Illugi borgar 230 þúsund á mánuði, án hita og rafmagns, í leigu fyrir íbúðina sem hann seldi

Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, seldi íbúð sína í Vesturbæ Reykja­víkur til Hauks Harð­ars­sonar, eins eig­anda Orku Energy, fyrir 53,5 millj­ónir króna árið 2013 og leigir hana til baka á 230 þús­und krónur á mán­uði, án hita og raf­magns. Leigu­samn­ingur sem hann gerði við Hauk var til tveggja ára með vali á fram­leng­ingu. Frá þessu greinir Illugi í stöðu­upp­færslu á Facebook sem birt­ist í hádeg­inu í dag.





Í gær skýrði ég frá því að við hjónin gátum ekki haldið íbúð okkar eftir nokkur fjár­hags­leg áföll sem á okkur dundu...

Posted by Illugi Gunn­ars­son on Monday, April 27, 2015

Þar segir Illugi að þau hjónin hafi orðið fyrir nokkrum fjár­hags­legum áföllum fyrir nokkrum árum. "Hrunið lék okkur grátt eins og marga aðra af okkar kyn­slóð, gjald­þrot fyr­ir­tækis sem ég og tengda­faðir minn heit­inn áttum þýddi að á okkur féllu millj­óna ábyrgðir og tekju­missir sem ég varð fyrir þegar ég tók mér launa­laust leyfi frá þing­störfum gerði sitt. Við stóðum því frammi fyrir því að selja íbúð okkar eða eiga það á hættu að missa hana

. Í stað þess að aug­lýsa íbúð­ina leit­aði ég sjálfur að kaup­anda og varð það úr að Haukur Harð­ar­son, sem er einn eig­enda Orka Energy og starfar erlendis keypti íbúð­ina. Við gerðum sam­hliða samn­ing um leigu til tveggja ára og vali á fram­leng­ingu. Kaup­verðið var 53,5 millj­ónir og leigan 230 þús­und krónur (án hita og raf­magns) á mán­uði sem tók mið af mark­aðs­að­stæðum í Vest­ur­bænum þegar gengið var frá samn­ingum árið 2013."

Illugi seg­ist telja rétt að skýra frá þessu í ljósi þeirra spurn­inga sem hafi vaknað und­an­farið um tengsl hans við Orka Energy, en hann var við­staddur und­ir­ritum fyr­ir­tæk­is­ins á samn­ingi í vinnu­heim­sókn sinni til Kína nýverið. Illugi full­yrðir að teng­ing hans við Orku Energy, vegna kaupa eins eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins á íbúð hans sem síðan hafi verið leigð honum aftur, hafi engin áhrif á hver aðkoma fyr­ir­tæk­is­ins var að vinnu­heim­sókn­inni til Kína. "Ég vann verk­efni fyrir Orka Energy á árinu 2011 og fékk að mestu greitt fyrir það árið 2012 eins og sjá má af tekju­blöðum. Það varð kannski til að sem ráð­herra gerði ég örugg­lega minna fyrir þá heldur en þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra, Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir og Össur Skarp­héð­ins­son, þegar þau voru í Kína árið 2013 og ekki meira en Katrín Jak­obs­dóttir þáver­andi mennta­mála­ráð­herra gerði þegar hún var við­stödd und­ir­ritun samn­inga Orka Energy og kín­verskra stjórn­valda í Þjóð­menn­ing­ar­hús­inu árið 2012."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár