Víglundur segir Gylfa Magnússon og Steingrím J. Sigfússon lögbrjóta

Víglundur Þor­steins­son hefur sent alþing­is­mönnum opið bréf þar sem hann fer fram á að þau „meintu og við­tæku lög­brot og afleið­ingar þeirra“ sem hann sendi þing­mönnum gögn um í jan­úar síð­ast­liðnum verði rann­sökuð af Rík­is­sak­sókn­ara. Í bréf­inu ned­ur­tekur hann fyrri ásak­anir á hendur íslenskum stjórn­mála­mönnum, emb­ætt­is­mönnum og eft­ir­lits­að­ilum sem hann segir að hafi framið lög­brot og með því haft af íslenskum fyr­ir­tækjum og heim­ilum um 400 til 500 millj­arða króna við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins á árinu 2009. Þessir fjár­munir hefðu verið færðir kröfu­höfum föllnu bank­anna.

Í bréf­inu segir að þessi verkn­aður hafi beinst gegn lög­mætum ákvörð­unum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem grund­vallar hafi á jafn­ræði og sann­girni við lausn á stærsta efna­hags­á­falli þjóð­ar­innar. „Í stað þess komu geð­þótta­á­kvarð­anir, ójafn­ræði, leynd, póli­tískur klíku­skapur og vild­ar­vina­greiðar með alvar­legum afleið­ingum fyrir okkur Íslend­inga. Með þessum ákvörð­unum sýn­ist mér sem tveir ráð­herrar hið minnsta, Stein­grímur J. Sig­fús­son og Gylfi Magn­ús­son hafi bakað sér ábyrgð sam­kvæmt reglum 8. og 9. laga um ráð­herra­á­byrgð, gegnið gegn reglum neyð­ar­laga og ann­arra laga svo sem almennra hegn­ing­ar­laga. Tekið sér vald sem Alþingi hafði falið Fjár­mála­eft­ir­lit­inu.“

Síðar í bréf­inu segir Víglundur: „Ég tel hafið yfir allan vafa að þau gögn sem ég hef sent Alþingi geymi ítar­legar upp­lýs­ingar um alvar­leg lög­brot ráð­hera, emb­ætt­is­manna og fleiri svo sem banka­manna á árunum 2009 til 2013.“

Brynjar tók ekki undir ásakanir Víglundar


Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Víglundur ber á torg ásak­anir sínar. Það gerði hann í byrjun árs 2014 og aftur í jan­úar síð­ast­liðnum.

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks sem situr í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, var fengin til að fara yfir málið og skil­aði skýrslu 17. febr­úar síð­ast­lið­inn. Í henni tók Brynjar ekki undir ásak­anir Víglundur um að svikum og blekk­ingum hefði verið beitt við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins til að gæta hags­muna erlendra aðila.

Víglundur taldi nið­ur­stöðu Brynjars ekki hrekja ásak­anir sínar og boð­aði að hann myndi svara skýrslu Brynjars með ítar­legum hætti fyrir miðjan mars­mánuð. Þau svör bár­ust í dag, 4. maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár