Helmingur Íslendinga á 750 þúsund eða minna

Helm­ingur fólks á Íslandi á 750 þús­und krónur eða minna, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem lesa má útúr gögnum frá Rík­is­skatt­stjóra. Þar af eru 30 pró­sent þjóð­ar­innar sem eiga minna en ekk­ert, en RÚV gerði að umtals­efni í umfjöllun sinn í gær að eitt pró­sent þjóð­ar­innar ætti tæp­lega fjórð­ung af öllum auði þjóð­ar­innar, og setti meðal ann­ars í sam­hengi við rann­sókn mann­úð­ar­sam­tak­anna Oxfam, sem kynnt var árlegum fundi í Davos í Sviss þar sem rík­asta fólkið í heim­inum fundar með þjóð­ar­leið­tögum og fleirum, á þriggja daga fundi um stöðu mála í heim­inum. Samkvæmt henni á rík­asta eitt pró­sent jarðar um helmn­ing auðs í heim­inum, og 80 rík­ustu ein­stak­ling­arnir eiga meira en fátæk­asti helm­ingur jarð­ar­búa.

Í frétt RÚV frá í gær kom fram að rík­asta eitt pró­sentið á Íslandi, um 1.900 skatt­greið­endur, á að með­al­tali 244 millj­ónir króna umfram skuldir. Hið ríka eina pró­sent á því tæp­lega 23% alls auðs lands­manna.

[caption id="attachment_17694" align="alignnone" width="491"] Þessi mynd var birt í frétt Tryggva Aðal­björns­sonar frétta­manns, í frétta­tíma RÚV í gær. Hún sýnir skipt­ingu auðs þjóð­ar­innar.[/caption]

Sú fjöl­skylda eða sá ein­stak­lingur sem er akkúrat í miðj­unni á um 750 þús­und krónur umfram skuldir.

Í frétt RÚV, frá því í gær, kom fram að sam­kvæmt gögn­unum sá hluti eigna sem væri í verð­bréfum væri skráður á nafn­virði, sem oft er aðeins hluti af raun­veru­legu verð­mæti þeirra. Að teknu til­liti til þess getur mun­ur­inn á eigna­stöðu hinna rík­ustu og þeirra sem minnst eiga, verið enn meiri. Upp­lýs­ingar um eigna­stöðu fólks, eftir því hvort það á hús­næði eða ekki, má sjá hér í gögnum sem Páll Kolbeins tók saman fyrir Alþingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár