Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra er staddur á fundi í Slóvakíu til að tilkynna Evrópusambandinu um að Ísland sé ekki lengur í viðræðum um aðild að sambandinu, samkvæmt heimildum Kjarnans. Þingflokkar stjórnarflokkanna fengu tilkynningu um þetta fyrr í dag. Utanríkismálanefnd hefur ekki fjallað um málið og engin þingsályktunartillaga verið lögð fram um að hætta viðræðunum á þessu þingi.
Á vef RÚV
segir að Gunnar Bragi hafi nú rétt klukkan sex að íslenskum tíma afhend formanni Evrópusambandsins, sem er utanríkisráðherra Lettlands, bréf um að ríkisstjórn Íslands líti ekki lengur svo á að Íslands sé í hópi umsóknarríkja og að hún fari þess á leit við sambandið að það taki mið af því hér eftir. Í fréttinni er eftirfarandi haft eftir Gunnari Braga:„Við teljum að þessu máli sé lokið og ef menn vilja sækja um að nýju þá verði að leita til þjóðarinnar.“ Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar hafa látið í það skína undanfarna mánuði að ný tillaga um að slíta viðræðum við Evrópusambandið formlega væri í farvatninu. Búist var við því að hún yrði í formi þingsályktunartillögu og að viðræðuslit myndu fá þinglega meðferð.
Mikil mótmæli í fyrra
Nokkur þúsund manns mótmæltu nokkrar helgar í röð í febrúar og mars á síðasta ári í kjölfar þess að Gunnar Bragi lagði fram tillögu um að slíta viðræðum við Evrópusambandið. Frumvarpið var lagt fram í kjölfar birtingar skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands gerði um viðræðurnar. Samkvæmt henni voru verulega litlar líkur á því að Ísland geti fengið undanþágur frá grunnregluverki ESB. Skömmu síðar kom út skýrsla Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands sem sýndi allt aðra niðurstöðu og sagði að Ísland hefði þegar náð fram ýmis konar undanþágum.
Skipuleggjendur mótmælendanna, og margir þátttakendanna í þeim, töldu að stjórnarflokkarnir tveir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, hefðu lofað því fyrir síðustu kosningar að slíta ekki viðræðum við ESB nema að undangenginni þjóðaratkvæðargreiðslu um málið.
Að endingu var tillagan svæfð í nefnd.
Framvinda legið í loftinu
Legið hefur ljóst fyrir undanfarnar vikur að framvinda væri væntanleg í málinu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ljáði máls á því í lok síðasta árs og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra,sagði á Alþingi þann 20. janúar að hann gerði ráð fyrir því að ný tillaga yrði lögð fram innan fárra daga.
Hann kallaði jafnframt eftir efnislegri umræðu um það hvað það þýði fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið.
Meirihluti landsmanna vill ekki slíta viðræðum
Meirihluti landsmanna vill ekki að aðildarumsókn að Evrópusambandinu verði dregin til baka, samkvæmt nýlegri
könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir samtökin Já Ísland
. 35,7 prósent vilja að umsóknin verði dregin til baka en 11,1 prósent sögðust hvorki vera fylgjandi né andvígir.
Samkvæmt könnun Capacent Gallup hafa heldur aldrei fleiri verið hlynntir því að Ísland verði aðili að sambandinu en nú, eða 46,2 prósent. Tæp 54 prósent svarenda voru andvígir aðild.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir