Fiskistofa að liðast í sundur vegna óvissuástands

Eyþór Björns­son Fiski­stofu­stjóri segir að vís­bend­ingar séu um að stofn­unin sé byrjuð að lið­ast í sundur vegna langvar­andi óvissu­á­stands um fram­tíð stofn­un­ar­innar. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Eins og fram hefur komið í fréttum verður Fiski­stofa ekki flutt norður til Akur­eyrar á þessu ári eins og til stóð. Í sam­tali við Morg­un­blaðið segir Eyþór að ákvörðun Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, að fresta flutn­ingi stofn­un­ar­innar ekki hafa komið á óvart.

„Það sem kom mér hins vegar gjör­sam­lega í opna skjöldu og veru­lega á óvart voru þau orð ráð­herr­ans, að hann legði ekk­ert höf­uð­kapp á að koma frum­varp­inu um flutn­ing á Fiski­stofu í gegn á yfir­stand­andi þingi,“ segir Eyþór í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Eyþór segir að sér lít­ist illa á að ekki sé stefnt á að koma frum­varp­inu í gegn á yfir­stand­andi þingi. „Ástæðan fyrir því er sú að við þolum ekki þessa óvissu lengur. Það er ann­að­hvort að hætta við flutn­ing­inn eða taka skrefið og klára það að taka ákvörðun. Við erum búin að vera í helj­ar­g­reipum óvissunnar frá því í júní í fyrra. Við höfum ekki getað ráðið í allar stöður sem hafa losnað og verið í enda­lausum redd­ingum, þegar fólk hefur hætt, til þess að setja undir lek­ana og bjarga okkur tíma­bundið, af því að við höfum alltaf verið að bíða eftir nið­ur­stöðu,“ er haft eftir Eyþóri í frétt Morg­un­blaðs­ins.

Fiski­stofu­stjóri segir að ítrekað hafi verið full­yrt í sín eyru að ekki yrði hvikað frá áformum um flutn­ing stofn­un­ar­innar til Akur­eyrar. „Mér var talin trú um það fram í des­em­ber­mánuð í fyrra að lög yrðu sett fyrir ára­mót og ákvörðun tekin. Bæði fram að því og síðan hef ég ítrekað vakið athygli á því að það séu blikur á lofti. Það hringja hér við­vör­un­ar­bjöllur um alla stofnun, vegna þess að við erum að missa út fólk. Það eru ákveðnar vís­bend­ingar um það að stofn­unin sé að byrja að lið­ast í sundur vegna þessa lang­dregna óvissu­á­stands. [...] Það er ekki hægt að bíða lengur. Ef menn ætla að bíða með laga­setn­ingu fram á haust­þing og setja lög fyrir ára­mót, þá verður þessi stofnun farin á hlið­ina,“ segir Eyþór Björns­son í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár