Sendiherra Rússlands vill að Ísland taki „fyrsta skrefið út“ úr viðskiptaþvingunum

„Það þjónar sam­eig­in­legum hags­munum að leysa þetta vanda­mál. Þeir sem tóku fyrsta skrefið inn eiga að taka fyrsta skrefið út, það var ekki okkar ákvörðun að byrja á þessu,“ segir Anton Vasiliev, sendi­herra Rúss­lands á Íslandi, um við­skipta­þving­anir Íslands á Rússland.

„Það voru Vest­ur­veldin sem áttu fyrsta leik og því miður hefur Ísland ákveðið að taka þátt í þeim þving­unum og ég vona að sú ákvörðun hafi verið tekin að vel ígrund­uðu máli og eftir langa íhugun um mögu­legar afleið­ingar,“ segir Vasiliev í við­tali í Við­skipta­blað­inu í dag.

Hann heldur því fram að vest­rænir fjöl­miðlar hafi afvega­leitt umræð­una um inn­limun Krím­skag­ans í Rússland. Það hafi alls ekki verið nein inn­limun, þar sem það hafi verið vilji fólks­ins á svæð­inu að verða hluti af Rúss­landi. Hann segir engan grun­vd­völl fyrir ásök­unum um að Rússar standi í stríð­inu þar og ekki heldur að Rússar hafi komið nálægt því að skjóta niður far­þega­þot­una MH17 frá Mala­ysian Airlines í fyrra.

Af þessum sökum séu við­skipta­þving­anir Vest­ur­landa ekki á rökum reistar. Rússar hafi hins vegar ákveðið að grípa til mót­væg­is­að­gerða til að vernda eigin hags­muni. „Við gerum okkur grein fyrir því að þau lönd sem verða fyrir mót­væg­is­að­gerðum okkar finna fyrir því, líkt og við finnum afleið­ingar þving­ana gagn­vart okkur. En við gerðum engan grein­ar­mun á þeim þjóðum sem við ákváðum að setja við­skipta­bann á. Við skiptum þeim ekki í góð lönd, slæm lönd, lítil lönd, stór lönd, það var ekki verið að beina spjótum okkar gegn neinu sér­stöku landi, ekki heldur Íslandi. Við erum ein­fald­lega að svara við­skipta­þving­unum með við­skipta­þving­unum,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár