Skuldir íslenska ríkisins hafa lækkað um 309 milljarða frá 2012

Skuldir íslenska rík­is­ins hafa lækkað um 309 millj­arða króna á núvirði frá árinu 2012. Þær munu minnka um 54 millj­arða krona eftir upp­kaup rík­is­sjóðs á eigin bréfum sem útgefin voru í banda­ríkja­dölum. Þetta kemur fram í áætlun Lánamála rík­is­ins sem sagt er frá í Morg­un­blað­inu.

Þar segir að eftir upp­greiðslu skulda­bréf­anna verði heild­ar­skuldir rík­is­ins 1.403 millj­arðar króna, eða 63,8 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu, og lækki um 2,5 pró­sent. Sér­stak­lega er þó tekið fram að spá Seðla­banka Íslands um verga lands­fram­leiðslu árið 2015 virð­ist nokkuð ríf­leg og hún mun geta haft áhrif á lækkun skulda.

Skuldir íslenska rík­is­ins voru 1.712 millj­arðar króna á núvirði í maí 2012. Þær hafa því lækkað um 309 millj­arða króna síðan þá, eða um 940 þús­und krónur á hvern Íslend­ing.

Losun hafta og greiðsla stöðugleikaskilyrða minnkar skuldir


Til við­bótar er við­búið að skuldir rík­is­ins verði greiddar niður umtals­vert í kjöl­far þess að slitabú föllnu bank­anna greiða hin svoköll­uðu stöð­ug­leika­skil­yrði, eða að á þau verði lagður stöð­ug­leika­skattur nái þau ekki að mæta skil­yrð­unum fyrir ára­mót. Stærstu kröfu­hafar Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans hafa allir samið við stjórn­völd um að mæta skil­yrð­unum en hversu hárri upp­hæð það muni skila í rík­is­sjóð liggur ekki fyrir. Í Morg­un­blað­inu þann 9. júní, dag­inn eftir að aðgerðir í afnámi hafta voru kynntar á fundi í Hörpu, kom fram í Morg­un­blað­inu að þær gætu skilað 698 millj­örðum króna.

Samkvæmt útreikn­ingum Kjarnans, sem miða við þau skil­yrði sem liggja til grund­vallar samn­ingnum í dag og hafa verið birt á heima­síðu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, verður sú upp­hæð hins vegar á bil­inu 300 til 400 millj­arðar króna. Takist slita­bú­unum ekki að mæta skil­yrð­unum fyrir árs­lok, meðal ann­ars með því að ljúka nauða­samn­ingum sínum, mun 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur falla á allar eignir þeirra. Hann myndi skila mun hærri tölu í rík­is­sjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár