Sjálfrennireiðar

Í fram­tíðinni mun það eflaust vekja furðu hversu mikið hefur verið lagt undir bíla.

Vegur 62
Vegur 62 Liggur til Funn­ingur á Eysturoy, Færeyjum. Mynd: Páll Stefánsson

Þegar sagn­fræðingar líta til baka eftir hundrað ár verður það sem kemur þeim líklega mest á óvart öld bílsins, frá 1920 til 2020. Hverning þetta tæki náði svona mikilli útbreiðslu, brennandi jarðefna­eldsneyti hægri vinstri. Hvað það voru settir miklir aurar í að byggja vegi, göng og brýr til að komast frá a til b. Og hversu mikið borgar­land fór undir bifreiðar, í formi bílastæða og gatna. 

Pan American Highway 30 þúsu Líma, höf­uð­borg Perú. Alls tekur 22 sól­ar­hringa að keyra veg­inn á enda.

Heimsins lengsti vegur

Í upphafi bíla­aldarinnar, fyrir 97 árum, voru lögð drög að lengsta vegi veraldar, Pan American Highway. Vegurinn er rúmlega 30.000 km langur, frá Sagavanirktok, 400 km norðan við heimskauts­baug í Alaska, og alla leið suður til Ushuaia við Eldland Argentínu. Vegurinn var að mestu kláraður í atvinnubóta­vinnu eftir kreppuna miklu 1929. Hraða­metið að aka þennan langa veg, alla þessa 30.000 km gegnum 14 lönd, eru 22 sólar­hringar. 

Ef manni leiðist að keyra svona langt, þá eru Færeyjar upplagðar, en lengsti spottinn að keyra (án þess að taka ferju) er um 70 km, frá Kirkjubæ sunnan við Þórshöfn og norður í Viðareyði á Vidoy. Ótrúlega falleg leið. 

Sala á bílum hrynur

Í þessari heims­kreppu sem nú er, þá eru bifreiða­fram­leiðendur næst á eftir ferðamanna­iðnaðinum sem tapa mestu. Fólk heldur að sér höndum, sala á nýjum bílum hefur hrunið. Verksmiðjur eru að loka úti um allan heim. En á síðasta ári voru framleidd  97 milljónir ökutækja. Kreppan nú flýtti bara ferli sem var þegar hafið. Jafnvel bíla­borgir eins og New York City voru byrjaðar að þrengja að einka­bílnum. Bara á síðasta ári var bíla­stæðum í borginni fækkað um 6.100, til að skapa pláss fyrir hjóla­stíga. Aðrar bandarískar borgir, eins og Portland, Austin og Boston, eru með metnaðar­full plön um að gera borgirnar eins hjóla­vænar og þekkist nú í norðan­veðri Evrópu. 

Íslendingar með bronsið

Hér heima hefur einka­bíllinn enn ansi sterka stöðu; við erum í þriðja sæti á heimsvísu með 824 bíla á hverja 1.000 íbúa. Efstir eru Nýsjá­lendingar með 860 bíla meðan Bandaríkja­menn eru í öðru sæti með 838 bíla. Botnsætið verma íbúar afríska eyríkisins São Tomé and Príncipe með bara 2 bíla á hverja 1.000 íbúa. Sómalía er með 3 og Bangladess í þriðja neðsta sæti með 4, en þar, þrátt fyrir það, hef ég aldrei á minni ævi lent í meira umferðar­öngþveiti en í höfuð­borginni Dakka. Og ekki er ástandið betra þegar upp í sveit er komið, það tók mig átta tíma að aka 100 km spotta eftir hrað­brautinni frá næst­stærstu borginni, Chittagong, suður að landa­mærum Búrma. Sjálf­rennireiðar af öllum gerðum, bak í bak alla leiðina. 

Leigu­bíll í DakkaÞótt víð­ast hvar séu fleiri bílar í borgum heims­ins er umferð­ar­öng­þveitið í höf­uð­borg Bangla­dess engu líkt.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár