachment_38489" align="alignnone" width="650"] Á heild­ina litið, sé litið til fjár­hags­stöðu 27 sveit­ar­fé­laga sem eru með 1.500 ibúa eða fleiri, þá hefur staðan farið versn­andi. Mynd: Arion banki.[/caption]

Eins og fram kom í umfjöllun Kjarnans, 27. ágúst síð­ast­lið­inn, þá var rekstr­ar­nið­ur­staða sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar (A og B hluta) jákvæð um 303 millj­ónir króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Það er langtum minni afgangur en áætl­anir gerðu ráð fyrir, en í þeim var gert ráð fyrir 2.141 milljón króna afgangi á tíma­bil­inu. Ástæður fyrir slæmu hálfs­árs­upp­gjöri eru sagðar minni hagn­aður Orku­veitu Reykja­víkur vegna lækk­andi álverðs og einnig lak­ari afkomu A-hluta borg­ar­innar en áætlun gerði ráð fyrir. Þar ræður hækkun launa­kostn­aðar og minni sala á bygg­ing­ar­rétti mestu, að því er sagði í til­kynn­ingu borg­ar­innar. Alls nam tap af rekstri A-hluta rúmum þremur millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár