Þegar Már Guðmundsson var endurskipaður seðlabankastjóri

Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins hefur opin­berað að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafi bæði gefið það til kynna og sagt ýmsum frá því að hann ætl­aði sér ekki að end­ur­skipa Má Guð­munds­son sem seðla­banka­stjóra árið 2014.

Í febr­úar 2014 var mikil ólga á meðal starfs­manna Seðla­banka Íslands vegna ann­ars vegar mik­illar gagn­rýni ráða­manna og full­trúa þeirra á störf bank­ans í tengslum við skulda­leið­rétt­ing­una. Sú gagn­rýni var harð­ast sett fram af Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, þá for­sæt­is­ráð­herra og for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Þann 19. febr­úar 2014 til­kynnti Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra að staða hans yrði aug­lýst til umsóknar, en fimm ára skip­un­ar­tími Más átti að renna út í júlí sama ár. Heimild var fyrir því að láta skipun Más end­ur­nýj­ast sjálf­krafa um önnur fimm ár þar sem seðla­banka­stjórar mega sitja tvö fimm ára tíma­bil. Þessi dagur í febr­úar var síð­asti dag­ur­inn sem Bjarni gat ákveðið að aug­lýsa stöð­una. Daginn eftir hefði ráðn­ing Más end­ur­nýj­ast sjálf­krafa sam­kvæmt lögum.

Í frétta­skýr­ingu Kjarnans kom fram að margir við­mæl­enda hans innan Seðla­banka Íslands ótt­uð­ust að ákvörð­unin um að aug­lýsa stöðu seðla­banka­stjóra lausa til umsóknar væri til­raun til að ganga gegn sjálf­stæði bank­ans og fag­legri yfir­stjórn hans vegna grein­ingar hans á áhrifum skulda­leið­rétt­ing­ar­innar, stærsta ein­staka kosn­inga­máli Sig­mundar Davíðs og Fram­sókn­ar­flokks­ins á þessum tíma. Sumir lyk­il­manna voru sann­færðir að um hefnd­ar­að­gerð væri að ræða. Auk þess stæði til að færa fyr­ir­komu­lag yfir­stjórnar bank­ans til þess horfs sem var fyrir hrun, þegar banka­stjór­arnir voru þrír og hefð hafði skap­ast fyrir því að stjórn­mála­menn væru á meðal þeirra. Skýrustu dæmin um það voru Finnur Ing­ólfs­son, fyrr­ver­andi vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, sem gegndi stöðu for­manns banka­stjórnar fram á árið 2009.

Opinbera skýr­ingin sem gefin var á því að staðan yrði aug­lýst var þó önnur. Stjórn­völd höfðu boðað end­ur­skoðun á lögum um Seðla­banka Íslands, og sér­stak­lega á fyr­ir­komu­lagi yfir­stjórnar hans, og ætl­uðu að skipa starfs­hóp til að leggja mat á æski­legar breyt­ingar. Æskilegt þætti að þau hefðu meira svig­rúm en þau töldu að væri til staðar ef Már yrði skip­aður í fimm ár til við­bótar.

Í sér­stakri umræðu sem fór fram á Alþingi vegna þessa þriðju­dag­inn 25. febr­úar 2014 kom þó fram í máli Bjarna að ólík­legt væri að frum­varp um breyt­ingar á lögum um Seðla­bank­ann myndi verða lagt fram þá um vorið. Vandséð var því að aug­lýs­ing á stöðu hans hefði skapað það svig­rúm sem vísað var í sem ástæðu fyrir aug­lýs­ingu á starfi hans.

Það áttu síðan eftir að líða rúm fimm ár þangað til að lög um breyt­ingar á Seðla­banka Íslands voru á end­anum sam­þykkt. Það gerð­ist í lið­inni viku þegar slík lög, sem fela í sér sam­ein­ingu hans við Fjár­mála­eft­ir­litið og fjölgun í yfir­stjórn bank­ans. Samkvæmt lög­unum verður einn aðalseðla­banka­stjóri en þrír vara­seðla­banka­stjórar. Einn mun leiða mál­efni er varða pen­inga­stefnu, einn leiða mál­efni er varða fjár­mála­stöð­ug­leika og einn leiða mál­efni er varða fjár­mála­eft­ir­lit. Vara­seðla­banka­stjórar fjár­mála­stöð­ug­leika og fjár­mála­eft­ir­lits verða skip­aðir eftir til­nefn­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Seðla­banka­stjór­inn og vara­seðla­banka­stjór­inn sem fer með pen­inga­stefn­una verða skip­aðir af for­sæt­is­ráð­herra.

Vöruðu við afleiðingum

Már, og aðrir lyk­il­menn innan Seðla­banka Íslands, komu fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis í nóv­em­ber 2013 og sögðu þar að láns­hæf­is­ein­kunn rík­is­sjóðs yrði mögu­lega lækkuð niður í rusl­flokk ef sjálf­stæði bank­ans yrði haft að engu og hann skikk­aður til að fjár­magna skulda­leið­rétt­inga­hug­myndir rík­is­stjórn­ar­innar, eins og þá hafði verið viðrað, en fram­kvæmdin var þá ófjár­mögnuð. Á end­anum var fjár­magnið í hana, alls 72,2 millj­arðar króna, tekið úr rík­is­sjóði.

Sig­mundur Davíð, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, brást mjög hart við þessum yfir­lýs­ingum Seðla­bank­ans og sagði í sjón­varps­við­tali 18. nóv­em­ber sama át að bank­inn væri að stunda póli­tík frekar en að sinna lög­bundnum verk­efnum sínum. Það ætti ekki við um alla sem þar ynnu en nokkrir starfs­menn væru í stöðugri póli­tík. Á Við­skipta­þingi, sem fór fram 12. febr­úar 2014, flutti Sig­mundur Davíð svo þrumu­ræðu, en sama dag hafði komið fram grein­ing pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka ÍSlands á mögu­legum áhrifum skulda­leið­rétt­ing­ar­innar á efna­hags­horfur. Þar voru áhrifin metin meiri en ráða­menn höfðu sagt þegar þeir kynntu „Leið­rétt­ing­una“ í nóv­em­ber árið áður. Í ræðu sinni furð­aði Sig­mundur Davíð sig á for­gangs­röðun Seðla­bank­ans og að hann skyldi leggja í mikla vinnu við slíka grein­ingu „óum­beð­inn“. Í frægu sjón­varps­við­tali við Gísla Martein Bald­urs­son, sem fram fór 16. febr­úar 2014, sagði Sig­mundur Davíð að hann hefði um nokk­urt skeið verið ósam­mála mörgu í stefnu Seðla­bank­ans og að það væri mik­il­væg­ara að standa vörð um sjálf­stæði hans ef önnur rík­is­stjórn en sú sem hann leiddi væri við stjórn­völ­inn.

Ummæli for­sæt­is­ráð­herr­ans ollu mik­illi reiði á meðal starfs­manna Seðla­bank­ans. Við­mæl­endur Kjarnans á þeim tíma sögðu að ekki væri hægt að túlka þau öðru­vísi en sem alvar­lega aðför að sjálf­stæði bank­ans. Auk þess hefðu ummælin vegið að trú­verð­ug­leika Seðla­banka Íslands. Þegar við bætt­ist, þremur dögum eftir við­talið, að Má Guð­munds­syni var greint frá því að aug­lýsa ætti stöðu hans lausa til umsóknar, jókst reiði hluta lyk­il­starfs­manna til muna. Í sam­tölum sem blaða­menn Kjarnans áttu við slíka á þessum tíma kom fram að margir þeirra væru að íhuga að segja starfi sínu lausu vegna vær­ing­anna.

Líkti brotthvarfi sínu við krossfestingu

Skipan Más Guð­munds­sonar í stöðu seðla­banka­stjóra, sem gerð var í tíð rík­is­stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, var ætið þyrnir í síðu margra á hægri væng stjórn­mál­anna. Már hefur aldrei notið sér­stakra vin­sælda þar og hefur oft verið skot­spónn nafn­lausra níð­vett­vanga þess hólfs stjórn­mál­anna, bæði á vef og í þeim prent­miðlum sem ganga í takt við þau stjórn­mál, sér­stak­lega með vísun í það að hann hefði aðhyllst marx­isma á yngri árum og ætti sér sögu í Alþýðu­banda­lag­inu.

Þá hefur sú ákvörðun vinstri­st­jórn­ar­innar að breyta lögum um Seðla­banka Íslands, sem fól meðal ann­ars í sér að seðla­banka­stjórum var fækkað úr þremur í einn, ætið verið séð sem bein aðför að Davíð Oddssyni í kreðsum hans. Eina ástæða laga­breyt­ing­anna hafi verið að losna við hann úr bank­anum, sem gerð­ist í tíð minni­hluta­stjórnar Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar, sem sat með lið­sinni Fram­sókn­ar­flokks Sig­mundar Davíðs, snemma árs 2009 og áður en fyrstu þing­kosn­ingar eft­ir­hrunsár­anna fóru fram.

Davíð tjáði sig um þessi mála­lok í frægri ræðu sem hann hélt á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í lok mars 2009. Þar sagði hann meðal ann­ars Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur vera dálítið eins og álfur út úr hól, að Björgvin G. Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi við­skipta­ráð­herra, ætti drengja­met í að leka upp­lýs­ingum í fjöl­miðla og líkti starfs­lokum sínum í Seðla­bank­anum við kross­fest­ingu Krists. „Þeir þrjótar sem kross­festu Krist létu tvo óbóta­menn sitt­hvoru megin við hann á kross­inum. En þegar verk­lausa minni­hluta­stjórnin hengdi þrjót­inn Davíð, voru það tveir strang­heið­ar­legir og vand­aðir heið­urs­menn, sem fengu grátt að gjalda mann­inum til sam­lætis[...]Sú lág­kúru­lega aðgerð sem var gerð til þess að hið póli­tíska endaræði yrði ekki eins áber­andi er til vitnis um hversu lýð­ræð­is­þroski þessa fólks er lít­ill[...]Útrás­ar­vík­ing­arnir sem settu Ísland á hlið­ina áttu eina sam­eig­in­lega ósk og hún var að koma Davíð Oddssyni úr Seðla­bank­anum. Þessa ósk flýtti vinstri stjórnin sér í að upp­fylla, vænt­an­lega í þakk­læt­is­skyni við vík­ing­ana fyrir vel unnin störf í þjóð­ar­þágu."

Davíð segir Bjarna hafa hringt

Már Guð­munds­son var á end­anum end­ur­skip­aður í stól seðla­banka­stjóri í ágúst 2014 og boð­aðar breyt­ingar á yfir­stjórn Seðla­bank­ans gengu ekki í gegn. Það vakti þó athygli að þegar Már var end­ur­skip­aður þá gaf hann út yfir­lýs­ingu sem birt var á vef bank­ans.

Í henni sagði að í skip­un­ar­bréfi sínu hefði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vakið athygli á því að vinna við heild­ar­end­ur­skoðun laga um Seðla­bank­ann væri hafin. Má væri það ljóst að þær breyt­ingar gæti haft í för með sér að end­ur­ráðið yrði í yfir­stjórn bank­ans. „Ég tel í þessu sam­bandi rétt að upp­lýsa að ég hef í nokkur ár haft hug á að skoða mögu­leik­ann á að hverfa á ný til starfa erlendis áður en ald­urs­mörk hamla um of. Ég taldi ekki heppi­legt að gera það nú í ljósi ástands­ins og verk­efna­stöð­unnar í Seðla­bank­anum auk fjöl­skyldu­að­stæðna. Þetta mun breyt­ast á næstu miss­erum. Það er því óvíst að ég myndi sækj­ast eftir end­ur­ráðn­ingu komi til slíks ferlis vegna breyt­inga á lögum um Seðla­banka Íslands á næstu miss­erum.“

Um síð­ustu helgi, tæpum fimm árum eftir að Már var end­ur­ráðin, á meðan að frum­vörp um breyt­ingar á Seðla­banka Íslands voru enn ósam­þykkt á Alþingi og degi áður en Kjarninn greindi fyrstur miðla frá því hvaða fjórir umsækj­endur hafi verið metn­ist hæf­astir í kapp­hlaup­inu um að verða eft­ir­maður Más, birt­ist Reykja­vík­ur­bréf í Morg­un­blað­inu skrifað af Davíð Oddssyni. Þar greindi hann frá því að Bjarni Bene­dikts­son hefði „bæði gefið til kynna og sagt ýmsum frá að hann ætl­aði sér ekki að end­ur­skipa Má Guð­munds­son þegar að því kom árið 2014. Þegar að þessu dró var ráð­herr­ann staddur fyrir norð­an, senni­lega á Siglu­firði, og hringdi í menn og upp­lýsti þá, og þar á meðal rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, að vegna óvænts flækju­stigs sem upp hefði komið (sem ekki verður farið út í hér) hefði hann ekki náð að gera breyt­ing­arnar sem hann hefði marg­boð­að. Hann myndi því skipa Má og skip­un­ar­bréfið gæfi til kynna að það yrði til fimm ára. Hins vegar væri sam­eig­in­legur skiln­ingur á því að skip­unin stæði í hæsta lagi til eins árs.

Ekki voru endi­lega allir mjög trú­aðir á þennan mála­til­bún­að. En sam­kvæmt minnis­p­unkt­unum sagði ráð­herr­ann efn­is­lega á þessa leið: Þessu mega menn treysta og Már gerir sér grein fyrir þessu og mun birta yfir­lýs­ingu sem í raun stað­festir það sem ég er að segja.“

Sú yfir­lýs­ing var rakin hér að ofan.

Tók fimm ár að endurskoða lögin

Már hætti þó ekki áður en skip­un­ar­tími hans leið. Þegar hann lætur af störfum í ágúst næst­kom­andi verða tíu ár liðin frá því að hann tók við stöð­unni. Ýmislegt spil­aði inn í þá nið­ur­stöðu. Í fyrsta lagi gegndi Seðla­bank­inn mjög mik­il­vægu hlut­verki í sam­komu­lagi sem gert var við kröfu­hafa föllnu bank­anna árið 2015 og það var póli­tískt mat að rétt væri að Már myndi ljúka þeirri vinnu sem leiddi svo til þess að fjár­magns­höft voru rýmkuð.

Í öðru lagi fóru íslensk stjórn­mál á hlið­ina í apr­íl­byrjun 2016 þegar Panama­skjölin voru opin­beruð, Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra og nýjar kosn­ingar voru boð­aðar um haustið. Illa gekk að mynda rík­is­stjórn eftir þær kosn­ingar og þegar hún varð loks að veru­leika í jan­úar 2017 var búið að færa mál­efni Seðla­banka Íslands frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu yfir til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins þar sem Bjarni Bene­dikts­son kom sér fyrir. Rík­is­stjórn hans sat þó ein­ungis í átta mán­uði.

Sú næsta, undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur, tók við völdum í lok nóv­em­ber 2017. Í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum var tek­ist á um hvar mál­efni Seðla­banka Íslands ættu að vera. Bjarni vildi fá þau aftur yfir í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið en Katrín vildi halda þeim í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Á end­anum hafði hún betur en þegar frum­varp um breyt­ingar á Seðla­banka Íslands kom loks­ins fram í mars 2019 fólst í því að skipum nýrrar yfir­stjórnar yrði skipt á milli for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Katrín Jakobsdóttir mun skipa næsta seðlabankastjóra.
Katrín Jak­obs­dóttir mun skipa næsta seðla­banka­stjóra.

Þegar frum­varpið varð loks að lögum, skömmu eftir mið­nætti 20. júní síð­ast­lið­inn, var ljóst að það tæki því ekki að Már Guð­munds­son myndi hætta áður en að skip­un­ar­tími hans liði undir lok, enda innan við tveir mán­uðir eftir af honum.

Efaðist um raunverulegt framboð af kandidötum

Í við­tali við sjón­varps­þátt­inn 21 á Hring­braut í mars 2018 sagði Már að hann hafi ætlað sér að losa fjár­magns­höftin áður en hann hætti. Eftir stæði „smá aflandskrón­ustabbi“ sem tæki lung­ann af árinu 2019 að klára.

Þar sagði Már einnig að honum hlakk­aði mjög til að hætta og að fólk geti ekki lengur setið lengi í stóli seðla­banka­stjóra. „Mitt mat er það að í gamla daga var hægt að vera 30 ár í starfi sem þessu. En það er ekki hægt leng­ur. Það er tími fyrir allt.“

Már sagði enn fremur að þótt nægt fram­boð væri af fólki sem taldi sig geta orðið næsti seðla­banka­stjóri þá væri ekki víst að raun­veru­legt fram­boð af kandídötum í starfið væri mik­ið.

Alls sóttu 16 manns um stöðu seðla­banka­stjóra þegar hún var aug­lýst. Kjarninn greindi frá því fyrstur miðla 16. júní síð­ast­lið­inn að fjórir umsækj­endur hefðu verið metnir mjög vel hæfir af hæf­is­nefnd. Því stendur valið á næsta seðla­banka­stjóra á milli þeirra nema eitt­hvað breyt­ist vegna athuga­semda ann­arra umsækj­enda við hæf­is­mat nefnd­ar­innar.

Þeir fjórir sem metnir voru mjög vel hæfir eru Gylfi Magn­ús­son, dós­ent við Háskóla Íslands, Ásgeir Jóns­son, for­seti hag­fræði­deildar Háskóla Íslands, Jón Dan­í­els­son, pró­fessor við LSE í London, og Arnór Sig­hvats­son, ráð­gjafi seðla­banka­stjóra og fyrr­ver­andi aðal­hag­fræð­ingur og aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri. Allir hafa þeir dokt­ors­próf í hag­fræði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár