Gunnar Bragi: Útgerðarmenn taka eiginhagsmuni fram yfir heildarhagsmuni

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra segir það óheið­ar­legt hvernig sumir útgerð­ar­menn hafa talað um ákvörðun Íslands um að styðja við­skipta­þving­anir gegn Rússum. Ef menn taki eig­in­hags­muni fram yfir heild­ar­hags­muni þá veltir hann því óneit­an­lega fyrir sér hvort þeir séu bestu menn­irnir til að fara með auð­lind­ina. Þetta er meðal þess sem kom fram í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í dag.

Gunnar Bragi ræddi þar um bann Rússa ásamt Jens Garðari Helga­syni, for­manni Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Jens fór yfir hversu miklir hags­munir væru undir vegna veru Íslands á list­anum og það mögu­lega tap sem sjáv­ar­út­veg­ur­inn gæti orðið fyrir. Gunnar Bragi sagði óljóst hvert tjónið yrði, ef það yrði eitt­hvað. Það myndi ráð­ast á því hvernig gangi að selja vörur á öðrum mörk­uðum.

Gunnar Bragi sagði að það hafi mátt búast við því að Ísland myndi lenda á lista Rússa yfir þjóðir sem inn­fluttn­ings­bann gildir gagn­vart. Hann segir það ekki hafa verið rætt um að hætta að styðja við­skipta­ving­anir helstu banda­manna Íslands gegn Rússum vegna við­skipta­hags­muna. "Ég hef ekki hugsað það þannig," sagði Gunnar Bragi. Hann vitn­aði svo í pistil eftir Pawel Bartoszek, sem birt­ist í Frétta­blað­inu í gær, til að útskýra hvað valdi því að Ísland styðju aðgerð­irnar gegn Rússum vegna inn­limunar þeirra á Krím­skaga í Úkraínu. Þar sagði Pawel: "Umhverfis Ísland er 200 mílna land­helgi. Okkar fáu varð­skip geta vit­an­lega ekki varið þessa eign okkar að ráði, nema hugs­an­lega fyrir ein­staka veiði­þjófi á furðu­fána. Við eigum allt okkar undir því að borin sé virð­ing fyrir alþjóða­lögum og land­helgi ríkja sé virt. Í ýtr­ustu neyð þurfum við síðan að reiða okkur á það að aðrar þjóðir verði til­búnar til að leggja líf eigin borg­ara í hættu til þess að við fáum áfram að eiga okkar fisk í friði. Við getum ekki ætl­ast til að þær geri það umhugs­un­ar­laust ef við sjálf erum ekki til í að færa neinar fórnir.“

Segir að Davíð Oddsson ætti að líta í spegil


Utan­rík­is­ráð­herra var síðan mjög harð­orður þegar hann ræddi orð­ræðu ýmissa for­kálfa sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja um ákvörðun Íslands að styðja aðgerðir gegn Rússum. Hann nefndi þar sér­stak­lega Gunnþór Ingvason, for­stjóra Síld­ar­vinnsl­unnar, sem hefur sagt að stjórn­völd á Íslandi eigi ekki að taka þátt í því að beita Rússa við­skipta­þving­unum, heldur gæta hlut­leysis í mál­inu. Utan­rík­is­ráð­herra, og hans fólk, eigi að ein­beita sér að því að gæta hags­muna íslenskra fyr­ir­tækja.

Gunnar Bragi sagði óheið­ar­legt hvernig þessir menn töl­uðu og hvatti Síld­ar­vinnsl­una til að taka sér engan arð á aðal­fundi sínum í vik­unni til að takast á við þá stöðu sem er uppi. Hann var líka spurður út í Reykja­vík­ur­bréf sem birt­ist í sunnu­dags­blaði Morg­un­blaðs­ins, og virð­ist vera skrifað af Davíð Oddssyni, fyrrum for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nú rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins. Í bréf­inu sendi Davíð Gunnari Braga tón­inn og sagði meðal ann­ars: "Fagráð­herr­ann tekur hins vegar heiti ráðu­neyt­is­ins alvar­lega og heldur sig helst utan ríkis og lætur „sína menn“ (eins og Össur kall­aði þá og gerir víst enn) um alla stefnu­mótun, sem er létt verk, enda stefnan í stórum dráttum óbreytt[...]Sagði eng­inn í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu ráð­herr­anum frá því, þegar hann leit við heima, um hvers konar við­skipta­bann væri að ræða? Og ef þeir gerðu það, kom hann þá þeim upp­lýs­ingum á fram­færi við rík­is­stjórn­ina?".

Gunnar Bragi sagð­ist gefa lítið fyrir gagn­rýni Davíðs. Við Davíð vilji hann segja: "Líttu í spegil og hugs­aðu aðeins um hvernig var staðið að því þegar ráð­ist var inn í Írak sem dæmi“. Davíð var for­sæt­is­ráð­herra þegar ákvörðun var tekin um að styðja inn­rás­ina í Írak á sínum tíma.

Utan­rík­is­ráð­herr­ann sagði það síðan holan hljóm þegar tals­menn sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna væru að tala um að hags­munir þjóð­ar­innar væru undir vegna ákvörð­unar um að styðja við­skipta­þving­anir gegn Rússum. Útflytj­end­urnir væru fyrst og síð­ast að hugsa um næsta árs­reikn­ingi. Hann kall­aði eftir því að þessir aðilar, sem treyst er fyirr auð­lind­inni, sýni sam­fé­lags­lega ábyrgð. Ef menn taki eig­in­hags­muni fram yfir heild­ar­hags­muni þá telji Gunnar Bragi óneit­an­lega rétt að velta fyrir sér hvort þeir séu bestu menn­irnir til að fara með auð­lind­ina.

Gunnar Bragi sagði það koma til greina að lækka veiði­gjöld vegna þeirra aðstæðna sem komnar eru upp. Það kæmi hins vegar ein­ungis til greina til að verja störf þess fólks sem starfar í sjáv­ar­út­vegi, ekki til að verja arð fyr­ir­tækj­anna innan grein­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár