Bestu bresku hlaðvörpin fengu verðlaun

Hér eru bestu bresku hlað­varps­þætt­irnir. Hlaðvarp hefur verið í mik­illi sókn und­an­farin ár, ekki bara í Bret­landi heldur einnig hér á landi.

Þáttastjórnendur The Inquiry hlutu verðlaun fyrir bestu fréttaþættina í bresku hlaðvarpi.
Þátta­stjórn­endur The Inquiry hlutu verð­laun fyrir bestu frétta­þætt­ina í bresku hlað­varpi. Mynd: British Podcast Awards

Eru glæpa­sögur, helstu mál­efni líð­andi stundar eða íþróttaum­fjöllun eitt­hvað sem heillar? Þetta og nán­ast allt annað var til­nefnt til bresku hlað­varps­verð­laun­anna sem veitt voru í fyrsta sinn 30. apríl síð­ast­lið­inn.

Hlaðvarp hefur verið í mik­illi sókn und­an­farin ár, ekki bara í Bret­landi heldur einnig hér á landi. Umfjöll­un­ar­efni hlað­varps­þátta eru gríð­ar­lega fjöl­breytt og margir þættir unnir af mik­illi fag­mennsku. Hlaðvarp gefur vin­sæl­ustu útvarps­stöðvum sem varpa umræðum á gamla mát­ann ekki tommu eftir.

Mikil gróska er í íslensku hlað­varpi. Kjarninn rekur hlað­varps­rás hér á vefnum þar sem fjöl­margir þættir eru í boði um allt milli him­ins og jarðar. Nánari upp­lýs­ingar um hlað­varpið eru að finna á hlað­varpsvef Kjarnans.

Á vef Nútímans má finna aðra hlað­varps­rás sem hefur fengið nafnið Alvarpið. Þar eru einnig stór­góðir þættir sem hik­laust er mælt með. Þá bjóða íslenskar útvarps­stöðvar upp á hlað­varps­út­gáfur af þáttum sínum. Þeirra vin­sælastur er eflaust þáttur Veru Ill­uga­dóttur í hlað­varpi RÚV sem heitir Í ljósi sög­unnar.

[adspot]

Sigurvegarar í bresku hlaðvarpsverðlaununum

Hér að neðan má sjá sig­ur­veg­ara í völdum flokkum úr bresku hlað­varps­verð­laun­unum. Það ættu allir að geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi í þessum lista.

Málefni líðandi stundar

The Inquiry – iTu­nes – Frábær frétt­skýr­inga­þáttur á vegum BBC þar sem frétta­mál eru útskýrð og reynt að varpa ljósi á ástæður og afleið­ingar.

Íþróttir

Fight Disciples – iTu­nes – Allar helstu bar­daga­í­þróttir heims eru til umræðu í þessum þætti, hvort sem það eru hnefa­leikar eða blönduð bar­daga­list.

Hornet Heaven – iTu­nes – Fyndinn fót­bolta­þáttur í far­sa­líki þar sem stað­reyndum og hug­ar­burði er blandað saman til þess að varpa ljósi á það hvernig er að vera fót­boltaunn­andi fyrir lífs­tíð.

Hlustendaverðlaun

Kermode & Mayo's Film Review – iTu­nes – Í þessum viku­lega þætti er ein­göngu fjallað um nýj­ustu kvik­mynd­irnar.

Glæpaþættir

They Walk Among US – iTu­nes – Þessir þættir koma hálfs­mán­að­ar­lega og fjalla allir um raun­veru­lega glæpi og glæpa­menn

Skáldskapur

Tracks – iTu­nes – Upp kemst um dul­ar­fulla ráð­gátu þegar flug­vél hrapar í Wales. Hér er um rosa­lega sam­sær­is­hroll­vekju að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár