Frambjóðendur takast á um stjórnarskránna

Sjö for­seta­fram­bjóð­endur mættu til hádeg­is­fundar í Háskól­anum í Reykja­vík í dag til að ræða stjórn­ar­skrár­mál. Hver lýsti sinni skoðun á mál­inu og Kjarninn var á staðnum.

Ástþór Magnússon, Sturla Jónsson, Halla Tómasdóttir, Guðni Th. Jóhannesson, Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Davíð Oddson og Andri Snær Magnason mættu í HR í dag.
Ástþór Magn­ús­son, Sturla Jónsson, Halla Tóm­as­dóttir, Guðni Th. Jóhann­es­son, Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir, Davíð Oddson og Andri Snær Magnason mættu í HR í dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Átta for­seta­fram­bjóð­endur lýstu afstöðu sinni til stjórn­ar­skrár­innar í Háskól­anum í Reykja­vík í dag. Lögrétta, félag laga­nema við HR, bauð öllum for­seta­fram­bjóð­endum til að ræða málið.

Hver fram­bjóð­andi fékk fimm mín­útur til að koma sínum skoð­unum sínum á fram­færi.

Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir, Sturla Jónsson, Guðni Th. Jóhann­es­son, Halla Tóm­as­dóttir, Andri Snær Magnason, Davíð Oddsson og Ástþór Magn­ús­son mættu. Hildur Þórð­ar­dóttir mætti klukku­stund of seint og fékk að fara með sín stefnu­mál. Fram­bjóð­endur stigu í pontu í staf­rófs­röð. Guðrún Margrét Páls­dóttir komst ekki á fund­inn, en hún er stödd erlendis.

Þjóðfundurinn fallegt átak

Andri Snær tal­aði mikið um Þjóð­fund­inn sem hald­inn var árið 2009. Hann sagði að ferlið með nýja stjórn­ar­skrá hafi byrjað með fal­legu átaki, Þjóð­fund­inum. Skilað hafi verið af sér gildum, sem hlegið hafi verið að á sínum tíma, en nú hafi síð­ustu vikur sýnt að það hafi verið alvara á bak við þessi gildi.

Lýðræði væri skap­andi ferli sem fólk þróar og það megi ekki staðna. Ef almenn­ingur fær ekki rödd, á það til að öskra í gegn um einn sterkan karl­mann. Það er ekki gott að breyta stjórn­ar­skrá í sjálfu sér, en það er gott að færa hana í rétta átt. Við getum sýnt að við séum til fyr­ir­myndar í heim­inum.

Andri Snær tal­aði um kafla stjórn­ar­skrár­innar sem fjallar um for­seta Íslands og telur brýnt að skýra hlut­verk for­seta og að færa valdið til fólks­ins í stað 26. greinar stjórn­ar­skrár­innar, um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur. Stjórn­ar­skráin eigi að vera skrifuð á manna­máli og sam­hæf­an­leg stjórn­ar­skrám nágranna­ríkj­anna.

Skoðanatúlkun fjölmiðla það hættulegasta í íslensku samfélagi

Ástþór Magn­ús­son sagði að flestir könn­uð­ust senni­lega við nafn hans, en kannski ekki öll hans stefnu­mál. Hann sagði vöntun á því að stjórn­ar­skráin sé virt. Það þurfi að upp­færa hana í sam­ræmi við nútím­ann, en ekki gera hana að marklausu plaggi. Það vanti í hana refsi­á­kvæði varð­andi að fara ekki eftir henni.

Ástþór sagði að ráðskast sé með skoð­anir fólks með heima­til­búnum könn­unum, rík­is­fjöl­miðlar taki þátt í þeim leik. For­seta­fram­bjóð­anda sé skotið á loft og ímynd­aðir turnar búnir til á milli hans og sitj­andi for­seta. Lýðræði sé mark­laust í því umhverfi. Það megi ekki stjórna fjöl­miðlum með Pana­ma­pen­ingum, eins og stærsta einka­rekna fjöl­miðla­sam­steypa lands­ins sé rekin. Nauð­syn­legt sé að kynna öll fram­boð á jafn­rétt­is­grund­velli.

Hann tal­aði um epli og app­el­sínur og heim­færði það á ójafn­vægi í umfjöllun fjöl­miðla um for­seta­fram­bjóð­endur og fram­boð til Alþingis. Þetta sé það hættu­leg­asta sem stafar að íslensku sam­fé­lagi í dag, hvernig ráðskast sé með skoð­anir fólks­ins.

Gagnrýndi síðustu ríkisstjórn og sitjandi forseta

Davíð Oddsson sagð­ist von­ast til að hann væri á réttum fundi, eftir ræðu Ástþórs. Hann sagð­ist einn manna á fund­inum hafa komið að því að breyta stjórn­ar­skránni. Það hafi hann gert á Alþingi. Einnig sagð­ist hann hafa haft for­gang um ýmis ákvæði í henni. Það eigi þó ekki að breyta henni oft eða mikið, það sé í eðli hennar að svo verði ekki gert. Skildi ekki að fall bank­anna hafi fært rök fyrir því að koll­varpa stjórn­ar­skránni.

Davíð tal­aði um ár sín í lög­fræði, og minnt­ist á að mál­skots­réttur hafi þá heitið synj­un­ar­vald. Því hafi fylgt ábyrgð. Ef for­seti beitti synj­un­ar­valdi og þjóðin synj­aði lög­unum, hafi rík­is­stjórnin átt að segja af sér, og ef þjóðin sam­þykkti lögin, ætti for­seti að segja af sér.

Þegar þjóðin hafn­aði mjög mik­il­vægum lögum, Icesave, gagn­rýndi Davíð þáver­andi rík­is­stjórn sem hafi bara „látið eins og hún væri að fá sér morg­un­verð ein­hvers staðar,“ og upp­skar hlátur úr sal. Hann gagn­rýndi synjun for­seta á fjöl­miðla­lög­unum og sagði að vald­svið for­seta sé tví­þætt. Annars vegar þau sem skráð séu í stjórn­ar­skrá, og hins vegar áhrifa­vald for­set­ans. Hið síð­ar­nefnda fari mikið eftir per­sónu for­seta.

Davíð sagði í umræð­unum eftir kynn­ing­arnar að þó að það virð­ist sem allir fram­bjóð­endur séu hér frið­samir og sam­mála, megi samt sem áður heyra ágrein­ing ef glöggt er hlustað. Til dæmis vilji Ástþór virkja Bessa­staði á meðan Andri Snær vilji ekki virkja neitt.

„Kapítalismi“ og „Kárahnjúkar“ dottin úr orðaforðanum

Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir sagð­ist ekki hafa verið með spurn­ing­arnar, en hún hafi stolið þeim frá sessu­naut sínum, Davíð Oddssyni. Hún er á móti mál­skots­rétt­inum og lítur á hann sem tappa í bát - þegar um geð­veiki eða land­ráð sé að ræða sé hægt að beita honum. Ekki sé rétt að einn maður geti tekið þessa ákvörðun einn og sjálfur. Það þurfi að vísa því til þjóð­ar­innar. Hún rifj­aði upp þau atvik sem Ólafur Ragnar beitti mál­skots­rétt­inum, hafi henni fund­ist eitt­hvað rangt við það að einn maður hafi þetta vald þegar heil þjóð eigi að geta tekið afstöðu til hennar.

Eins sé með Kára­hnjúka­virkjun. Hún hafi beðið for­seta Íslands að beita mál­skots­rétt­inum, en það hafi ekki verið gert. Hún vill þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og þess vegna sé stjórn­ar­skráin - það sé í anda okkar Íslend­inga að halda þús­und manna þjóð­fund í kjöl­far Hrunsins.

Kap­ít­al­ismi og Kára­hnjúka­virkjun séu orð sem megi ekki nefna lengur, þau séu bara dottin út úr tungu­mál­inu. Elísabet segir Kára­hnjúka­virkjun vera ein ástæða fyrir hrun­inu. Hafa kon­urnar 18 sem drekkt var í Drekk­ing­ar­hyl sem for­seta. Nú sé hún í for­seta­fram­boði, með hár­greiðslu­konu og bíl­stjóra, en hún mundi frekar vilja hafa hóp kvenna sem for­seta. Hún vill að karl og kona skiptir á að vera for­seti og segir það sama um Jesú - að hann ætti að vera stelpa og strákur til skiptis.

Mundi ekki skrifa undir lög um dauðarefsingar

Guðni Th. Jóhann­es­son segir þjóð­ina og þing­menn vera það fólk sem breyti stjórn­ar­skránni. Hann sé bæði sáttur við núver­andi stjórn­ar­skrá, en einnig sé þörf á breyt­ingum. Þetta sé ferli sem hófst 1944 og því ljúki ekki núna, hvernig sem fer. 

Brýnt sé að horfa sér­stak­lega til þess að fá atkvæði um til­skil­inn fjölda kjós­enda sem geti kraf­ist þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um störf þings­ins. Skoða kafla um völd og verk­svið for­seta Íslands, því hann beri þess skýr merki um að hafa verið sam­inn þegar Ísland var kon­ung­dæmi.

Hann seg­ist myndu beita mál­skots­rétti, en getur ekki sagt fyr­ir­fram við hvaða aðstæður hann mundi gera það. Forseti eigi að geta neitað að und­ir­rita lög, gangi þau alveg gegn sann­fær­ingu hans. Hann tók dæmi um Vigdísi Finn­boga­dóttur, sem sagð­ist aldrei myndu und­ir­rita lög um dauða­refs­ingar, og sagð­ist taka undir það.

Póli­tískt vald­svið for­seta sé mikið, eins og nýleg dæmi sýni okkur, og því skipti miklu máli að for­seti sé ópóli­tískur í eðli sínu og megi ekki taka afstöðu til flokka. Hann segir að und­ir­skriftir 10 til 15 pró­sent þjóð­ar­innar eigi að nægja til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Vill breyta stjórnarskránni í tveimur áföngum

Halla Tóm­as­dóttir sagði að það væri eins og HR væri eins og sitt fyrsta barn, þar sem hún hafi verið í skól­anum þegar hann var að mót­ast. Hún ræddi um lög­fræði­námið við HR sem að hún hafi komið að því að móta eins og það var í dag. Hún fór yfir bak­grunn sinn áður en hún ræddi um afstöðu hennar til stjórn­ar­skrár­innar.

Hún ræddi um aðkomu sína að Þjóð­fund­inum og sagði nið­ur­stöðu hans hafa verið skýra: Heið­ar­leiki, jafn­rétti, rétt­læti og virð­ing. Mik­il­vægt verk­efni sé að breyta stjórn­ar­skránni og það sé hlut­verk þings­ins.

Brýn þörf sé á breyt­ingum og það þurfi þverpóli­tíska sátt til þess. Það eigi að gera það í tveimur áföngum, byrja á því að taka stór mál eins og auð­linda­mál og beint lýð­ræði. Svo þurfi að koma henni á manna­mál. Beiting mál­skots­réttar eigi ekki að vera háð geð­þótta. Hún seg­ist treysta lög­fræð­ingum HR til að taka þátt í að end­ur­skoða stjórn­ar­skrána.

25.000 undirskriftir nægi til þjóðaratkvæðagreiðslu

Sturla Jónsson sagð­ist hafa lært lög­fræði sjálfur úti á götu og þurft að standa í stappi við fólk sem hafði lært lög­fræði í skólum. Venju­lega fólkið lesi bara text­ann og ætlist til þess að það sé farið eftir honum.

Sýn hans á stjórn­ar­skránna sé sú að hún sé kjöl­ur­inn í laga­safni okkar. Í dag séu lög mörg sett í and­stöðu við stjórn­ar­skránna og það hafi hann sjálfur upp­lifað í dóms­kerf­inu. Það brjóti margt í bága við stjórn­ar­skránna í laga­safni Íslands.

Varðandi mál­skots­rétt­inn seg­ist Sturla ætla að vísa málum til þjóð­ar­innar fái hann 25.000 und­ir­skriftir. Það sé hans sýn til að koma á beinu lýð­ræði. Hann gagn­rýnir sölu rík­is­ins á stofn­unum og fyr­ir­tækjum og spurði hvers vegna því hafði ekki verið vísað í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

„Lifi byltingin!“

Hildur Þórð­ar­dóttir mætti klukku­tíma of seint, en fékk tæki­færi til að tjá sín stefnu­mál. Húns agði mjög hlynnt nýju stjórn­ar­skránni og segir það mik­il­vægan hlekk í því starfi sem þjóðin sé að fara í. Fólkið og for­seti eigi að veita þing­inu aðhald. Tilurð stjórn­ar­skrá­ar­innar sé merki­leg, með þjóð­fund­inum. Það sé fram­tíðin og þannig verði við að finna leið til að þingið geti starfað.

Hún mun beita mál­skots­rétt­inum fái hún und­ir­skriftir frá 10 pró­sent þjóð­ar­innar. Það sé bara þegar þingið sé að vinna á skjön við þjóð­ina sem þessu sé beitt.

Forseti sæki vald sitt til fólks­ins og því séu skyldur hans fyrst og fremst gagn­vart því. Hún seg­ist ætla að rugga bátnum verði hún for­seti og því gæti farið svo að kerfið fari í bak­lás. Fólkið verði að breyta sam­fé­lag­inu og nauð­syn­legt sé að fá réttu tólin til þess.

Bar­áttu­mál hennar segir hún að verði að koma frá fólk­inu sjálfu og því verði hún mikið úti meðal fólks­ins. Að mati Hildar geti allir breytt sam­fé­lag­inu, það sé hæg­fara bylt­ing sem fólkið verði að halda áfram. Vald­hafar taki stjórn­ar­skrána í gísl­ingu og breyti bara því sem þeim hentar. Fólk verði að sjá í gegn um kerfið. Hildur lauk sínum orðum með orð­unum: „Lifi bylt­ingin!“

Uppfært klukkan 13:10: Hildur Þórð­ar­dóttir mætti klukkan rúm­lega eitt og fékk að segja frá sínum stefnu­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár