Hlutfall Íslendinga sem skráðir eru í þjóðkirkjuna í fyrsta sinn undir 60 prósent

Hátt í 150 þús­und íbúar lands­ins standa utan þjóð­kirkj­unnar. Meiri­hluti þjóð­ar­innar hefur verið fylgj­andi aðskiln­aði ríkis og kirkju sam­kvæmt könn­unum frá árinu 2007. Lands­menn treysta biskup og þjóð­kirkj­unni lítið.

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, ásamt Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, við þingsetningu Alþingis í nóvember í fyrra.
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, ásamt Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands, við þing­setn­ingu Alþingis í nóv­em­ber í fyrra. Mynd: Bára Huld Beck

Alls voru 59,9 pró­sent lands­manna skráðir í þjóð­kirkj­una 1. júlí síð­ast­lið­inn. Það er í fyrsta sinn sem hlut­fall þeirra sem skráðir eru í hana fer undir 60 pró­sent. Þetta má lesa úr nýjum tölum Þjóð­skrár um skrán­ingu í trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög.

Árið 1992 voru 92,2 pró­­­­­­­sent lands­­­­­­­manna skráðir í þjóð­­kirkj­una. Síð­ast­liðna ára­tugi hefur hlut­fall þeirra sem til­heyra henni dreg­ist saman og frá árinu 2009 hefur með­­­­limum þjóð­­­­kirkj­unnar fækkað á hverju ári.

Trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög hér á landi fá sókn­ar­gjöld greidd fyrir hvern skráðan ein­stak­ling, 16 ára og eldri. Á árinu 2022 greiðir ríkið 1.107 krónur á mán­uði á hvern ein­stak­ling í hverju félagi fyrir sig. Alls fara um átta millj­arðar króna í mála­flokk­inn trú­mál á næsta ári sam­kvæmt fjár­lög­um þessa árs. Í sam­ræmi við nýjan við­bót­ar­samn­ing um end­­ur­­skoðun á kirkju­jarð­­ar­­sam­komu­lag­inu frá 1997 og samn­ingi um rekstr­­ar­­kostnað kirkj­unnar frá 1998 sem var und­ir­rit­aður fyrir tæpum þremur árum fær þjóð­kirkjan þorra þess­arar upp­hæð­ar. Árlega fær hún fram­lög frá rík­­inu á grund­velli kirkju­jarða­­sam­komu­lags­ins sem og fram­lög sem renna til Kirkju­­mála­­sjóðs og Jöfn­un­­ar­­sjóðs sókna, auk meg­in­þorra sókn­ar­gjalda. Í kirkju­jarða­sam­komu­lag­inu fólst að ríkið yfir­tók hund­ruð jarða sem kirkjan átti upp­haf­lega, gegn því að greiða laun presta.

Næstum 150 þúsund manns standa utan þjóðkirkju

Í byrjun þessa mán­aðar voru 228.298 manns skráðir í þjóð­kirkj­una, sem er enn lang­fjöl­menn­asta trú­fé­lag lands­ins þrátt fyrir mikla fækkun innan þess á und­an­förnum árum og ára­tugum. Alls hefur þeim sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una fækkað um 968 frá því í des­em­ber 2021. Skrán­ingar í þjóð­kirkj­una náðu hámarki í byrjun árs 2009, þegar 253.069 voru skráðir í hana. Síðan þá hefur þeim fækkað um næstum 25 þús­und auk þess sem kirkj­unni hefur ekki tekið að laða til sín hlut­deild í þeirri fjölgun sem orðið hefur á íbúum á Íslandi á tíma­bil­inu, en íbúum hér hefur fjölgað um næstum 60 þús­und frá 2009.

[adspot]Þeir sem standa utan þjóð­kirkj­unnar eru, sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár, 146.464 og hafa aldrei verið fleiri. Af þeim eru 29.620 skráðir utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga en 65.975 eru skráðir ótil­greindir. Í síð­ari hópnum eru erlendir rík­is­borg­arar uppi­staðan.

Um síð­ustu alda­mót stóðu alls tæp­lega 31 þús­und manns utan þjóð­kirkj­unn­ar. Það hefur því fjölgað í þeim hópi um meira en 105 þús­und manns á rúmum tveimur ára­tugum.

Sá söfn­uður sem hefur vaxið hvað hrað­ast síð­ast­lið­inn ár er kaþ­ólska kirkjan. Skrán­ingar í hana fjór­föld­uð­ust á 20 ára tíma­bili og í dag eru skráðir með­limir 14.709 tals­ins.

Í umfjöllun Kjarnans um þessa aukn­ingu frá árinu 2019 kom fram að hún sé fyrst og síð­ast vegna þess að hingað til lands eru að flytja hópar erlendra rík­is­borg­ara frá löndum þar sem kaþ­ólska kirkjan er sterk. Þar munar mest um Pól­verja, sem eru fjöl­­­menn­­asti hópur erlendra rík­­­is­­­borg­­­ara hér á landi.

Lítið traust og meirihluti vill aðskilnað

Þeim Íslend­ingum sem treysta þjóð­kirkj­unni hefur fækkað um helm­ing frá alda­mótum, en í könnun sem var birt snemma á þessu ári sögð­ust 29 pró­sent lands­manna bera mikið traust til henn­ar. Af þeim stofn­unum sam­fé­lags­ins sem spurt var um traust til mæld­ust ein­ungis tvær með minna traust en þjóð­kirkjan: banka­kerfið (23 pró­sent) og borg­ar­stjórn Reykja­víkur (21 pró­sent).

Önnur ástæða fyrir fækkun í þjóð­kirkj­unni sem blasir við er sú að ára­tugum saman var skipu­lag mála hér­­­lendis þannig að nýfædd börn voru ætið skráð í trú­­­­­­­fé­lag móð­­­­­­­ur. Það þurfti því sér­­­­­­­stak­­­­­­­lega að skrá sig úr trú­­­­­­­fé­lagi í stað þess að skrá sig inn í það.

Þessu var breytt árið 2013 og nú þurfa báðir for­eldrar að til­­­­­heyra sama trú- og lífs­­­­­skoð­un­­­­­ar­­­­­fé­lagi til að barnið sé skráð í félag, ann­­­­­ars skrá­ist barnið utan­ ­trú­­­­­fé­laga. Á sama tíma var ramm­inn utan um hvers kyns félög mættu skrá sig sem trú- og líf­­­skoð­un­­­ar­­­fé­lög og þiggja sókn­­­ar­­­gjöld rýmk­að­­­ur.

Kjarn­inn greindi frá því í nóv­em­ber í fyrra að ein­ungis 15 pró­­sent lands­­manna eru ánægð með störf Agn­­esar M. Sig­­urð­­ar­dótt­­ur, bisk­­ups Íslands, sam­­kvæmt þjóð­­ar­púlsi Gallup.

Alls sögð­ust 51 pró­­sent lands­­manna að þeir vildu aðskilnað ríkis og kirkju. Hlut­­fallið hefur verið yfir 50 pró­­sent í næstum árlegum könn­unum Gallup frá árinu 2007.

Í þjóð­­ar­púls­inum sást að fólk undir fer­tugu er helst hlynnt aðskiln­að­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár