Skattsvikarar fá eitt ár til að skila skattaundanskotum

Starfs­hópur sem skip­aður var í byrjun des­em­ber til að skoða hvort lög­festa eigi svo­kall­að­aðar „grið­ar­reglur“ fyrir þá sem hafa skotið eignum utan skatti kjósi þeir að greiða skatta­skuld sína hefur skilað nið­ur­stöðu sinni. Tillögur hóps­ins eru ann­ars vegar í formi draga að frum­varpi um „grið­ar­reglur“ og hins vegar í formi grein­ar­gerðar um laga­heim­ildir skatta­yf­ir­valda til að sporna gegn skattsvikum og ábend­ingum um úrbætur á þeim laga­heim­ildum.

Í drög­unum að laga­frum­varpi um málið segir að þeir sem kjósi að nýta sér „grið­ar­regl­urnar“ geti frá fyrsta júlí næst­kom­andi og út júní á næsta ári til að skila skattaund­anskotum sínum. Geri þeir það munu þeir ekki þurfa að sæta refs­ingu.

Listi yfir það sem má skoða betur


Í frum­varps­drög­unum stendur: „Hver sá skatta­að­ili sem á tíma­bil­inu frá 1. júlí 2015 til 30. júní 2016 óskar að eigin frum­kvæði eftir leið­rétt­ingu á álögðum opin­berum gjöldum vegna ófram­tal­inna tekna eða eigna erlendis skal ekki sæta þeim refs­ingu sem mælt er fyrir í 109. gr. Ákvæði 1. mgr. á ekki við ef þegar er hafið skatta­eft­ir­lit, skatt­rann­sókn eða lög­reglu­rann­sókn á fram­tals­skilum skatta­að­il­ans vegan tekna eða eigna erlendis. Hið sama gildir ef rann­sókn er hafin á skatta­að­ila á grund­velli laga nr. 64/2006, um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka“.

Í grein­ar­gerð hóps­ins er listað upp það sem hópnum finnst að þurfi að skoða betur í þessum málum hér­lendis. Þar segir að nýta eigi nið­ur­stöðu vinnu hjá OECD, breyta lögum vegna inn­leið­ingar á sam­ræmdum upp­lýs­inga­staðli OECD, berj­ast gegn kenni­tölu­flakki, auka sam­vinnu rík­is­skatt­stjóra og inn­heimtu­manna rík­is­ins, auka sam­vinnu vegna bóta­svika, auka sam­vinnu vegna pen­inga­þvætt­is­mála sem tengj­ast skattsvikum og toll­krít.

Hópurinn skipaður í byrjun desember


Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra tók ákvörðun um að skipa starfs­hóp­inn í byrjun des­em­ber 2014. Í hópnum eru Ása Ögmunds­dóttir, lög­fræð­ingur, Guðrún Jenný Jóns­dóttir lög­fræð­ingur til­nefnd af Skatt­rann­sókn­ar­stjóra, Lísa K. Yoder lög­fræð­ingur til­nefnd af Skatt­rann­sókn­ar­stjóra, og Guðni Ólafsson við­skipta­fræð­ingur.

Samkvæmt til­kynn­ingu sem send var út vegna skip­unar hóps­ins átti hann að skila nið­ur­stöðum eigi síðar en 15. febr­úar. Hann fékk síðar við­bót­ar­frest til dags­ins í dag að skila nið­ur­stöðum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár