Selja helming í HS Orku til Ancala Partners og færa hlut í Bláa lóninu út

Félag í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­sjóða keypti í dag öll hluta­bréf í HS Orku sem það átti ekki fyrir, seldi helm­ing þeirra síðan til bresks sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis en seldi nýju félagi líf­eyr­is­sjóða fyrst 30 pró­sent hlut í Bláa lón­inu á 15 millj­arða.

Jarð­varmi slhf, félag í eigu 14 íslenska líf­eyr­is­sjóð, keypti í dag hlut Innergex í HS Orku á 299,9 millj­ónir dali, eða 37,3 millj­arða króna á núvirði. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá Innergex til kanadísku kaup­hall­ar­innar í dag.

[links]Innergex hefur þar með selt sænsku félagið Magma Sweden til Jarð­varma en Magma á 53,9 pró­sent hlut í félag­inu. Með varð Jarð­varmi eig­andi allra hluta í HS Orku, eina íslenska orku­fyr­ir­tæk­inu sem er í einka­eigu eftir að hafa gengið inn í sölu á hlut fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins ORK fyrr á þessu ári. Sam­an­lagt greiddi Jarð­varmi 47 millj­arða króna fyrir hlut­ina, en þeir nema 66,6 pró­sent af útgefnu hlutafé í HS Orku. Jarð­varmi var að nýta kaup­rétt sinn á hlutum í HS Orku en félagið átti áður 33,4 pró­sent hlut.

Í kjöl­farið seldi Jarð­varmi síðan helm­ing hluta­fjár í HS orku til breska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Ancala Partners, sem sér­hæfir sig í inn­viða­fjár­fest­ingum í Evrópu og er að stóru leyti fjár­magnað af breskum líf­eyr­is­sjóðum. Áður en að það var gert tók Jarð­varmi þó 30 pró­sent hlut HS Orku í Bláa lón­inu út úr orku­fyr­ir­tæki og seldi til nýs félags í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, Blávarma slhf, á 15 millj­arða króna. Miðað við það verð er heild­ar­virði Bláa lóns­ins 50 millj­arðar króna.

Telja spennandi tíma framundan

Í frétta­til­kynn­ingu er haft eftir Davíð Rúd­ólfs­syni, stjórn­ar­for­manni Jarð­varma og Blávarma, að með við­skipt­unum skap­ist stöð­ug­leiki um eign­ar­hald HS Orku til fram­tíðar. „Sér­fræði­þekk­ing Ancala á sviði end­ur­nýj­an­legrar orku og sam­eig­in­leg sýn okkar á þau tæki­færi sem eru til staðar fyrir HS Orku til lengri tíma gerir Ancala að ákjós­an­legum með­eig­anda. Fram undan eru spenn­andi tæki­færi við frek­ari upp­bygg­ingu HS Orku. Þá er Bláa Lónið kjöl­festa í íslenskri ferða­þjón­ustu sem hefur byggt upp sterkt alþjóð­legt vöru­merki. Upp­bygg­ing síð­ustu ára skapar tæki­færi til enn frek­ari vaxtar sem eig­endur Blávarma hyggj­ast taka fullan þátt í.“

Lee Mellor, einn með­eig­anda Ancala Partners, segir að í rekstri HS Orku deili Ancala og Jarð­varmi sam­eig­in­legri hug­mynda­fræði þar sem áhersla er lögð á stuðn­ing við stjórn­endur, frek­ari fjár­fest­ingar og sam­starf til langs tíma. „HS Orka er ákjós­an­legur grunnur til að vinna að frek­ari verk­efnum á hinum áhuga­verða vett­vangi end­ur­nýj­an­legrar orku á Íslandi. Við hlökkum til sam­starfs­ins við Jarð­varma og við stjórn­endur HS Orku.“

Ásgeir Mar­geirs­son, for­stjóri HS Orku, segir að það sé fagn­að­ar­efni að söl­unni sé lokið. „Félagið verður í eigu tveggja öfl­ugra og traustra hlut­hafa sem hafa skýr áform um stuðn­ing við það og upp­bygg­ingu þess til lang­frama. Jarð­varmi hefur verið hlut­hafi í félag­inu frá árinu 2011 og stutt það afar vel. Við hlökkum til sam­starfs við hlut­haf­ana við áfram­hald­andi upp­bygg­ingu og rekstur félags­ins. Við­skiptin eru enn fremur jákvæður vitn­is­burður um þróun félags­ins og það góða starf sem hæft starfs­fólk okkar vinnur.“

Aðkomu Beaty fer að ljúka

Með söl­unni á Magma Energy Sweden til Jarð­varma lýkur ára­tuga­langri, og um tíma afar umdeildri, aðkomu Kanada­manns­ins Ross Beaty og fyr­ir­tækja sem hann hefur komið að að þessu þriðja stærsta orku­fyr­ir­tæki lands­ins.

Beaty, sem hefur verið stjórn­ar­for­maður HS Orku árum saman, leiddi upp­kaup sænska skúffu­fyr­ir­tæk­is­ins Magma Energy Sweden á hlutum í HS Orku á árunum 2009 og 2010. Þrátt fyrir mik­inn póli­tískan mót­þróa, og umræður um hvort ríkið gæti gengið inn í kaupin eða komið í veg fyrir þau á annan hátt, þá náði hann að kaupa alls 98,53 pró­sent hlut í orku­fyr­ir­tæk­inu á alls um 33 millj­arða króna.

Miðað við verð­mið­ann sem er á söl­unni til Jarð­varma þá er heild­ar­virði HS Orku nú um 69 millj­arðar króna. Fyr­ir­tækið hefur því reynst ágætis fjár­fest­ing fyrir þá sem keyptu það á sínum tíma.

Fyr­ir­tæki Beaty fór síðan í gegnum sam­ein­ingar og end­aði undir hatti Innergex, sem gekk frá söl­unni á hlut sínum í HS Orku í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár