„Ísland er og verður herlaus þjóð“

For­sæt­is­ráð­herra segir utan­rík­is­stefnu Íslands skýra í öldurót­inu sem ríkir í alþjóða­kerf­inu. „Ísland er og verður her­laus þjóð,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir í þjóð­há­tíðar­æðu sinni.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði þjóðina á Austurvelli í tilefni þjóðhátíðardagsins.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ávarp­aði þjóð­ina á Aust­ur­velli í til­efni þjóð­há­tíð­ar­dags­ins. Mynd: Skjáskot: RÚV

Leiðin út úr heims­far­aldri, stríðið í Úkraínu, utan­rík­is­stefna Íslands, ramma­á­ætlun, lofts­lags­váin, fæðu­ör­yggi og hús­næð­is­ör­yggi er meðal þess sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra gerði að umtals­efni í ræðu sinni við hátíð­ar­höld á Aust­ur­velli á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn.

„Innrás Rúss­lands í Úkraínu hefur haft og mun hafa hrika­legar afleið­ingar,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra og lagði ríka áherslu á stuðn­ing íslenskra stjórn­valda við Úkraínu sem er afdrátt­ar­laus. „Nú þegar hafa komið hingað til lands tæp­lega 1200 Úkra­ínu­menn og það er mik­il­vægt að taka vel á móti þeim sem og öðru flótta­fólki.“

Nýtt hættumat og endurskoðun á þjóðaröryggisstefnu væntanleg í ár

For­sæt­is­ráð­herra sagði það vera við­var­andi verk­efni stjórn­valda á hverjum tíma að end­ur­skoða öryggis- og varn­ar­mál sín. Sú vinna stendur nú yfir í tengslum við nýtt hættu­mat og end­ur­skoðun á þjóðar­ör­ygg­is­stefnu Íslands á vett­vangi Þjóðar­ör­ygg­is­ráðs. „Fregna af hvoru tveggja er að vænta á síð­ari hluta þessa árs“ sagði Katrín.

Utan­rík­is­stefna Íslands hefur verið skýr í ölduróti alþjóða­sam­fé­lags­ins sem nú ríkir að mati for­sæt­is­ráð­herra. „Ísland er og verður her­laus þjóð sem byggir full­veldi sitt á virð­ingu fyrir alþjóða­lögum og virku sam­starfi við önnur ríki á vett­vangi alþjóða­stofn­ana,“ sagði Katrín í ræðu sinni.

„Sem traustur og áreið­an­legur þátt­tak­andi í alþjóða­kerf­inu er Ísland öðru fremur málsvari mann­rétt­inda, lýð­ræðis og rétt­ar­ríkis. Og hér eftir sem hingað til notum við rödd okkar til að tala fyrir rétt­indum kvenna og stúlkna, fyrir umhverfis- og lofts­lags­málum, og fyrir friði og afvopnun.“

Efnahagssamdráttur skapar kjörlendi fyrir lýðskrumara

Þá sagði hún brýnt að afvopnun verði áfram í for­grunni þótt mörg ríki heims séu að auka útgjöld til her­mála. Katrín sagði það einnig brýnt að „ver­öldin ani ekki út í nýtt víg­bún­að­ar­kapp­hlaup með til­heyr­andi hörm­ungum“.

„Fámennar og frið­samar þjóðir eins og Ísland eru í engri stöðu til að hafa betur í hern­að­ar­á­tökum“ sagði for­sæt­is­ráð­herra, sem telur ógnir stríðs­ins fyrir Ísland vera af öðrum toga en þeirra sem nær þeim búa. Evrópu stafar ógn af efna­hags­legum áhrifum stríðs­ins og nefndi for­sæt­is­ráð­herra hækk­anir á olíu og gasi sem og hættu á mat­ar­skorti í því sam­hengi.

„Afleið­ingar þessa sjáum við meðal ann­ars birt­ast í verð­bólgu og veru­legri hættu á efna­hags­sam­drætti og slíkt skapar auð­vitað kjör­lendi fyrir lýð­skrumara sem jafnan hafa á reiðum höndum ein­föld svör við flóknum spurn­ingum.“

Rammaáætlun stuðlar að jafnvægi verndar og nýtingar

[links]Nýsam­þykkt ramma­á­ætlun kom einnig við sögu í ræðu for­sæt­is­ráð­herra sem sagði að áfram eigi að vinna eftir fag­legu ferli í mati á virkj­ana­kostum í gegnum ramma­á­ætlun. Þriðji áfangi ramma­á­ætl­unar var sam­þykktur með 34 atkvæðum á Alþingi í vik­unni þar sem meiri­hluta­á­lit umhverfis- og sam­göngu­nefndar var sam­þykkt sem felur meðal ann­ars í sér að virkj­anir í Hér­aðs­vötnum og við Þjórs­ár­ver eru komnar aftur á dag­skrá.

Katrín sagði ramma­á­ætlun stuðla „að hinu mik­il­væga jafn­vægi verndar og nýt­ingar og halda því til haga að vernd skilar okkar sam­fé­lagi ómet­an­legum gæðum sem verða æ eft­ir­sókn­ar­verð­ari í heim­inum á 21. öld­inni – þar sem ósnortin nátt­úra verður æ fágæt­ari“.

Húsnæðismál eitt stærsta kjaramál heimilanna

Þó ný kreppa hafi tekið við af heims­far­aldr­inum með stríðs­á­tökum sagði Katrín margt jákvætt vera að ger­ast á Íslandi. Vísaði hún í nið­ur­stöður lífs­kjara­rann­sóknar Hag­stof­unnar fyrir árin 2019 til 2021 sem sýna að hlut­fall heim­ila sem eiga erfitt með að láta enda ná saman hefur aldrei mælst lægra og færri telja byrði hús­næð­is­kostn­aðar þungan. Hlutfall heim­ila sem segj­ast búa við efn­is­legan skort er nálægt sögu­legu lág­marki og aldrei hafa færri heim­ili sagst eiga í erf­ið­leikum með að mæta óvæntum útgjöldum.

„Þessar tölur segja sitt, þær skipta máli og sýna góðan árangur hinnar félags­legu efna­hags­stefnu. En þær segja ekki alla sög­una,“ sagði Katrín. Rík­is­stjórnin ætlar að setja hús­næð­is­mál í for­gang enda er um eitt stærsta kjara­mál heim­il­anna að ræða að sögn for­sæt­is­ráð­herra þar sem stærsta verk­efnið er að tryggja aukið hús­næð­is­ör­yggi. „Gott sam­starf ríkis og sveit­ar­fé­laga hefur hér mikla þýð­ingu. Aukið fram­boð á hús­næði ásamt öfl­ugri aðstoð, ekki síst við þau sem eru á leigu­mark­aði, ræður miklu um lífs­af­komu þeirra fjöl­skyldna sem búa við hvað lök­ust kjör í land­inu.“

Full ástæða til að vera bjartsýn

Hvað sem stríði, óvissu í efna­hags­málum og ekki síst lofts­lags­vánni líður telur for­sæt­is­ráð­herra fulla ástæðu til að vera bjart­sýn. „Við höfum sett okkur metn­að­ar­full mark­mið, raun­hæfar áætl­anir og lagt fram fjár­magn til að fylgja þeim eftir. Sá metn­aður og áhugi sem ég finn í sam­fé­lag­inu öllu er áþreif­an­legur, almenn­ingur og atvinnu­líf leita stöðugt nýrra og skap­andi lausna til að draga úr losun sem skila oft líka betri lífs­gæðum og auk­inni hag­kvæmni,“ sagði Katrín um stöð­una í bar­átt­unni gegn lofts­lags­vánni.

Lýðræði var for­sæt­is­ráð­herra hug­leikið á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn og sagði hún það hafa átt undir högg að sækja.

„Við þurfum stöðugt að halda vöku okkar – lýð­ræðið getur horfið á einni svip­stundu – jafn­vel þótt það hafi lengi verið við lýði. Og í dag,, þegar við fögnuð þbí að lýð­veldið Ísland er78 ára, þá vil ég segja: Látum lýð­ræðið verða okkar leið­ar­ljós á þessum þjóð­há­tíð­ar­degi og öllum þeim dögum sem á eftir honum koma. Lýðræðið á að vera sú saga, það ljóð, sem við kjósum okkur til handa alla tíð,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir, áður en hún óskaði Íslend­ingum til ham­ingju með þjóð­há­tíð­ar­dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár